Leik lokið!
+3
ÞÞÞ flautar til leiksloka. Ég hugsa að bæði lið séu ósátt með niðurstöðuna, þar sem mörg góð færi fóru í súginn báðum megin. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í dag.
90. mín
DAUÐAFÆRI!
Stefán Þórður í frábæru færi en skýtur í varnarmann og framhjá. Ekkert varð úr horninu.
89. mín
HÆTTA!
Magnús Þórðarson kemst upp að endamörkum og kemur með hættulegan bolta sem Guðmundur kemst í.
88. mín
Caden og Viktor Orri skella saman
Þeir þurfa báðir aðhlynningu.
86. mín
Frábær varsla!
Aron Snær kemst framhjá Caden og nær skoti sem Guðmundur ver frábærlega.
84. mín
Vilhjálmur Kaldal með skot
Hann nær fínu skoti sem Guðmundur ver í markinu.
82. mín
Björgvin Brimi!
Björgvin kemst á hægri löppina og kemur með fast skot sem Þórhallur ver í innkast.
80. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtNökkvi Már Nökkvason
80. mín
InnJakob Ocares Kristjánsson
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
79. mín
Bakhrinding
Brynjar Gautur Harðarson
78. mín
Hætta!
Björgvin Brimi með góða sendingu sem er ætluð Mattías Kjeld. Hann nær þó ekki til boltans og Þróttarar fá innkast.
77. mín
Illa farið með gott færi!
Aron Snær leggur boltann út á Vilhjálm Kaldal sem hittir ekki boltann nægilega vel og Guðmundur Rafn handsamar hann í markinu.
73. mín
Vilhjálmur aftur!
Vilhjálmur keyrir að marki Gróttu og tekur fast skot sem fer rétt yfir markið.
71. mín
Skot
Vilhjálmur Kaldal með skot inni í vítateig sem fer langt yfir markið.
70. mín
Þróttarar að sækja í sig veðrið
Eftir slakan fyrri hálfleik eru Þróttarar búnir að vera talsvert betri síðustu mínútur.
70. mín
InnTristan Freyr Ingólfsson
ÚtHrannar Ingi Magnússon
67. mín
Horn fyrir Þrótt
Kári Kristjánsson með skot í varnarmann og aftur fyrir. Þeir taka þetta stutt og svo kemur fyrirgjöf sem Guðmundur grípur í markinu.
64. mín
Horn fyrir Þrótt
Boltinn kemur inn á teiginn, en það er hreinsað frá.
63. mín
Of seinn í tæklinguna
Grímur Ingi Jakobsson
62. mín
Mark úr víti!
Kári Kristjánsson
Skýtur í vinstra hornið og sendir Guðmund í rangt horn!61. mín
ÞRÓTTARAR AÐ FÁ VÍTI!
Grímur Ingi reyndist brotlegur.
60. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtAdam Árni Róbertsson
60. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtÖrn Bragi Hinriksson
60. mín
Stoppar skyndisókn
Nökkvi Már Nökkvason
57. mín
Lúmsk fyrirgjöf
Eiríkur með lúmska fyrirgjöf sem fer rétt yfir markið.
50. mín
Mjög rólegt fyrstu fimm
Bæði lið að skipast á að halda í boltann.
46. mín
Heimamenn byrja með boltann í seinni
45. mín
Hálfleikur
ÞÞÞ flautar til hálfleiks. Mjög jafn leikur fyrstu 45. Bæði lið hafa fengið sín færi, en engin dauðafæri hingað til. Það er auðvitað vítið sem skilur liðin að. Þróttarar hafa fengið nokkar hornspyrnur, en ekkert kom úr þeim.
44. mín
Horn fyrir Þrótt
Boltinn kemur inn á teiginn og Tryggvi Snær nær skoti sem fer hátt yfir markið.
41. mín
Tuð
Anton Bogdanov
40. mín
Horn fyrir Gróttu
Kristófer keyrir að marki Gróttu, tekur skot sem fer í varnarmann og í horn. Þróttarar ná að skalla í innkast.
35. mín
Skógarhlaup!
Þórhallur Ísak hleypur út úr markinu en nær ekki til boltans. Kristófer nær skallanum, en Njörður kemur boltanum frá.
32. mín
Þróttarar að fá sína þriðju hornspyrnu
Boltinn kemur inn á teiginn, en það er hreinsað frá.
31. mín
Björgvin Brimi aftur!
Hrannar Ingi kemur boltanum á Björgvin Brima en skotið hans er framhjá.
29. mín
Skot
Björgvin Brimi fer inn á völlinn og tekur skot í nærhornið sem Þórhallur grípur.
27. mín
Þróttur að fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
25. mín
Öruggt víti!
Mattías Kjeld
Þróttarar eru gjörsamlega brjálaðir. Þeir vilja meina að Mattías hafi snert boltann tvisvar, en Þórður er ekki á sömu blaðsíðu.24. mín
GRÓTTA AÐ FÁ VÍTI!
Kári Kristjánsson nartar í hælana á Kristófer og víti dæmt.
20. mín
Skot
Grímur Ingi fer framhjá einum og kemst í fínt skotfæri, en skýtur rétt yfir markið.
16. mín
Þróttarar fá fyrsta horn leiksins
Boltinn flýgur yfir allan pakkann, en Þróttarar halda í boltann. Örn Bragi tekur síðan skot rétt fyrir utan vítateig sem Guðmundur Rafn grípur.
13. mín
Mattías Kjeld liggur eftir og fær aðhlynningu
Hann fékk högg í baráttunni við Þórhall Ísak.
7. mín
Skot
Tryggvi Snær keyrir að marki Gróttu og tekur fast skot sem fer yfir markið.
5. mín
Grótta að fá aukaspyrnu á fínum stað
Þeir taka hana stutt og spila sín á milli í öftustu línu.
2. mín
Færi
Örn Bragi leikur á Dag, fer á hægri löppina en skotið yfir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Allt að verða klárt
Það eru fimm mínútur í leik og liðin halda til búningsherbergja.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Rúnar Páll gerir engar breytingar á liði sínu eftir sannfærandi 3-0 sigur á Vestra.
Sigurvin Ólafsson gerir sömuleiðis engar breytingar á liði sínu eftir frábæran 4-1 sigur á Aftureldingu.
Sigurvin Ólafsson gerir sömuleiðis engar breytingar á liði sínu eftir frábæran 4-1 sigur á Aftureldingu.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Ágúst Hlynsson fékk það verkefni að spá fyrir 17. umferð Lengjudeildar karla. Hann spáir fagmannlegum útisigri Þróttara.

Grótta 0 - 2 Þróttur R.
Allt verður í járnum í fyrri hálfleik og lítið um færi. Þróttur kveikir svo á sér í seinni og skorar 2 mörk. Orri Sigurjónsson kemur óvænt inn á og skorar skallamark eftir horn.

Grótta 0 - 2 Þróttur R.
Allt verður í járnum í fyrri hálfleik og lítið um færi. Þróttur kveikir svo á sér í seinni og skorar 2 mörk. Orri Sigurjónsson kemur óvænt inn á og skorar skallamark eftir horn.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin áttust við fyrr á tímabilinu, þar sem Grótta sigraði sterkt 2-3. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson kom Þrótturum yfir snemma leiks. Andri Freyr Jónasson jafnaði fyrir Gróttu, en stuttu eftir kom Örn Bragi Hinriksson Þrótti yfir. Andri Freyr Jónasson var aftur á ferð og jafnaði í byrjun seinni hálfleiks. Hinn ungi og efnilegi Mattías Kjeld skoraði síðan sigurmarkið þegar rúmar 15 mínútur voru eftir. Hægt er að sjá allt það helsta úr leiknum hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Gestirnir frá Laugardal
Þróttarar hafa átt gott tímabil hingað til og verið í toppbaráttu Lengjudeildarinnar frá fyrstu umferðum. Þeir gjörsamlega völtuðu yfir Aftureldingu í fyrsta sætis leiknum í síðustu umferð 4-1. Þrótturum var spáð 1. sæti fyrir tímabilið og hafa staðið undir þeim væntingum. Afturelding og Fylkir fylgja þó fast á eftir.


Fyrir leik
Heimamenn í Gróttu
Seltirningar hafa verið á fljúgandi siglingu í síðustu leikjum. Þeir hafa unnið fjóra af síðustu fimm eftir erfiðan kafla þar sem þeir töpuðu þremur leikjum í röð. Liðinu var spáð 10. sæti fyrir tímabilið, en hafa svo sannarlega komið á óvart. Eins og stendur sitja þeir í 6. sæti með 25 stig, átta stigum frá toppsæti.


Fyrir leik
Dómarateymið
Hinn afar efnilegi Þórður Þorsteinn Þórðarson er aðaldómari í dag. Honum til aðstoðar eru Þráinn Jón Elmarsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Eftirlitsmaður er Jón Magnús Guðnason.


Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. Í dag eigast Grótta og Þróttur við í 17. umferð Lengjudeildar karla.





