SKÝRSLAN: Hnífjafnt á Vivaldivellinum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum var færanýting liðanna. Bæði lið fengu nóg af færum til að vinna leikinn, en allt kom fyrir ekki.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Rafn Ingason
Þetta er auðvelt val. Guðmundur var frábær í markinu og öryggið uppmálað í öllum sínum aðgerðum.
2. Mattías Kjeld
Skoraði úr vítinu og bjó oft til hættulegar stöður fyrir Gróttumenn.
Atvikið
Þegar Mattías Kjeld skoraði úr vítaspyrnunni urðu allir leikmenn Þróttar verulega reiðir. Þeir vildu meina að hann hefði skotið í sig og inn. ÞÞÞ var ekki á sama máli og dæmdi markið gilt.
Hvað þýða úrslitin?
Tvö dýrkeypt stig í súginn fyrir Þróttara sem hefðu getað komið sér á toppinn með sigri. Gróttumenn eru taplausir í sex leikjum og halda áfram að sækja stig. Þeir sitja í 6. sæti og eru í baráttu um umspilssæti.
Vondur dagur
Það var enginn sem átti vondan dag, en Þróttarar hefðu vafalaust viljað eiga betri fyrri hálfleik en raun bar vitni. Allt annað að sjá til þeirra í seinni hálfleik þar sem ákefðin og orkustigið var hærra.
Dómarinn - 7
Þessi einkunn er með fyrirvara um að Mattías hafi í vítinu ekki snert boltann tvisvar (double touch).


