Fotbolti.net
Besta deildin
Ívar Björgvinsson
Besta karla
Lambhagavöllurinn
Sólin skín
Fram
Fram
0 - 0
FH
FH
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Markalaust hér í Úlfarsárdalnum
Fínn leikur hjá báðum liðum og jafntefli nokkuð sanngjörn niðurstaða. Skýrsla og viðtöl væntanlega síðar í kvöld. Ég þakka fyrir mig.
93. mín
Þetta er að renna út í sandinn
Fyrirgjöf frá Kristófer sem er allt of há og fer aftur fyrir.
92. mín
Enn ein slök spyrnan sem er hreinsuð í burtu.
92. mín
Framarar fá horn
Vel spilað hjá Fram upp hægri kantinn og Ægir sækir hornspyrnu.
90. mín
Þrjár mínútur í uppbót
89. mín
Kristófer Konráðs!
Með gott skot hægra megin í teignum sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.

Fram fær horn. Fred með spyrnuna yfir allan pakkann.
82. mín
Framarar fara illa með frábæra stöðu!
Róbert Hauks sleppur inn fyrir upp hægri kantinn og er aleinn með Jakob Byström vinstra megin í teignum en sending hans þvert fyrir auðan teiginn er of föst of Byström nær ekki til boltans.
Voru bara tveir gegn Jökli og verða einfaldlega að gera betur.
Fram
79. mín
Gult spjald

Kennie Knak Chopart

Virtist vera fyrir tuð.
79. mín
Kjartan Kári aftur í færi!
Löng sending frá öftustu línu og Kjartan nánast sloppinn einn í gegn en skýtur fram hjá.
FH
79. mín
InnKristján Flóki Finnbogason
ÚtÚlfur Ágúst Björnsson
FH
79. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtAdolf Daði Birgisson
76. mín
Kjartan Kári!
Kemst í gott færi og er einn gegn Viktori í þröngu svæði, reynir að vippa yfir hann en Viktor ver vel.
72. mín
Arnór Borg!
Fær frábært skallafæri í miðjum teig Fram en nær ekki að setja boltann á markið. Mark frá öðru hvoru liðinu liggur í loftinu þessa stundina.
Fram
68. mín
InnJakob Byström
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
68. mín
Kennie skorar! En... rangstaða
Vel spilað hjá fred og Kennie en hann setur boltann í samskeytin og inn en dæmdur rangstæður um leið.
66. mín
Helgi Mikael...
Kennie á frábæra tæklingu á Arnór og tekur boltann, Helgi flautar nokkrum sekúndum seinna og dæmir aukaspyrnu við litla hrifningu stúkunnar.

Framarar voru að komast í fína stöðu. Mjög spes ákvörðun.
62. mín
Skot í stöngina!
Hornspyrna frá Kjartani Kára á nærsvæðið sem Ísak Óli nær að koma að marki en boltinn fer í nærstöngina.

Framarar keyra hratt upp völlinn og fá gott færi en boltinn endar aftur fyrir og hornspyrna hinum megin núna.
58. mín
FH-ingar sækja hratt
Haraldur tapar boltanum óg FH voru komnir í þrír á tvo stöðu þar sem Úlfur renndi boltanum á Kjartan Kára sem átti slakt skot yfir markið úr góðri stöðu.
Fram
58. mín
InnKristófer Konráðsson
ÚtMár Ægisson
54. mín
Framarar sækja
Halda boltanum í langan tíma og að lokum nær Ægir skalla á markið eftir góða sendingu frá Kennie en skallinn ekki fastur og beint á Jökul.
50. mín
Már með skotið!
Frábær sókn Framara sem endar með skalla út í teiginn frá Kennie sem Már er fyrstur á en nær ekki nægilega föstu skoti og Jökull ver þetta örugglega.
47. mín
Úlfur Ágúst í dauðafæri!
Boltinn dettur dauður fyrir hann í miðjum teig Framara og hann er aleinn en setur hann yfir markið.

Besta færi leiksins!
FH
46. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtGils Gíslason
Ein hálfleiksskipting hjá gestunum.
46. mín
Framarar hefja síðari hálfleikinn
45. mín
Svipmyndir úr fyrri hálfleiknum
Hafliði vopnaður myndavél er á svæðinu og tók eftirfarandi myndir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik
Frekar bragðdaufur fyrri hálfleikur þar sem ekki var mikið um færi. Vonumst eftir skemmtilegri seinni hálfleik.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Bjargað á línu!
Sigurjón Rúnarsson með góðan skalla eftir hornspyrnu frá Haraldi en FH-ingar bjarga á línu.
45. mín
Már sækir horn
Virtist ætla að koma með fyrirgjöf en endar sem skot uppi í nærhornið sem Jökull ver en nær ekki að halda inni.

Framarar fá aðra hornspyrnu í kjölfarið.
45. mín
Tvær mínútur í uppbót
42. mín
Oliver mættur aftur inn á völlinn
Virðist vera í lagi með hann.
41. mín
Besta færi leiksins!
Frábær bolti fyrir markið frá Fred sem Róbert Hauks nær að skalla í átt að marki úr aðeins erfiðri stöðu en boltinn fer rétt fram hjá.
40. mín
Oliver staðinn upp
Draghaltur röltir hann út af á meðan bæði lið taka leikhlé með þjálfurunum.
38. mín
Oliver liggur eftir
Hann heldur um hnéð á sér og búið er að kalla á sjúkraþjálfara. Framarar fengu alvöru færi en Jói Bjarna bjargaði málunum.
36. mín
Freyr með skot fyrir utan teiginn
Fín sókn hjá Fram sem endar með skoti frá Frey sem fer af varnarmanni og í fangið á Jökli.
30. mín
Fram fær horn
Már með frábæran bolta á fjærsvæðið þar sem Róbert var nálægt því að stanga hann inn en Ísak Óli gerir vel og skallar aftur fyrir.
29. mín
Kennie í færi
Jói Bjarna tapar boltanum á vondum stað og Kennie fær frábært skotfæri við teig FH en skot hans fer rétt fram hjá markinu.
25. mín
Vuk hársbreidd frá boltanum!
Frábær sókn hjá Fram. Fred fer upp vinstri kantinn og rennir boltanum fyrir markið þar sem Vuk var einn og óvaldaður en rétt svo missir af boltanum og nær ekki að setja hann í autt markið.
19. mín
Fram að setja alvöru pressu!
Fengu nokkur góð færi á sömu mínútunni! Fyrst fékk Ægir afbragðsfæri eftir horn en skoti hans var komið í burtu en þeir héldu pressunni og Freyr náði góðu skoti sem fór í varnarmann og lak til Jökuls í markinu.

Það besta frá Fram hingað til.
18. mín
Vel gert hjá Má!
Fer léttilega fram hjá Baldri Kára og fær boltann aftur frá Fred og kemur með hættulega sendingu inn á teiginn sem hreinsað er í horn.
15. mín
Hætta á teignum!
Langt innkast frá Oliver sem endar hjá Gils sem tekur skot í varnarmann og rétt fram hjá.

FH heldur pressunni lengur en ná ekki að koma boltanum á markið.
12. mín
Már Ægisson með góða takta
Gerir vel og kemur sér í skotfæri rétt fyrir utan teiginn en skot hans fer yfir markið.
11. mín
Rólegar fyrstu tíu
Bæði lið að koma sér inn í leikinn hægt og rólega.
5. mín
FH-ingar ógna
Úlfur Ágúst gerir vel á hægri kantinum og kemur með góða sendingu þvert yfir á Gils sem missir boltann aðeins of langt frá sér og Viktor Freyr nær til boltans.
3. mín
Viktor Freyr í marki Framara er búinn að henda upp Fram derhúfu þar sem sólin skín afar sterkt.
1. mín
Leikur hafinn
FH-ingar hefja leik
Fyrir leik
Liðin ganga út á völlinn
Stúkan tekur við sér og allt að verða klárt fyrir alvöru fótboltaleik í sólinni!
Fyrir leik
Stórkostlegt sumarkvöld í Úlfarsárdalnum
Dalur draumanna býður okkur upp á frábært sumarveður á þessu fallega sunnudagskvöldi. Sólin skín skært, lítill sem enginn vindur og 16 gráður á mælinum.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Jói Kalli gerir eina breytingu frá síðasta leik en hann Tómas Orri er í banni eftir sjö gul spjöld í deildinni.

Rúnar gerir tvær breytingar frá síðastu umferð þar sem liðið vann 3-2 útisigur á Val.

Fyrir leik
Gleiðfréttir fyrir heimamenn
Stuðningsmenn Fram fá gleðifréttir rétt fyrir leik.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin spiluðu skemmtilegan leik í 5. umferðinni sem lauk með 3-4 útisigri Framara. FH var 3-1 yfir í hálfleik en mark frá Þorra og tvö frá fyrirliðanum, Kennie Chopart, sneru dæminu við og FH-ingar fóru á koddann með ekkert úr þessum leik.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Dómarateymið
Evrópufarinn Helgi Mikael Jónasson er aðaldómari leiksins en honum til aðstoðar eru þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari er Jóhann Ingi Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
FH taplausir í síðustu sex
Þrátt fyrir að FH-ingar hafi ekki tapað leik síðan í maí er liðið enn í fallsæti. FH hefur unnið tvo leiki og gert fjögur jafntefli í síðustu sex leikjum en í fyrstu níu leikjum deildarinnar fékk liðið aðeins tvö stig. FH hefur haldið hreinu í síðustu tveimur leikjum, í sigri á Val og í síðustu umferð jafntefli gegn Blikum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Framarar frábærir á tímabilinu
Liðið er í 3. sæti deildarinnar en með sigri fer liðið upp fyrir KR og verða þá sjö stigum á eftir toppliðinu Víkingum. Fram hefur náð í 33 stig í 15 leikjum en liðið hefur aðeins tapað tveimur leikjum í mótinu, gegn botnliði Þórs úti og gegn toppliði Víkings á heimavelli. Fram hefur sótt 10 stig í síðustu fjórum, eftir 0-5 skellinn gegn Víkingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lambhagavöllurinn heilsar!
Sæl öll og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Fram og FH í 16. umferð Bestu deildar karla sem fer fram í Úlfarsárdalnum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.