Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Eikarvöllurinn
Gott íslenskt skítaveður
Breiðablik
Breiðablik
4 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Edith Kristín Kristjánsdóttir 73'1 - 0Líf Joostdóttir van Bemmel 76'2 - 0Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 79'3 - 03 - 190' Bergdís SveinsdóttirÓlöf Margrét Marvinsdóttir 92'4 - 1
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Flóðgáttir opnuðust og Blikar skoruðu þrjú á sex mínútum

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum hér í dag var hreinlega bara frábær markvarsla hjá Taylor Kane og svo sjötti gírinn sem Breiðablik smellti sér í á 73. mínútu með marki Edithar. Eftir það var eins og allar flóðgáttir opnuðust og þrjú Blikamörk til viðbótar litu dagsins ljós. Víkingur má þó eiga það að þær hættu aldrei að reyna að sækja og uppskáru eitt sárabótarmark.

Bestu leikmenn

1. Líf Joostdóttir van Bemmel

Líf átt góðan leik í dag, og átti stóran þátt í því að Breiðablik sótti öll þrjú stigin! Skapaði algjörlega fyrsta markið þegar hún komst að harðfylgi út á endalínu og gaf svo frábæra sendingu út í teiginn á Edith sem kláraði frábærlega, hún tvöfaldaði svo forystuna með sínum einstaklingsgæðum, þegar hún smellhitti boltann í samskeytin fjær.

2. Taylor Kane

Átti góðan dag í markinu í sínum fyrsta leik fyrir Breiðablik í sumar. Hún átti oft á tíðum frábærar vörlsur og kom í veg fyrir að Víkingur tæki forystuna. Set líka shout out á hina 14 ára Ólöfu Margréti Marvinsdóttur sem setti sitt fyrsta mark fyrir Blika í Bestu deildinni.

Atvikið

Víkingur fékk dauðafæri til að komast yfir á 65. mínútu þegar Freyja Stefánsdóttir slapp ein í gegn. Taylor Kane varði hins vegar frábærlega og aðeins átta mínútum síðar skoraði Breiðablik fyrsta markið. Þar snerist leikurinn algjörlega.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Breiðablik kemur sér fyrir á toppnum í bili, með 24 stig, einu stigi meira en FH sem þó á leik til góða. Víkingur hins vegar er í bullandi fallbaráttu í 8. sæti með 10 stig líkt og Valur og Fram í því 7. og 9.

Vondur dagur

Finn til með varnarlínu Víkings, þær stóðu vaktina svo vel í 72 mínútur og svo hrundi einbeitingin við fyrsta markið. Óþarflega stór úrslit miðað við frammistöðu Víkings meirihlutann af leiknum.

Dómarinn - 5

Þokkaleg frammistaða hjá dómarateyminu í dag, mér fannst sumt skrítið og fannst ekki nægilega gott jafnvægi í dómunum. Að öðruleiti bara flott dagsverk.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.