SKÝRSLAN: Evrópuþynnka á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Yfir 90 mínútur var Stjarnan betra liðið en Valur á köflum náði að taka smá yfir, sérstaklega fyrir seinna mark Valsmanna en eftir það pakkaði Valur í vörn og þá keyrði Stjarnan á þá og unnu leikinn. Stjarnan átti þetta skilið.
Bestu leikmenn
1. Benedikt V. Warén
Mark og stoðsending. Fyrir utan það var hann lang hættulegastur af öllum leikmönnum Stjörnunnar. Hann á þetta skilið.
2. Örvar Eggertsson
Sigurmarkið í dag, var að koma með flottar fyrirgjafir inn í teig og ,,when it mattered" þá var hann þarna og skoraði,
Atvikið
Eftir seinna mark Vals, þá fer Valur í vörn og loka henni. Stjarnan tekur þá alveg yfir leikinn og enda á því að vinna hann. Valur reyndi ekki mikið eftir seinna mark sitt.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er í áttunda sæti, með tapi voru þeir nálægt því að komast í fallsæti. Valur er enn í fimmta sæti, þrátt fyrir að Brazell hefur ekki unnið leik í deildinni með þeim.
Vondur dagur
Emil Atla átti að vera með tvennu í fyrri hálfleik, eitt dauða dauðafæri á 5. mínútu þar sem hann kemst 1v1 gegn Schram en vippar yfir hann og fram hjá markinu. Stuttu seinna fær hann góðan skalla sem var æfingabolti fyrir Schram, við höfum séð betra frá honum. Birnir gerði líka mjög lítið í dag, fékk nokkur færi sem hann skaut yfir markið.
Dómarinn - 6
Stjörnubekkurinn var ósáttur út í þriðja liðið, það voru nokkrir dómar sem voru skrýtnir, það hafði ekki mikil áhrif á leikinn samt.




