Fyrir leik
Evrópu-Vestramenn
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins í dag er Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson, honum til halds og trausts eru Kári Mímisson og Breki Sigurðsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Lúðvík Þorgeirsson.


Fyrir leik
Lengjudeildinn heilsar á frídegi verslunarmanna!
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Vestra og Gróttu í 16. umferð Lengjudeildar karla. Leikurinn hefst á slaginu 14:00 og ver frma á Kerecisvellinum á Ísafirði.





Vestri situr í 7. sæti Lengjudeildarinnar þegar 16. umferðir eru liðnar af tímabilinu. Liðið hefur ekki unnið leik í deildinni í rúmar fimm vikur og leikirnir milli Evrópuleikja hafa verið mikið bras. Þeir leikir fóru 2-5 fyrir Fylki og 6-2 fyrir HK, svo ljóst er að Vestri þurfa aðeins að stíga upp í deildinni og Elmar Atli fyrirliði Vestra er sammála að því.
„Núna verðum við að setja þetta í baksýnisspegilinn, þetta er búið í bili, við þurfum aðeins að girða okkur í brók í deildinni og það byrjar á mánudaginn". Sagði Elmar Atli í samtali við Fótbolta.net.