Fotbolti.net
@fotboltinetÍvar Björgvinsson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
0 - 0
ÍR
ÍR
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Ekki náð að skora á heimavelli í yfir 300 mínútur

Hvað réði úrslitum?

Það var sama gamla sagan í Grindavík, 0-0 þriðja leikinn í röð á Grindavíkurvelli sem hlýtur að fara að nálgast einhvers konar met, eitthvað sem Víðir Sig þarf að kanna. Grindavík hefur ekki skorað mark á heimavelli í yfir 300 mínútur en í dag fengu þeir þó nokkur fín færi. Vilhelm sá til þess að gestirnir fengu ekki á sig mark, hann átti nokkrar mjög góðar vörslur en sömuleiðis var vörn Grindavíkur góð og því markalaust jafntefli niðurstaðan.

Bestu leikmenn

1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson

Átti nokkrar mjög góðar vörslur og sá til þess að ÍR-ingar héldu hreinu í dag.

2. Damir Muminovic

Var mjög góður í vörn heimamanna í markalausum leik. Alltaf mættur til að hreinsa til aftast og góður á boltann einnig.

Atvikið

Mjög erfitt að finna atvik sem stóð upp úr en skotfæri Inga Þórs á 78. mínútu var líklega það besta í leiknum. Gunnleifur kom boltanum inn á teiginn þar sem Ingi Þór náði að snúa og skjóta á markið en Vilhelm varði virkilega vel.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin breyta engu nema bara bæta sitthvoru stiginu á liðin í töflunni. Grindavík er áfram í 9. sæti og ÍR í því 10. Enn er langt bil í sætin fyrir ofan þar sem Grótta vann stórsigur á Ægi og bil niður í neðstu tvö sætin þar sem nýliðarnir eru með átta stig hvor.

Vondur dagur

Það átti enginn vondan dag, varnir og markverðir liðanna áttu flottan dag en enginn sóknarmaður var skúrkur þar sem engin dauðafæri litu dagsins ljós. Við látum skemmtanagildið fá "Vondur dagur" stimpilinn í dag en það bara virðast ekki geta komið mörk í Grindavík.

Dómarinn - 7

Ekkert hægt að setja út á Aðalbjörn sem þurfti svo sem ekki að taka neinar stórar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.