SKÝRSLAN: Ljónheppnir FH-ingar neita að tapa
Hvað réði úrslitum?
Færanýting KR var ekki nægilega góð í kvöld. Liðið hélt áfram að spila sinn leik, spilaði skemmtilegan bolta og opnaði FH vörnina. En inn vildi boltinn ekki og FH-ingar mega m.a. þakka Jökli fyrir það. Heimamenn sýndu karakter og það sást bersýnilega hvað þeir nutu þess að verja markið sitt, það skal þó taka það fram að heppnin var með þeim í liði í dag
Bestu leikmenn
1. Jökull Andrésson (FH)
Jökull átti enn eina sýninguna í marki FH. Gestirnir létu svo sannarlega á hann reyna en Jökull var virkilega góður í dag.
2. Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Kjartan var líklega að leika sinn síðasta leik í FH-treyjunni í einhvern tíma. Hann skoraði jöfnunarmark leiksins og var alltaf hættulegur þegar hann fékk boltann.
Atvikið
KR fær virkilega gott færi mínútu eftir að liðið komst yfir. Aron rennir boltanum í gegn á Eið en Jökull ver skot hans. Þá fær Aron frákastið en varnarmenn FH komast í skot hans. Þarna hefðu gestirnir líklega getað klárað leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
KR er enn í þriðja sæti deildarinnar, með 36 stig. FH er nú taplaust í 8 leikjum í röð og en er þó í botnsæti deildarinnar, með 14 stig. Það er þó stutt upp, liðið er til að mynda fimm stigum frá Val sem er í efra skiltinu.
Vondur dagur
Færanýting KR var slök í dag. Markaskorarinn Luke Rae fékk nóg af færum í dag. Xg hans var hærra en allt FH liðið til samans og á eðlilegum degi hefði Luke verið með þrennu í dag.
Dómarinn - 6
Sigurður var fínn í dag. Mér fannst hann stundum klikka í smávægilegum atriðum en KR-ingar vildu víti undir lok leiks sem Sigurður dæmdi réttilega ekki.



