Leik lokið!
Leiknum lýkur með skoti frá ÍR
94. mín
Þetta er að renna út í sandinn
Grindvíkingar voru í frábærri stöðu en rangstaða dæmd á Rafael Victor.
93. mín
Bæði lið eru að reyna að sækja stigin þrjú þessar lokamínútur. Fram og til baka þessa stundina.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
89. mín
Grindavík!!
Frábær spyrna frá Lárusi inn á teiginn sem Damir skallar á nærstöngina mjög nálægt markinu en Vilhelm ver vel. Damir nær einnig frákastinu og neglir boltanum fyrir markið en ÍR-ingar ná að hreinsa.
86. mín
InnTareq Shihab
ÚtStefán Þór Pálsson
85. mín
Grindvíkingar eru að banka á dyrnar en er það of seint?
Fengu tvær hornspyrnur í röð og héldu góðri pressu á ÍR-ingum sem endaði með skoti frá Mikael Mána við teiginn en Vilhelm varða það virkilega vel.
83. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtGunnleifur Orri Gunnleifsson
82. mín
Gult spjald
Ágúst Unnar Kristinsson
Brýtur hressilega á Inga Þór við hliðarlínuna og fær réttilega gult spjald.81. mín
Gult spjald
Gunnleifur Orri Gunnleifsson
Brýtur á Halldóri á vallarhelmingi ÍR, svokallað pirringsbrot.78. mín
Ingi Þór!
Besta færi leiksins! Gunnleifur gerir vel og fer upp hægri kantinn en Ingi Þór fær boltann í miðjum teignum og skýtur en Vilhelm nær að blaka þessu yfir.
75. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
71. mín
Óliver Elís...
Með spyrnuna beint í vegginn og síðan tekur hann frákastið á lofti en það skot fer virkilega langt fram hjá marki Grindavíkur.
70. mín
Gult spjald
Stefán Jón Friðriksson
Brýtur af sér á hættulegum stað og uppsker gult kort.69. mín
Haraldur með skotið!
Loksins ná Grindvíkingar góðri sókn sem endar með skoti frá Haraldi en það fer rétt fram hjá markinu.
65. mín
InnRafael Alexandre Romao Victor
ÚtHeiðar Snær Ragnarsson
65. mín
InnSindri Þór Guðmundsson
ÚtChristian Bjarmi Alexandersson
65. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
62. mín
Rólegur seinni hálfleikurinn
ÍR-ingar hafa reynt nokkur skot fyrir utan teig og Grindvíkingar ekkert ógnað og enn bíðum við eftir marki.
61. mín
InnÍvan Óli Santos
ÚtArnór Sölvi Harðarson
61. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtOrri Bjarkason
55. mín
Hákon Dagur sestur niður og þarfnast aðhlynningar. Hann á oft erfitt með að haldast heill en vonandi er í lagi með hann.
50. mín
Orri að ógna aftur
Kemst í gott færi en Damir nær að kasta sér fyrir skotið og bjarga málunum.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Rólegum fyrri hálfleik lokið
Lítið um færi og leikurinn í miklu jafnvægi. Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
43. mín
ÍR-ingar tekið stjórnina
Gestirnir hafa haldið mun meira í boltann og náð að þrýsta Grindvíkingum aftar á völlinn síðustu tíu mínútur eða svo.
37. mín
Ingi Þór lendir í samstuði við Jón Arnar og vill fá víti en ekkert dæmt. Aðalbjörn stöðvar leikinn og Ingi þarf að fara útaf í mínútu en ekki Jón Arnar.
33. mín
Orri með skot úr fínu færi en Hjörvar Daði ver vel.
27. mín
Leikurinn kominn í mikið jafnvægi
Bæði lið skiptast á að halda í boltann en lítið er um færi.
23. mín
Enn ein hornspyrnan hjá Grindavík
Eysteinn með boltann inn á teiginn en þessi fer beint yfir allan pakkann og aftur fyrir endamörk.
19. mín
Orri Bjarkason fellur í teignum
ÍR-ingar vilja víti en Aðalbjörn ekki sammála því og leikurinn heldur áfram.
17. mín
Grindvíkingar hafa haldið mun meira í boltann og heilt yfir verið betri. ÍR-ingar virðast ætla að treysta á skyndisóknir.
8. mín
ÍR að ógna!
Klaufagangur inni á teig Grindavíkur, Arnór Gauti í smá veseni en Eysteinn bjargar þessu á endanum.
6. mín
Heimamenn ofan á þessar fyrstu mínútur
Frábær skalli frá Damir eftir hornspyrnu sem ÍR-ingar virðast bjarga á línu áður en Vilhelm handsamar boltann.
Grindavík betri þessar fyrstu mínútur.
Grindavík betri þessar fyrstu mínútur.
3. mín
Fyrsta hornpyrna leiksins
Grindvíkingar fá hana og Eysteinn kemur með góðan bolta inn á teiginn sem gestirnir skalla frá.
2. mín
Mikil þoka í Grindavík
Grámyglulegar aðstæður suður með sjó.
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Ray Anthony gerir tvær breytingar á liði Grindavíkur frá 1-2 sigrinum gegn Gróttu í síðustu umferð en út fara þeir Valur Þór Hákonarson og Sindri Þór Guðmundsson og inn í stað þeirra koma þeir Ingi Þór Sigurðsson og Heiðar Snær Ragnarsson.
Jóhann Birnir gerir hvorki meira né minna en fimm breytingar frá 5-1 skellnum gegn HK í síðustu umferð. Sigurður Karl, Hrafn Hallgríms, Emil Nói, Bergvin Fannar og Víðir Freyr fara allir úr byrjunarliðinu en inn koma Stefán Þór, Óliver Andri, Hákon Dagur, Jón Arnar og Arnór Sölvi.
Jóhann Birnir gerir hvorki meira né minna en fimm breytingar frá 5-1 skellnum gegn HK í síðustu umferð. Sigurður Karl, Hrafn Hallgríms, Emil Nói, Bergvin Fannar og Víðir Freyr fara allir úr byrjunarliðinu en inn koma Stefán Þór, Óliver Andri, Hákon Dagur, Jón Arnar og Arnór Sölvi.
Fyrir leik
Langt upp í næstu sæti
Grindavík og ÍR eru í 9. og 10. sæti, fjórum og fimm stigum fyrir ofan fallsæti en það er enn lengra upp í 8. sætið. Grótta er í 8. sæti með 19 stig en þar fyrir ofan er pakkinn nokkuð þéttur. Sigurvegari leiksins getur því aðeins komist nær miðjumoðinu en tap í dag og fallbaráttan blasir við.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin spiluðu við hvort annað í 3. umferð í Breiðholtinu og leiknum lauk með 2-2 jafntefli. ÍR komst í 2-0 í fyrri hálfleik eftir mörk frá Víði Frey og Emil Nóa. Rafael Victor skoraði svo úr vítaspyrnu um miðjan seinni hálfleik áður en Lárus Orri Ólafsson jafnaði metin á 90. mínútu og þar við sat.
Fyrir leik
Dómarateymið
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er dómari leiksins en honum til aðstoðar verða þeir Þráinn Jón Elmarsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður er Einar Örn Daníelsson.


Fyrir leik
ÍR
ÍR-ingar eru í 10. sæti með 12 stig, stigi minni en Grindvíkingar. ÍR hefur aðeins sótt tvö stig í síðustu fimm leikjum sínum en síðasti sigurleikur þeirra kom einnig gegn Gróttu en sá leikur var pilaður 17. júní, svo Breiðhyltingar telja eflaust vera kominn tími á næsta sigur.


Fyrir leik
Grindavík
Heimamenn hafa átt heldur rólegt tímabil en hafa þó aðeins verið að bíta frá sér í seinustu leikjum. Liðið tapaði 5-4 fyrir Njarðvík í rosalegum leik í 12. umferðinni og vann síðan 1-2 útisigur gegn Gróttu og náðu þar með að búa til smá bil niður í fallsætin tvö. Grindavík er með 13 stig eftir 13 leiki en liðið er í 9. sæti, fimm stigum fyrir ofan Völsung og Ægi sem eru í fallsætunum tveimur.


Fyrir leik
Stakkavíkurvöllur tekur á móti okkur!
Sæll öll sömul og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Grindavíkur og ÍR sem fer fram í Grindavík í 14. umferð Lengjudeildar karla.





Skýrsla væntanleg og ég segi bara takk fyrir mig.