Leik lokið!
Þór sigrar Íslandsmeistarana!
Fyrsti sigur Þórs síðan í 3. umferð og fyrsta tap Víkings í deildinni síðan á síðasta tímabili.
97. mín
Gult spjald
Aron Birkir Stefánsson
97. mín
Víkingar brotlegir. Líklega búið.
Einhver læti inn á vítateig Þórs.
Einhver læti inn á vítateig Þórs.
96. mín
Gult spjald
Bjarni Guðjón Brynjólfsson
Aron Birkir tekur markspyrnu.94. mín
Laus bolti inn á vítateig Þórs, Valdimar hleður í neglu, skotið í Birgi og aftur í Valdimar áður en hann flýgur aftur fyrir.
93. mín
Víkingur fær horn
Fyrirgjöf sem Einar Freyr skallar aftur fyrir.
Helgi með fasta spyrnu sem Aron Birkir slær til hliðar.
Víkingur á innkast.
Davið Örn með langt innkast, boltinn út á Helga sem á skot í varnarmann.
Helgi með fasta spyrnu sem Aron Birkir slær til hliðar.
Víkingur á innkast.
Davið Örn með langt innkast, boltinn út á Helga sem á skot í varnarmann.
91. mín
Sex mínútur í uppbót
Ná Víkingar að jafna?
90. mín
Það er spenna í loftinu!
Víkingar svara strax!
Daði Berg Jónsson (stoðsending: Davíð Örn Atlason )
Fyrirgjöf inn á vítateig Þórs frá Davíð og Daði stýrir boltanum í fjærhornið með skalla. Hans fyrsti leikur í rúmt ár!Það er spenna í loftinu!
88. mín
Einar Freyr kemur með boltann inn á teiginn og Gyrðir, í sínum fyrsta leik fyrir Þór, stangar þennan bolta í netið.
SÚ FRUMRAUN!!!!
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (stoðsending: Einar Freyr Halldórsson)
Gyrðir er búinn að vera gjörsamlega magnaður í dag.Einar Freyr kemur með boltann inn á teiginn og Gyrðir, í sínum fyrsta leik fyrir Þór, stangar þennan bolta í netið.
88. mín
Hársbreidd frá dauðafæri
Gyrðir með boltann fyrir utan teig Víkings, reynir að finna Sigfús Fannar en á síðustu stundu er boltanum potað aftur fyrir.
87. mín
Dúndrandi stemning í stúkunni
Heyrist mjög vel í stuðningsmönnum Þórs þessar mínúturnar.
703 í stúkunni, 100 meira en póstnúmerið.
703 í stúkunni, 100 meira en póstnúmerið.
86. mín
Aron Birkir þarf aftur aðhlynningu, annað skiptið í leiknum sem sjúkraþjálfari Þórs þarf að aðstoða markvörðinn.
85. mín
Laus bolti inn á vítateig Þórs sem Ásbjörn skallar aftur fyrir. Hornspyrna.
Föst spyrna inn að marki frá Helga, Aron Birkir nær ekki að grípa en það er brotið á honum og Twana flautar.
Föst spyrna inn að marki frá Helga, Aron Birkir nær ekki að grípa en það er brotið á honum og Twana flautar.
82. mín
Þór leiðir!
FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!!!
Ágúst Eðvald Hlynsson (stoðsending: Einar Freyr Halldórsson)
Einar Freyr með hornspyrnuna, boltinn fellur fyrir Ágúst á fjærstönginni, hann fer auðveldlega framhjá Valdimar sem hljóp út á móti, Ágúst lætur svo vaða, boltinn fer af höfðinu á Gunnari Vatnhamar og í netið á marki Víkings.Þór leiðir!
81. mín
Augnablikið með heimamönnum
Ágúst Eðvald vinnur hornspyrnu fyrir Þór.
80. mín
Vel gert úti vinstra megin hjá Þór. Sigfús Fannar endar svo í þvögu og reynir skot sem fer af varnarmanni og í hendur Ögmundar.
78. mín
Gunnar Vatnhamar!
Ágúst Eðvald finnur Sigfús inn á teignum og hann á tilraun en Gunnar nær að stíga fyrir og kemur í veg fyrir skot á mark af stuttu færi.
Bjarni Guðjón reynir svo skot en það fer í varnarmann.
Bjarni Guðjón reynir svo skot en það fer í varnarmann.
78. mín
Þórsarar í stúkunni orðnir vel pirraðir á Twana, finnst Víkingarnir vera að fá meira frá honum.
76. mín
Skalli rétt framhjá marki Þórs. Boltinn fór á fjærstöngina og ég sá ekki hver það var sem átti skallann sem fór framhjá af stuttu færi.
75. mín
Affi verst mjög vel gegn Sveini Margeiri.
Helgi á svo fyrirgjöf sem Aron Birkir nær ekki að halda inn á og Víkingur á horn.
Helgi á svo fyrirgjöf sem Aron Birkir nær ekki að halda inn á og Víkingur á horn.
74. mín
Gult spjald
Valdimar Þór Ingimundarson
Stöðvar Þórsara í hraðri sókn.74. mín
Ármann vinnur horn og Helgi tekur hornspyrnuna. Aron Birkir kýlir boltann í burtu.
72. mín
Gyrðir Hrafn með skot fyrir utan Víkings en það fer vel yfir mark gestanna.
72. mín
Hornspyrna frá Helga sem Ásbjörn hreinsar og Viktor á svo skot í varnarmann.
70. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtÞorri Ingólfsson
Fyrsti leikur Stígs síðan í fyrstu umferð deildarinnar
69. mín
Þrumuskot og frábær varsla.
Valdimar lætur vaða eftir sendingu frá Helga og það er þvílíkur sveigur á boltanum.
Þó þetta hafi farið tiltölulega beint á Aron þá er þetta frábær varsla hjá markmanni Þórs sem kveinkar sér og þarf aðhlynningu.
Þó þetta hafi farið tiltölulega beint á Aron þá er þetta frábær varsla hjá markmanni Þórs sem kveinkar sér og þarf aðhlynningu.
69. mín
Daði Berg vinnur hornspyrnu fyrir Víking.
67. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Flottur leikur hjá frændunum
67. mín
InnÁsbjörn Líndal Arnarsson
ÚtAron Einar Gunnarsson
Gyrðir er núna djúpur miðjumaður og Ásbjörn spilar með Affi í hjarta varnarinnar.
66. mín
Ármann Ingi gerir mjög vel að halda löngum bolta inn á vellinum. Hann sendir á Valdimar sem á skot með vinstri sem Affi skallar yfir mark Þórs.
Viktor Örlygur með hornið og Peter Ingi skallar í burtu.
Viktor Örlygur með hornið og Peter Ingi skallar í burtu.
64. mín
Fín skyndisókn hjá Þór, Kristófer reynir skot fyrir utan teig en það fer vel yfir mark Víkings.
62. mín
Gult spjald
Ágúst Eðvald Hlynsson
Lætur aðeins í sér heyra af því hann vill innkast og fær gult spjald. Þetta er svo mikið óþarfa spjald Twana! Það er ekki neitt í þessu.60. mín
Tilraun á mark
Bjarni Guðjón gerir vel úti vinstra megin, finnur Peter Inga sem á skot á mark Víkings, en það er laust og Ögmundur er í engum vandræðum með það.
60. mín
Víkingur spilar með smá golu í seinni hálfleiknum.
58. mín
Aron Einar leggst aðeins í grasið og þarf nokkrar sekúndur áður en hann stendur upp aftur.
56. mín
InnValdimar Þór Ingimundarson
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Daði færist inn á miðjuna og Valdimar spilar með Sveini frammi.
56. mín
InnGunnar Vatnhamar
ÚtRóbert Orri Þorkelsson
Tvöföld breyting
54. mín
Fannar Daði vinnur aukaspyrnu fyrir Þór eftir mikinn barning.
Róbert Orri sest niður og er núna að fara af velli. Öflugur leikmaður sem hefur verið mjög óheppinn með meiðsli.
Róbert Orri sest niður og er núna að fara af velli. Öflugur leikmaður sem hefur verið mjög óheppinn með meiðsli.
53. mín
Séns!
Helgi með flotta fyrirgjöf á Svein Margeir sem sneiðir boltann rétt framhjá fjærstönginni á marki Þórs.
52. mín
Fannar Daði brýtur á Daða og það er kallað eftir því að flautað sé í báðar áttir.
50. mín
Þorri finnur Helga á kantinum og hann á fyrirgjöf sem fer af Birgi og til Arons í markinu.
Ármann reynir svo að fara framhjá Kristófer en hann verst vel.
Ármann reynir svo að fara framhjá Kristófer en hann verst vel.
48. mín
Meiðsli?
Róbert Orri fær eitthvað högg og fer í jörðina. Leit ekki vel út og Gunnar Vatnhamar gæti verið að koma inn á.
Róbert Orri fær enga aðhlynningu og ætlar að halda áfram.
Róbert Orri fær enga aðhlynningu og ætlar að halda áfram.
47. mín
Ágúst Eðvald með fyrirgjöf en Róbert Orri kemst í boltann og Víkingar hreinsa.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Tvær breytingar á hvoru liði í hálfleik!
Gyrðir færist í miðvörðinn og Birgir fer í hægri bakvörðinn.
Gyrðir færist í miðvörðinn og Birgir fer í hægri bakvörðinn.
46. mín
InnDaði Berg Jónsson
ÚtAron Elís Þrándarson
46. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtTarik Ibrahimagic
46. mín
InnPeter Ingi Helgason
ÚtChristian Jakobsen
46. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtRagnar Óli Ragnarsson
45. mín
Daði Berg kominn í treyjuna
Daði gæti komið inn á strax í hálfleik. Það yrði hans fyrsti meistaraflokksleikur hans í rétt rúmlega ár vegna meiðsla.
Sýnist Helgi Guðjonsson líka vera að gera sig kláran að koma inn á.
Birgir Ómar Hlynsson er þá að gera sig kláran hjá Þór og Peter Ingi Helgason líka sýnist mér.
Sýnist Helgi Guðjonsson líka vera að gera sig kláran að koma inn á.
Birgir Ómar Hlynsson er þá að gera sig kláran hjá Þór og Peter Ingi Helgason líka sýnist mér.
45. mín
Tölfræðin í hálfleik
41% Boltahlutfall 58%
2 Skot 11
8 Snertingar í teig 18
205 Sendingar 289
0 Horn 3
30 Einvígi unnin 17
2 Skot 11
8 Snertingar í teig 18
205 Sendingar 289
0 Horn 3
30 Einvígi unnin 17
45. mín
Allt janft í hálfleik
Víkingar enduðu hálfleikinn nokkuð vel en framan af var jafnræði með liðunum.
Víkingar átt tilraunirnar til þessa og Þór enn ekki átt almennilegt skot á mark Víkings.
Víkingar átt tilraunirnar til þessa og Þór enn ekki átt almennilegt skot á mark Víkings.
45. mín
45+2
Tarik með fyrirgjöf sem Sveinn Gísli skallar framhjá.
Tarik með fyrirgjöf sem Sveinn Gísli skallar framhjá.
45. mín
Tekur Þorra niður, Ragnar Óli týnir boltanum og Aron Einar verður að stöðva Þorra sem hefði annars getað brunað í átt að marki Þórs.
Gult spjald
Aron Einar Gunnarsson
45+1Tekur Þorra niður, Ragnar Óli týnir boltanum og Aron Einar verður að stöðva Þorra sem hefði annars getað brunað í átt að marki Þórs.
45. mín
Greko í fínni stöðu en er alltof lengi að athafna sig við vítateig Víkings og með takmarkaðan stuðning.
Fannar Daði er svo brotlegur gegn Ármanni, fór af krafti í hann í skallaeinvígi.
Fannar Daði er svo brotlegur gegn Ármanni, fór af krafti í hann í skallaeinvígi.
43. mín
Ármann Ingi fer niður í vítateig Þórs, veik köll eftir vítaspyrnu en það var ekkert í þessu.
Gylfi fékk besta sénsinn í þessari sókn en Affi skallaði skot Gylfa, sem hann setti í grasið og í átt að marki Þórs, í burtu.
Dregið af Þórsurum síðasta korterið.
Gylfi fékk besta sénsinn í þessari sókn en Affi skallaði skot Gylfa, sem hann setti í grasið og í átt að marki Þórs, í burtu.
Dregið af Þórsurum síðasta korterið.
40. mín
Tarik í góðri stöðu við vítateig Þórs en Gyrðir truflar hann og Aron Birkir fær svo boltann.
39. mín
Það er eitthvað geggjað við það að sjá Gylfa og Aron í návígi. Gylfi fær innkastið eftir að Aron fór af krafti að félaga sínum í landsliðinu.
37. mín
Skalli rétt framhjá
Ármann Ingi vinnur hornspyrnu.
Víkingur verið ofan á síðustu mínútur.
Gylfi teiknar boltann á höfuðið á Aron Elís sem skallar framhjá nærstönginni.
Víkingur verið ofan á síðustu mínútur.
Gylfi teiknar boltann á höfuðið á Aron Elís sem skallar framhjá nærstönginni.
32. mín
Aron Birkir!
Viktor Örlygur gerir frábærlega inn á miðjunni og kemur boltanum út til hægri á Ármann Inga sem fer framhjá einum varnarmanni og reynir skot í fjærhornið en Aron Birkir ver frábærlega.
Víkingur á horn. Gylfi tekur hornið en brot dæmt á gestina.
Víkingur á horn. Gylfi tekur hornið en brot dæmt á gestina.
28. mín
Fyrir dýfu
Einar Freyr Halldórsson
Þetta fannst mér svolítið grimmt, en mögulega rétt. Einar reyndi að krækja í aukaspyrnu við vítateig Víkings en fékk ekki.27. mín
Ágúst Eðvald reynir að hlaupa Þorra og Svein Gísla af sér á sprettinum en lendir á vegg þegar Sveinn stígur fyrir hann, löglega.
25. mín
Aron Birkir ver
Víkingur vinnur fyrsta og annan boltann eftir hornspyrnu Gylfa og mér sýnist það vera Róbert Orri sem á tilraun með hægri fæti sem fer beint á Aron Birki og Þórsarar ná svo að hreinsa í burtu.
25. mín
Ármann Ingi með flotta fyrirgjöf en Ragnar Óli kemst í boltann og skallar aftur fyrir.
Víkingur fær horn.
Víkingur fær horn.
21. mín
Kristófer vinnur aukaspyrnu fyrir utan vítateigs Víkings. Vann boltann af Ármanni sem braut svo á honum.
Einar Freyr með fína fyrirgjöf en Þór nær ekki tilraun á markið.
Einar Freyr með fína fyrirgjöf en Þór nær ekki tilraun á markið.
20. mín
Víkingur vill víti
Sveinn Margeir með tvö skot, bæði í Affi sýndist mér. Víkingur vill fá hendi-víti eftir seinna skotið en ekkert er dæmt. Sýnist boltinn fara í höndina en sé ekki hvort hann fór aðeins í höfuðið á honum fyrst.
15. mín
Aron Einar með flotta sendingu inn fyrir en Ögmundur er vel á verði og sópar þetta í innkast.
13. mín
Það er góð orka í Þórsliðinu og fínasta stemning í áhorfendum.
11. mín
Aron Elís með flotta fyrirgjöf sem Sveinn Margeir nær ekki að skalla, Viktor Örlygur nær boltanum en er lengi að athafna sig og nær ekki skottilraun. Sóknin rennur svo út í sandinn.
9. mín
Virkilega gott spil hjá Þór. Einar Freyr er nálægt því að komast í skot en Gylfi gerir vel að stíga fyrir hann. Einar hefði kannski getað reynt að skjóta fyrr.
7. mín
Fyrsta tilraun Þórs
Bjarni Guðjón með skot fyrir utan teig sem fer í varnarmann. Fannar Daði nær til boltans og á skot af vítateigslínunni, skotið fer aðeins í varnarmann og Ögmundur grípur.
Aron Einar vann boltann í aðdragandanum eftir slaka sendingu Gylfa fyrir utan teig Víkings.
Aron Einar vann boltann í aðdragandanum eftir slaka sendingu Gylfa fyrir utan teig Víkings.
3. mín
Uppstilling Víkings
Ögmundur
Davíð - Róbert - Sveinn Gísli - Tarik
Ármann - Gylfi - Viktor - Þorri
Aron - Sveinn Margeir
Tveir örvfættir miðverðir.
Davíð - Róbert - Sveinn Gísli - Tarik
Ármann - Gylfi - Viktor - Þorri
Aron - Sveinn Margeir
Tveir örvfættir miðverðir.
2. mín
Uppstilling Þórs
Aron Birkir
Gyrðir - Ragnar - Affi - Kristófer
Aron
Ágúst - Einar - Bjarni - Fannar
Greko
Aron Einar djúpur.
Gyrðir - Ragnar - Affi - Kristófer
Aron
Ágúst - Einar - Bjarni - Fannar
Greko
Aron Einar djúpur.
1. mín
Fyrsta tilraun
Ármann með fyrirgjöf sem Sveinn Margeir kemst ekki almennilega í og skallinn ekki á rammann.
1. mín
Þór byrjar með boltann
Heimamenn sækja í átt að Glerá.
Aroni Einari vel fagnað þegar liðin voru kynnt til leiks.
Aroni Einari vel fagnað þegar liðin voru kynnt til leiks.
Fyrir leik
Víkingar eru að rótera slatta og Aron Einar hlýtur að koma með orku í þetta hjá Þór. Ég sé Víkinga setja svona 3 mörk og held að Þórsarar skori alltaf allavegana 1 á Heimavelli. Yfir 4 mörk er á stuðlinum 1,94 á Epic.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 18, 2026
Fyrir leik
Aron Einar hitar upp fyrir sinn fyrsta leik með Þór í tæp tvö ár

Fyrir leik
Stuðningsmenn Víkings mættir norður
Það eru held ég einhverjir 40-50 Víkingar mættir í veðurblíðuna og ætla styðja sína menn úr stúkunni.
Fyrir leik
Gylfi með bandið hjá Víkingi
Gylfi Þór Sigurðsson er með fyrirliðabandið hjá Víkingi í leiknum. Oliver Ekroth er fyrirliði liðsins en hann er hvíldur í dag.
Aron Birkir Stefánsson er með fyrirliðabandið hjá Þór. Aron Einar Gunnarsson fær þó væntanlega það hlutverk að ræða við dómarann ef til þess kemur.

Aron Birkir Stefánsson er með fyrirliðabandið hjá Þór. Aron Einar Gunnarsson fær þó væntanlega það hlutverk að ræða við dómarann ef til þess kemur.

Fyrir leik
Aron Einar byrjar og Sölvi gerir sjö breytingar
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Fram. Ásbjörn Líndal, Sverir Páll Ingason, Vilhelm Ottó og Sigfús Fannar taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Aron Einar Gunnarsson, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Fannar Daði Malmquist og Yann Affi.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir sjö breytingar á sínu liði frá leiknum í Ungverjalandi. Þeir Ögmundur, Gylfi Þór, Tarik og Sveinn Gísli byrja líkt og í Györ og þeir Þorri Ingólfsson, Sveinn Margeir Hauksson, Aron Elís Þrándarson, Viktor Örlygur Andrason, Davíð Örn Atlason, Róbert Orri Þorkelsson og Ármann Ingi Finnbogason koma inn í liðið.
Þorri er að spila sinn fyrsta leik í sumar en hann er sóknarmaður sem fæddur er 2009. Sveinn Margeir var kallaður úr láni hjá KA á fimmtudag og er mættur beint í byrjunarliðið. Róbert Orri er þá að spila sin fyrsta leik síðan í byrjun maí.
Helgi Guðjónsson og Valdimar Þór Ingimundarson taka sér sæti á bekknum en þeir Oliver Ekroth, Nikolaj Hansen, Óskar Borgþórsson, Daníel Hafsteinsson og Karl Friðleifur Gunnarsson eru ekki í hópnum. Daði Berg Jónsson, Stígur Diljan Þórðarson og Aron Snær Friðriksson eru á bekknum.

Sturlað veður á Akureyri
Það er að venju veðurblíða fyrir norðan, sólin er að kíkja á milli skýjanna, hreyfir ekki vind þessa stundina í Þorpinu og það er 19 gráðu hiti.
Fyrir leik
Spáir fjögurra marka útisigri
Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, er spámaður umferðarinnar. Hann spáir mjög öruggum útisigri.
Þór 0 - 4 Víkingur R. (16:00 í dag)
Eins leiðinlegt og það er að segja það þá eru Víkingar búnir að vinna deildina og ég sé ekkert lið taka stig af þeim. Þórsarar hafa líka verið í alvöru brasi og þetta er ekki leikur sem þeir hefðu viljað fá á þessum tímapunkti.

Víkingar mættir norður
Við erum mættir til Akureyrar. ?????? pic.twitter.com/AmsgwuTr6t
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) July 18, 2026
Fyrir leik
Upphitun í Hamri og miðasala fyrir leikinn gegn KA
Fyrir leik
Þórsarar alls ekki hættir á markaðnum
Þór hefur fengið tvo leikmenn inn í hópinn frá því að glugginn opnaði og segir þjálfari liðsins, Siggi Höskulds, að stefnan sé að fá 2-3 leikmenn til viðbótar inn í hópinn.
Fyrir leik
Sögulegur sigur Víkings í vikunni
Víkingur komst í fyrsta sinn í sögunni áfram úr 1. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni með sigrinum á Györ. Framundan hjá liðinu er einvígi gegn ísraelsku meisturunum í Hapoel Be'er Sheva. Fyrri leikurinn fer fram á Víkingsvelli á þriðjudagskvöld.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Twana Khalid Ahmed er með flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson.
Fjórði dómari er Bergvin Fannar Gunnarsson og dómaraeftirlitsmaður er Sverrir Gunnar Pálmason.

Fjórði dómari er Bergvin Fannar Gunnarsson og dómaraeftirlitsmaður er Sverrir Gunnar Pálmason.

Fyrir leik
Gamla landsliðsmiðjan gæti mæst í dag
Þeir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson voru algjörir lykilmenn í íslenska landsliðinu sem fór á EM 2016 og HM 2018.
Þeir gætu mæst á vellinum í dag.
Þeir gætu mæst á vellinum í dag.
Fyrir leik
Glugginn opinn
Félagaskiptaglugginn opnaði á fimmtudag og það eru tíðindi af báðum liðum.
Þór hefur fengið Aron Einar Gunnarsson frá Katar og Gyrði Hrafn Guðbrandsson á láni frá KR.
Víkingur hefur kallað Svein Margeir Hauksson úr láni frá KA, sent Davíð Helga Aronsson, sem var á láni hjá Keflavík, til Danmerkur og lánað Jóhannes Kristin Bjarnason til FH.

Botnliðið tekur á móti toppliðinu
Gestirnir úr Víkingi eru á toppi Bestu deildarinnar og hafa unnið alla leiki sína í deildinni frá því í 1. umferð. Víkingur kemur inn í leikinn eftir að hafa slegið út ungversku meistarana í Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar. Síðasta deildarleikur Víkings var gegn KA á heimavelli og endaði sá leikur með 3-2 endurkomu sigri þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma.
Heimamenn í Þór eru á botni Bestu deildarinnar, nýliðarnir eru án sigurs frá því í 3. umferð deildarinnar og koma inn í leikinn í dag eftir 6-1 tap gegn Fram á útivelli um síðustu helgi.
32 stig skilja liðin að.

Velkomin á VÍS völlinn!
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs og Víkings í Bestu deildinni. Leikurinn er liður í 15. umferð deildarinnar og verður flautað til leiks klukkan 16:00 á VÍS vellinum í Þorpinu á Akureyri.