Fyrir leik
Liðin í 4. og 7. sæti
ÍBV situr í 4. sæti deildarinnar með 17 stig og kemur inn í leikinn eftir sigur á Víkingi í síðustu umferð, 1-3 lokatölur á Víkingsvelli.
Valur er í 7. sæti með 10 stig og kemur inn í leikinn eftir þrjú jafntefli í röð. Valur gerði jafntefli gegn Stjörnunni í síðustu umferð.
ÍBV sigraði Val i fyrri leik liðanna á N1 vellinum. Viktorija Zaicikova skoraði sigurmarkið á 76. mínútu í 2-3 endurkomusigri.
Fyrir leik
Velkomin á Hásteinsvöll
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli.
ÍBV tekur á móti Val í 11. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.





