Fyrir leik
Byrjunarliðin - Alghoul ekki með eftir uppákomu á æfingu
Fyrir leik
Komnir
Alpha Conteh keyptur frá Stjörnunni (var á láni)
Farnir
Davíð Helgi Aronsson á láni til Lyngby (var á láni frá Víkingi)
Guðjón Pétur Stefánsson í Leikni
Edon Osmani í Víði
Komnir/Farnir hjá Keflavík í sumarglugganum

Komnir
Alpha Conteh keyptur frá Stjörnunni (var á láni)
Farnir
Davíð Helgi Aronsson á láni til Lyngby (var á láni frá Víkingi)
Guðjón Pétur Stefánsson í Leikni
Edon Osmani í Víði
Fyrir leik
Komnir
Adam Ægir Pálsson frá Val
Andre Römer frá Danmörku
Bjarki Fannar Helgason frá Völsungi (var á láni)
Óskar Arnór Morales Einarsson frá Danmörku
Farnir
Sveinn Margeir Hauksson í Víking (var á láni)
Breki Hólm Baldursson í HK (á láni)
Komnir/Farnir hjá KA í sumarglugganum

Komnir
Adam Ægir Pálsson frá Val
Andre Römer frá Danmörku
Bjarki Fannar Helgason frá Völsungi (var á láni)
Óskar Arnór Morales Einarsson frá Danmörku
Farnir
Sveinn Margeir Hauksson í Víking (var á láni)
Breki Hólm Baldursson í HK (á láni)
Fyrir leik
Gríðarlega mikilvægur leikur framundan!
Það er verið að fara að berjast um gríðarlega mikilvæg stig í kvöld. Heimamenn í Keflavík eru í sjöunda sæti deildarinnar með 19 stig. KA er í tíunda sæti með 15 stig og er markatölunni frá fallsæti. Það er rosalega þéttur pakki í neðri hlutanum og mörg lið hreinlega í fallbaráttu.


Fyrir leik
Keflavík vann viðureign þessara liða á Akureyri fyrr í sumar
Fyrir leik
Leikurinn hefst klukkan 18:00 og dómari leiksins verður Twana Khalid Ahmed. Birkir Sigurðarson og Guðmundur Ingi Bjarnason eru aðstoðardómarar og Elías Ingi Árnason er á skiltinu.
Twana með flautuna

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og dómari leiksins verður Twana Khalid Ahmed. Birkir Sigurðarson og Guðmundur Ingi Bjarnason eru aðstoðardómarar og Elías Ingi Árnason er á skiltinu.
Fyrir leik
Velkomin með okkur til Keflavíkur!
Keflavík og KA mætast í 17. umferð Bestu deildarinnar en umferðinni lýkur í kvöld. Klukkan 19:15 mætast FH og KR í Krikanum.






Fótbolti.net fjallaði um það í síðustu viku að leikmaður Keflavíkur hefði nefbrotnað á æfingu liðsins eftir að hafa fengið högg í andlit frá liðsfélaga sínum. Samkvæmt heimildum var Alpha Conteh ögrað og brást hann við með því að slá Muhamed Alghoul. Conteh er á sínum stað í liði Keflavíkur en Muhamed Alghoul er ekki í hópnum og ekki heldur bróðir hans, Halid Alghoul.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir eina breytingu frá tapinu gegn Víkingi fyriir tæpum tveimur vikum síðan. Eiður Orri Ragnarsson kemur inn í liðið og Marin Mudrazija tekur sér sæti á bekknum.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Þór fyrir níu dögum síðan. Birgir Baldvinsson og Jeppe Pedersen snúa til baka úr banni og Valdimar Logi Sævarsson kemur einnig inn í liðið. Kári Gautason og Danijel Dejan Djuric taka sér sæti á bekknum en Jakob Snær Árnason tekur út leikbann.