SKÝRSLAN: Markaþurrð í bæjarslagnum
Hvað réði úrslitum?
Það einfaldlega vantaði herslumuninn hjá báðum liðum þegar kom að því að skapa opnanir og dauðafæri. Siggi Höskulds hafði orð á því að sitt lið hefði ekki haft lappir í að sækja þetta torsótta sigurmark og það er ágætis lýsing á því sem að fram fór inná vellinum. KA menn geta nagað sig í handarbökin að hafa ekki nýtt yfirburði sína í fyrri hálfleik.
Bestu leikmenn
1. André Römer (KA)
Öruggur í öllum sínum aðgerðum og kemur með gríðarleg gæði inni á miðju KA.
2. Einar Freyr Halldórsson (Þór)
Ofboðslega hæfileikaríkur leikmaður. Hreinlega neita að trúa því að hann verði hér á Íslandi á næsta tímabili.
Atvikið
Það er erfitt að velja í leik þar sem að fátt var um fína drætti sóknarlega. Það hefði sprengt þakið af stúkunni ef að Jakob Héðinn hefði farið betur að ráði sínu eftir um það bil 20 sekúndna leik, þegar hann slapp inn fyrir vörn Þórs en hann tók kolranga ákvörðun gegn Aroni Birki.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn sitja í 9 .sæti með 15 stig, þremur stigum meira en grannarnir í Þór. KA menn fara næst til Keflavíkur og eiga þar harma að hefna. Þórsarar sitja á botni Bestu-deildarinnar og eiga heimaleik gegn Blikum í næstu umferð.
Vondur dagur
Leikurinn var kannski ekki nein stórkostleg auglýsing fyrir frábæran sóknarleik, en ekkert vantaði uppá baráttuna.
Dómarinn - 8
Þórður hafði góð tök á leiknum að mínu mati. Tækling Affi á Hallgrím Mar verðskuldaði mögulega einhverskonar refsingu, en annars flottur í dag.




