SKÝRSLAN: Breiðablik vann vel fyrir þremur stigum í kvöld
Hvað réði úrslitum?
Það var þokkalegasta jafnræði með liðunum í dag og þurfti eitthvað sérstakt til þess að skera úr um sigurvegara. Það sérstaka kom frá Breiðablik sem náði inn góðu sigurmarki sem skildi á milli. Leikurinn sem slíkur verður sennilega ekki endursýndur á mörgum heimilum í bráð en Breiðablik gerði það sem þurfti gegn öflugu liði ÍBV.
Bestu leikmenn
1. Hlynur Freyr Karlsson (Breiðablik)
Var feykilega öflugur á miðjunni hjá Breiðablik í kvöld. Vann sín návígi og mikil barátta í honum sem smitaði út frá sér.
2. Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Skoraði markið sem skildi á milli og átti einnig hættulegar fyrirgjafir í leiknum sem voru ekki langt frá því að skila marki. Jónatan Guðni Arnarsson fær líka shout hérna en þa var virkilega gaman að fylgjast með honum á boltanum sérstaklega í fyrri hálfleik.
Atvikið
Markið fær að vera atvik leiksins. Vel spilað hjá Breiðablik og þeir finna Ágúst Orra í teignum sem er í frábæru færi en lætur verja frá sér fyrsta skotið en hættir ekki og nær frákastinu og skilar því svo með ákveðnum krafti í nærhornið í þröngri stöðu.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik fer í 29 stig og eru nú fimm stigum á eftir Fram í 3. sæti deildarinnar. ÍBV sitja áfram í 8. sætinu með 16 stig, þremur stigum frá eftir hlutanum.
Vondur dagur
Það er ekkert nafn sem poppar upp í hugan yfir einhvern sem átti sérstaklega slæman dag. Eina sem ég man eftir er að Róbert Elís fékk eina stöðu sem hann hefði geta farið betur með sóknarlega fyrir ÍBV svo ef ég verð að setja einhvern hérna þá vel ég það tiltekna móment frekar en hann kannski.
Dómarinn - 8
Fínasta frammistaða hjá teyminu í dag. Í fljótu bragði dettur mér ekkert í hug sem hægt er að setja sérstaklega út á teymið. Einstaka brot sem hefði mátt flauta á og sömuleiðis sleppa en það var það lítið að það varla er hægt að telja það.




