Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
0 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Fyrir leik
Bæði lið með nýjan þjálfara
Fyrr á mótinu spiluðu liðin á heimavelli Stjörnunnar, Samsungvellinum, þá voru bæði lið með annan þjálfara. Valur var með Hemma Hreiðars og Stjarnan með Jökul Elísabetarson. Valur vann leikinn 2-4, Andri Rúnar skoraði bæði mörkin fyrir Stjörnuna, en fyrir Val skoruðu Lúkas Logi, Tryggvi og Bjarni Mark.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan tapaði í vító
Stjarnan var nálægt því að komast líka áfram, en liðið tapaði í vító gegn Ilves í Finnlandi. Stjarnan vann fyrri leikinn 1-0 en seinni fór 2-1 fyrir Ilves og eftir 120 mínútur þá þurfti að fara í vító. Ilves skoraði úr öllum sínum vítaspyrnum, en Stjarnan klikkaði á einu og það var hann Andri Rúnar. Stjörnumenn eru þá dottnir úr Evrópu og þurfa núna að setja allan fókusinn á deildina sem líka hefur ekki gengið vel. Í síðustu umferð heimsótti Stjarnan Skagann, en sú ferð gekk frekar illa þar sem Stjarnan tapaði 5-1.

Fyrir leik
Tryggvi og Schram senda Val áfram í Evrópu
Valur sigraði Zrinjski Mostar í Sambandsdeildinni, eftir að hafa unnið fyrsta leikinn 1-0 á heimavelli gerði Valur 2-2 jafntefli á útivelli. Zrinjski Mostar byrjaði vel með því að skora úr víti en Tryggvi skoraði tvö fyrir lok fyrri hálfleiks, Pedersen með báðar stoðsendingar. Á 75 mínútu jafnaði Zrinjski Mostar og seinna fengu þeir víti, en Frederik Schram varði vítið og Valur tekur á móti Nordsjælland á 6. ágúst.



Tryggvi Hrafn sló markamet Hermanns Gunnarssonar hjá Val í Evrópumótum karla. Valsmenn eru líka komnir áfram í Evrópukeppni í sjöunda skipti í sögu félagsins. Meira er hægt að lesa um það hér.

Fyrir leik
Umferðin
Laugardagur 1. ágúst
14:00 ÍBV - Fram

Sunnudagur 2.ágúst
14:00 ÍA - Víkingur

Þriðjudagur 4.ágúst
18:30 Þór - Breiðablik

Miðvikudagur 5.ágúst
18:00 Keflavík - KA
19:15 FH - KR

Fyrir leik
Besta Deildin heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin með okkur á Hlíðarenda. Tvö evrópulið, líklega þreytt, mætast í vonandi skemmtilegum leik. Þetta er 17. umferðin í Bestu Deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.