Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Tammelan Stadion
24 gráður og sól
Ilves
Ilves
7 - 5
Stjarnan
Stjarnan
Samtals 7 - 6
Jesse Kilo 52'1 - 01 - 1107' Faris Krkalic (sjm) Tatu Miettunen 113'2 - 1121' Andri Rúnar Bjarnason (misnotað víti)Roope Riski (víti) 121'3 - 13 - 2121' Guðmundur Baldvin Nökkvason (víti) Anton Popovitch (víti) 121'4 - 24 - 3121' Jóhann Árni Gunnarsson (víti)Lauri Ala-Myllymäki (víti) 121'5 - 35 - 4121' Árni Vilhjálmsson (víti) Elias Tamminen (víti) 121'6 - 46 - 5121' Daníel Finns Matthíasson (víti) Jardell Kanga (víti) 121'7 - 5
Dómari: Mervan Bejtullahu (Kósóvó)

SKÝRSLAN: Grátlegt tap í Finnlandi

Hvað réði úrslitum?

Ilves var heilt yfir betra liðið í leiknum, mun meira með boltann og átti lengri skorpur en Garðbæingar. Það var eiginlega bara korter í fyrri hálfleik þar sem Stjarnan var ofan á. Ilves lenti undir í einvíginu þegar skot Bjarka Haukssonar endaði í netinu en heimamenn náðu að svara of fljótt og voru hársbreidd frá því að klára leikinn áður en farið var í vítaspyrnukeppni.

Bestu leikmenn

1. Gustav Kjeldsen (Stjarnan)

Hentar honum vel þegar Stjarnan þarf að verjast og mér fannst hann öruggur í öllum sínum aðgerðum.

2. Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)

Taktar inn á miðsvæðinu, fín skot og heilt yfir flottur í leiknum.

Atvikið

Fyrsta víti vítaspyrnukeppninnar, Andri Rúnar var lesinn af Faris í marki Ilves sem átti góða skutlu og var það munurinn þegar uppi var staðið.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er úr leik og mætir næst Val í Bestu deildinni. Ilves mætir króatíska liðinu Rijeka í 3. umferðinni.
Niðurstaðan er vonbrigði þar sem þetta Ilves lið er ekki frábært.

Vondur dagur

Emil Atlason. Ég set hann einfaldlega hér af því mér finnst hann eiga að geta gert andstæðingum á þessu kaliberi erfiðara fyrir en hann gerði í dag. Gerði nokkrum sinnum vel en var ekki með yfirburðina sem ég vonaðist eftir að myndu hjálpa Stjörnumönnum í að byggja upp sóknir og í leiknum öllum. Ef ég er grimmur þá hefði ég líka viljað sjá Árna Snæ ná lengra út í hornin í vítaspyrnukeppninni, var ekki sannfærandi.

Dómarinn - 7

Fínn heilt yfir, mjög tæpur rangstöðudómur í restina sem kom þessu í vítaspyrnukeppni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.