Fyrir leik
Innbyrðis viðreign
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Við fengum Mattías Kjeld, sem hefur slegið í gegn með Gróttu í sumar, til að spá í spilin fyrir 16. umferð Bestu deild karla.

Breiðablik 3 - 1 ÍBV
Breiðablik mættir heim á gervigrasið sitt og vinna góðan 3-1 sigur þar sem Arnar Bjarki tryggir sigurinn í blálokinl. Síðan er spurning hvort Bjartur Orri fái að snerta völlinn eftir meiðsli á ökla, þá verður þetta bara svindl.

Breiðablik
Breiðablik hafa verið að harka inn öflugum stigum síðustu vikur þrátt fyrir að þykja kannski ekki endilega mjög sannfærandi með sinni spilamennsku. Þeir hafa sótt tíu stig af síðustu fimmtán mögulegum.
Breiðablik gerði markalaust jafntefli í síðustu umferð gegn FH.

Breiðablik gerði markalaust jafntefli í síðustu umferð gegn FH.

Fyrir leik
ÍBV
Eyjamenn hafa verið á ágætis róli síðustu vikur og sótt átta stig af síðustu fimmtán mögulegum, aðeins tapað einum leik af síðustu fimm.
Í síðustu umferð gerðu þeir 2-2 jafntefli við KA á Akureyri þar sem Vicente Valor tókst að jafna leikinn fyrir Eyjamenn einum færri eftir að Omar Sowe hafði fengið að líta líta rauða spjaldið.

Þriðja liðið
Jóhann Ingi Jónsson fær það verkefni að munda flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Ragnar Þór Bender og Ronnarong Wongmahadthai.
Fjórði dómari er Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson og eftirlitsmaður KSÍ er Egill Már Markússon.

Fjórði dómari er Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson og eftirlitsmaður KSÍ er Egill Már Markússon.

Fyrir leik
Velkomin á Eikarvöllinn!
Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Breiðabliks og ÍBV sem fram fer á Eikarvellinum í Kópavogi.

Breiðablik hafa 42 sinnum hrósað sigri.
ÍBV hafa 32 sinnum hrósað sigri.
Liðin hafa þá skilið jöfn 20 sinnum.