Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
AVIS völlurinn
Fallegt veður í Laugardalnum, Sólin skín og um 15 gráður
Vestri
Vestri
1 - 1
RFS
RFS
Samtals 2 - 5
Þórður Gunnar Hafþórsson 12'1 - 01 - 116' Mamadou Sylla
Dómari: Menelaos Antoniou (Kýpur)
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Evrópuævintýri Vestra á enda

Hvað réði úrslitum?

Miðað við hvernig leikurinn spilaðist kom engum á óvart að leikurinn hafi endað með jafntefli. Vestri skoraði fyrsta mark leiksins en stuttu eftir jafnaði RFS. Eftir það stjórnaði RFS leiknum og héldu rólegu tempói og gerðu vel að sigla þessu heim án þess að gera þetta spennandi. Vestri átti hins vegar flottan leik og spilaði góðan varnarleik og gáfu fá færi á sig.

Bestu leikmenn

1. Þórður Gunnar Hafþórsson

Þórður skorar eina mark Vestra og á þann áfanga að vera eini markaskorari Vestra í Evrópukeppnum. Þórður var einnig sprækur fram á við í leiknum.

2. Birkir Eydal og Gunnar Jónas Hauksson

Birki og Gunnar voru saman á miðju Vestra í dag og skiluðu góðu dagsverki, þeir voru út um allan völl og unnu vel inn á miðjunni í dag.

Atvikið

Það er mark Vestra. Fyrsta og eina skiptir sem Vestri komst yfir í Evrópuleikjum sumarsins og þótt að það var ekki langur tími þá var gaman að sjá þá ná forustu.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega það að Vestri er úr leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar og RFS fara áfram í þriðju umferð og mæta Jablonec frá Tékklandi.

Vondur dagur

Strahinja Rakic miðjumaður RFS fær þennan stimpil, hann missti boltann illa í uppspili RFS og úr því varð mark Vestra.

Dómarinn - 7

Flott frammistaða hjá Kýpverjunum, ekki erfiðasti leikur í heimi en þeir gerðu sitt starf vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.