SKÝRSLAN: ÍBV sigur á Hásteinsvelli
Hvað réði úrslitum?
ÍBV voru miklu betri í fyrri hálfleik og uppskáru tvö fín mörk og hefðu getað sett fleiri. Valskonur komu örlítið beittari inn í síðari hálfleikinn og komu sér í fínar stöður en náðu aðeins að minnka muninn í 2-1.
Bestu leikmenn
1. Olga Sevcova
Olga var frábær í kvöld. Hún átti stórann þátt í marki númer tvö hjá ÍBV þegar hún átti skemmtilega sendingu á Allison Lowrey. Hún var svo oft að koma samherjum sínum í mjög góð færi og stöður. Valskonur réðu ekkert við hana.
2. Allison Grace Lowrey
Allison átti mjög góðan leik í fremstu víglínu hjá ÍBV. Skorar mikilvægt annað mark ÍBV og var alltaf hættuleg. Verð líka að nefna nöfnu hennar Allison Clark sem var mjög góð inn á miðsvæðinu en hefði getað nýtt færin sín aðeins betur.
Atvikið
Svo sem ekkert sérstakt atvik en markið hjá Arnfríði Auði Arnarsdóttur var frábært. Tók skotið af 20 metrum og boltinn söng í netinu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV heldur í við toppliðin og eru með 20 stig í fjórða sæti á meðan Valur er að keppa á hinum endanum og eru með tíu stig í sjöunda sæti.
Vondur dagur
Engin áberandi slök í Valsliðinu en þær áttu ekki góðan fyrri hálfleik hvorki varnar né sóknarlega. Varnarlínan átti í stökustu vandræðum með ferska sóknarmenn ÍBV og þær virkuðu svolítið á hælunum.
Dómarinn - 8
Fínn leikur hjá Milan. Lítið um vafaatriði og ekki neitt út á hann að setja.



