Fotbolti.net
Alexander Tonini
Alexander Tonini
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
12 gráður og léttskýjað
Njarðvík
Njarðvík
3 - 1
Vestri
Vestri
0 - 11' Johannes SelvénValdimar Jóhannsson 45'1 - 1Oumar Diouck 64'2 - 1Oumar Diouck 74'3 - 1
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Seigla Njarðvíkur heldur áfram eftir öflugan seinni hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og geta gestirnir eflaust nagað sig í handarbökin yfir því að hafa ekki komist í 2-0 á 10. mínútu leiksins. Seinni hálfleikur var hins vegar eign Njarðvíkur á meðan varnarleikur Vestra var ekki sjón að sjá. Oumar Diouck kláraði svo leikinn fyrir sitt lið með tveimur mörkum í seinni hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Oumar Diouck

Leikmaður sem gefst aldrei upp. Átti ekkert sérstakan fyrri hálfleik en hljóp á eftir öllum boltum og gafst aldrei upp. Sá dugnaður skilaði honum tveimur mörkum í seinni hálfleik sem gerðu út um leikinn.

2. Alexander Helgi Sigurðarson

Nafni minn var flottur á miðjunni í dag. Átti stoðsendinguna í jöfnunarmarkinu, var alls staðar á vellinum og ávallt í kringum boltann. Vel að þessum titli kominn.

Atvikið

Fyrsta mark Oumars Diouck á 64. mínútu breytti leiknum algjörlega og eftir það sá Vestri aldrei til sólar. Bragi Karl átti fyrirgjöf frá hægri, vörn Vestra horfði á boltann í rokinu og gleymdi Oumari alveg. Hann var einn og óvaldaður og náði smá snertingu á boltann sem dugði til að koma honum yfir línuna.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvík fer upp í 4. sæti, einu stigi á undan HK sem á þó leik til góða, og styrkir stöðu sína í baráttunni um laust sæti í umspilinu. Martröð Vestra heldur hins vegar áfram og liðið mun enda í 8. sæti eftir 17. umferð. Eins og Elmar Atli sagði réttilega er liðið að missa af umspilslestinni.

Vondur dagur

Vörn Vestra fær þennan titil enn og aftur. Liðið hefur nú fengið á sig 17 mörk í síðustu fjórum umferðum Lengjudeildarinnar. Öll þrjú mörkin í leiknum má að einhverju leyti skrifa á slakan varnarleik Vestra, þó vissulega megi ekki taka neitt af öflugum sóknarleik Njarðvíkur, sem var mjög góður á köflum í leiknum.

Dómarinn - 6

Leyfði leiknum að fljóta en að sama skapi hefði hann mátt rífa gula spjaldið aðeins oftar upp úr vasanum. Stærsta atvikið kom þegar Jacob Stensson reif Leandro niður aftan frá og í kjölfarið tók við smá glíma á jörðinni. Brot aftan frá sem stöðvar sókn – ef það er ekki gult spjald þá veit ég ekki hvað.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.