Fyrir leik
Hvernig fer leikurinn?
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna á tímabilinu
Fyrri leik liðanna lauk með 2-2 jafntefli þar sem Sigurjón Rúnarsson jafnaði metin fyrir Fram í lokin. Sigurjón er í banni í kvöld.
KR 2 - 2 Fram
0-1 Frederico Bello Saraiva ('41 )
1-1 Aron Sigurðarson ('45 )
2-1 Luke Morgan Conrad Rae ('83 )
2-2 Sigurjón Rúnarsson ('90 )
Lestu um leikinn
KR 2 - 2 Fram
0-1 Frederico Bello Saraiva ('41 )
1-1 Aron Sigurðarson ('45 )
2-1 Luke Morgan Conrad Rae ('83 )
2-2 Sigurjón Rúnarsson ('90 )
Lestu um leikinn
Fyrir leik
Flestir spá markaleik enda er KR jú að fara að spila. Að auki vantar varnarmenn í Framliðið vegna leikbanna. Israel Garcia og Sigurjón Rúnarsson verða báðir í banni og einnig fyrrum leikmaður KR, Ægir Jarl Jónasson. Spennandi verður að sjá hvernig Fram glímir við þessi forföll.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, grýtti brúsa í vegg í sigrinum gegn ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum á Hásteinsvelli og fékk fyrir það rautt spjald. Það er sjónarsviptir að hafa Rúnar ekki á hliðarlínunni gegn KR í þessum leik í kvöld en aðstoðarmaður hans Helgi Sigurðsson verður með stýrið.
En Kennie Chopart var alveg ákveðinn í að ná þessum leik og hann snýr aftur úr leikbanni og verður með Frömurum í kvöld.
Bönnin bíta í Fram

Framarar verða með pallborðsumræður fyrir leikinn á Lambhagavellinum þar sem Mikel Nikulásson, Bogi Ágústsson, Ríkharður Daðason og Valtýr Björn Valtýsson rýna í leikinn með Gunnari Ormslev.
KR klúbburinn boðar upphitun stuðningsmanna á heimavelli, Rauða ljóninu á Eiðistorgi. Rúta á leikinn leggur af stað í Úlfarsárdalinn 18:20.
Upphitanir stuðningsmanna

Helgi Mikael Jónasson dæmir leikinn. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Birkir Sigurðarson verða aðstoðardómarar og Gunnar Freyr Róbertsson fjórði dómari.
Maðurinn með flautuna

Helgi Mikael Jónasson dæmir leikinn. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Birkir Sigurðarson verða aðstoðardómarar og Gunnar Freyr Róbertsson fjórði dómari.
Fyrir leik
Geta þau herjað á toppsætið? - Mikil spenna fyrir stórleik Fram og KR
18. umferð Bestu deildarinnar lýkur í kvöld með stórleik í Úlfarsárdalnum. Fram fær KR í heimsókn og vallarmet gæti fallið í Dal draumanna. Leikurinn hefst 19:15.
Liðin eru í 2. og 3. sæti en Fram getur minnkað forystu Víkings niður i fimm stig eftir jafntefli toppliðsins gegn ÍBV í gær. KR getur komist upp í 2. sæti og minnkað forystu Víkings í sex stig.

Erfitt er um slíkt að spá. En ef við skoðum niðurstöðu könnunar á forsíðu Fótbolta.net spá 39% sigri Fram, 19% spá jafntefli og 42% spá því að gestirnir úr Vesturbænum fari heim með öll stigin.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður að því á dögunum hvað KR þyrfti að gera til að vinna Fram?
„Við þurfum að mæta með alvöru orku og hugrekki og keyra yfir þá. Það er það sem við þurfum að gera," svaraði Óskar.
„Ef allt verður eins og það á að vera verður mikið um mörk og leikurinn algjört augnakonfekt," segir Óðinn Bjarkason, leikmaður Aftureldingar, sem spáir sex marka leik. Fram 2-4 KR.