Leik lokið!
Jafntefli niðurstaðan!
95. mín
KR-ingar fá hornspyrnu, Framarar koma hættunni frá.
91. mín
Gult spjald
Amin Cosic
Gult fyrir kjaftbrúk.90. mín
Framarar fá hornspyrnu. Boltinn á fjærsvæðið, Halldór Snær reynir að kýla boltann frá en það mistekst. Boltinn á Sigurjón sem setur hann í KR-ing og inn af stuttu færi!
FRAMARAR JAFNA!!!
Sigurjón Rúnarsson
Dramatískt er það!Framarar fá hornspyrnu. Boltinn á fjærsvæðið, Halldór Snær reynir að kýla boltann frá en það mistekst. Boltinn á Sigurjón sem setur hann í KR-ing og inn af stuttu færi!
87. mín
Kennie Chopart með skot af löngu færi sem Halldór Snær ver nokkuð örugglega.
83. mín
Amin fær boltann út við kant, keyrir inn að teignum. Leikur á Framara og gefur fyrir á Rae sem er einn gegn auðu marki og getur ekki gert annað en skorað!
Sanngjarnt? Veit það ekki, en KR-ingum gæti ekki verið meira sama.
LUKE RAE KEMUR KR YFIR!
Luke Morgan Conrad Rae (stoðsending: Amin Cosic)
Frábærlega gert hjá Amin!Amin fær boltann út við kant, keyrir inn að teignum. Leikur á Framara og gefur fyrir á Rae sem er einn gegn auðu marki og getur ekki gert annað en skorað!
Sanngjarnt? Veit það ekki, en KR-ingum gæti ekki verið meira sama.
82. mín
Freyr Sigurðsson með fyrirgjöf sem fer í hendina á Gyrði Hrafni og kalla eftir vítaspyrnu en ekkert dæmir Twana.
82. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtÞorri Stefán Þorbjörnsson
Slæmar fréttir fyrir Framara ef Þorri er meiddur. Kyle McLagan er jafnframt meiddur og er ekki í leikmannahópi liðsins.
81. mín
Þorri Stefán liggur niðri og þarfnast aðhlynningar.
80. mín
Þrumuskot!
Boltinn dettur skoppandi fyrir Hrafn Tómasson sem tekur viðstöðulaust skot fyrir utan teig en Viktor Freyr ver frábærlega!
Álíka tækni og í marki Thiago fyrir Liverpool gegn Porto í Meistaradeildinni um árið.
Álíka tækni og í marki Thiago fyrir Liverpool gegn Porto í Meistaradeildinni um árið.
79. mín
Orri Hrafn með gott skot fyrir utan teig en Viktor Freyr ver vel í hornspyrnu.
78. mín
Róbert Hauksson sleppur í gegn en flaggaður rangstæður, réttur dómur við fyrstu sýn.
77. mín
Xg moli
KR 1 - 1 Fram
0.27Xg - 0.67Xg
0.27Xg - 0.67Xg
74. mín
InnFreyr Sigurðsson
ÚtSimon Tibbling
Tibbling fer niður og biður um skiptingu.
73. mín
Ægir Jarl með skot úr teignum sem fer rétt framhjá marki KR.
72. mín
2007 manns á vellinum
Frábær mæting og stemning hér á Meistaravöllum!
71. mín
InnBirgir Steinn Styrmisson
ÚtHjalti Sigurðsson
Birgir hefur verið að glíma við meiðsli og kemur nú inn á í fyrsta leik sínum í sumar.
69. mín
Framarar vilja sjá það rauða!
Hjalti Sigurðsson
Vuk Oskar við það að sleppa í gegn en Hjalti Sig brýtur á honum. Framarar í stúkunni kalla eftir rauða spjaldinu. Það var stutt í næsta KR-ing, að mínu mati rétt hjá Twana.65. mín
Gult spjald
Simon Tibbling
Tibbling fer í harkalega tæklingu á Orra Hrafni og fær verðskuldað gult spjald að launum.64. mín
Aron Sig með skemmtilega takta og tekur skot sem fer af varnarmanni og þaðan í innkast.
63. mín
Þessi síðari hálfleikur ekki verið sá skemmtilegasti hingað til.
62. mín
Framarar pressa vel og Halldór Snær í brasi með að finna KR-ing, gestirnir uppskera hornspyrnu sem ekkert kemur þó úr.
59. mín
InnEiður Gauti Sæbjörnsson
ÚtSigurður Breki Kárason
Lítill út, stór inn.
57. mín
Framarar fá hornspyrnu en ekkert kemur upp úr henni.
57. mín
InnRóbert Hauksson
ÚtAtli Þór Jónasson
49. mín
Þorri Stefán með skot af löngu færi sem Halldór Snær ver örugglega.
46. mín
Atli Þór!
Framarinn með þrumuskot úr teignum sem fer í utanvert hliðarnetið.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
45. mín

Myndir úr fyrri hálfleik

45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik!
Twana flautar til hálfleiks. Tökum okkur fimmtán.
45. mín
+1
Vuk með tvær hörkutilraunir en Halldór Snær sér við þeim báðum. Það hefur heldur betur lifnað yfir þessu!
Vuk með tvær hörkutilraunir en Halldór Snær sér við þeim báðum. Það hefur heldur betur lifnað yfir þessu!
45. mín
Gabríel Hrannar með fyrirgjöf sem Viktor kýlir út í teiginn. Boltinn beint á Aron sem lyftir honum snyrtilega yfir Viktor og í netið!

FYRIRLIÐINN JAFNAR!
Aron Sigurðarson
Á besta tíma, rétt fyrir hálfleik!Gabríel Hrannar með fyrirgjöf sem Viktor kýlir út í teiginn. Boltinn beint á Aron sem lyftir honum snyrtilega yfir Viktor og í netið!

44. mín
Aron Sig fær boltann í teig Framara en skot hans himinhátt yfir markið, illa farið með gott færi!
41. mín
Sá brasilíski fær að valsa inn á teig KR-inga, sker inn á hægri fótinn og setur boltann út við fjærstöng, huggulegt!

FRED BRÝTUR ÍSINN!
Frederico Bello Saraiva (stoðsending: Vuk Oskar Dimitrijevic)
Enginn sem mætir honum!Sá brasilíski fær að valsa inn á teig KR-inga, sker inn á hægri fótinn og setur boltann út við fjærstöng, huggulegt!

39. mín
Amin Cosic sólar Chopart og fer aðeins utan í þann danska og fær einhverja hluta vegna dæmda aukaspyrnu á sig. Mjög soft dómur.
36. mín
KR-ingar fá hornspyrnu. Taka það stutt, boltinn á Aron Sig sem lætur vaða en Viktor Freyr ver vel. Boltinn berst aftur á Aron sem á aðra tilraun sem fer framhjá marki gestanna.
35. mín
Alexander Rafn með skot úr teignum sem fer rétt framhjá marki Framara!
33. mín
Kennie!
Chopart fær sendingu í gegn, lætur vaða úr þröngri stöðu en Halldór Snær ver vel.
Kennie hefur verið sjóðheitur í upphafi tímabils, með fimm mörk í deild og bikar.
Kennie hefur verið sjóðheitur í upphafi tímabils, með fimm mörk í deild og bikar.
28. mín
Gult spjald
Kennie Knak Chopart
Kennie fer í groddaralega tæklingu á Amin og fer verðskuldað í bókina.22. mín
Fram fær hornspyrnu, sem lítið kemur úr. Framarar mun hávaxnari en KR-ingar, kæmi mér ekki á óvart ef þeir ná að pota inn einu úr föstu leikatriði.
20. mín
Amin Cosic sker inn á hægri fótinn og á tilraun rétt yfir mark Framara.
17. mín
KR-ingar fá sína fyrstu hornspyrnu. Þeir taka það stutt enda lið Vesturbæinga mjög lávaxið. Ekkert kemur úr hornspyrnunni stuttu.
16. mín
Már Ægisson með hættulega fyrirgjöf fyrir mark KR-inga en enginn Framari nær að reka tána í boltann.
14. mín
Framarar hættulegri
Atli Þór með skot yfir úr teignum! Framarar að byrja betur hér á Meistaravöllum.
13. mín
Færi!
Kennie Chopart með góðan skalla úr teignum en Halldór Snær ver vel!
11. mín
Tíðindi frá Spáni
Orri Steinn var að skora gegn Valencia! Sociedad leiðir 3-2.
10. mín
Fram fær hornspyrnu. Ekkert kemur úr henni þar sem Twana dæmir brot á Framara í teignum þegar spyrnan er tekin.
8. mín
Amin Cosic með góða takta á vinstri kanti og lætur vaða en Viktor Freyr ver vel í marki Framara.
7. mín
Fram fær fyrstu hornspyrnu leiksins. Ekkert kemur úr henni.
5. mín
Uppstilling liðanna
Halldór Snær (m)
Gyrðir Hrafn - Hjalti Sig - Gabríel Hrannar
Sigurður Breki - Krummi - Orri Hrafn
Luke Rae - Aron Sig -Alexander Rafn - Amin
Atli Þór - Vuk Oskar
Fred - Tibbling - Ægir Jarl
Haraldur Einar - Þorri Stefán -Sigurjón Rúnarsson - Kennie Chopart - Már Ægisson
Viktor Freyr (m)

1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Carnival de Paris í græjunum og liðin ganga til vallar. Rauða ljónið labbar með liðunum út!
Fyrir leik
Andi í loftinu
Það var góður andi í stuðningsmönnum á leið minni í blaðamannaboxið. Theódór Elmar, aðstoðarþjálfari KR á síðasta ári, var hress á bjórdælunni inni í félagsheimili og stuðningsmenn beggja liða tímanlega í því.
Fyrir leik
Medalíurnar afhentar 58 árum síðar
Tímabær verðlaunaafhending!
Íslandsmeistarar KR í 5. flokki árið 1968 eru heiðraðir og fá löngu tímabæra verðlaunaafhendingu, þar sem KSÍ hafði ekki gefið þeim medalíur fyrir titilinn fyrir um 58 árum.
Stuðningsmenn taka vel á móti kempunum og klappa duglega fyrir þeim.

KR vs Fram
— Kristalkúlan (@kristalkulan) May 17, 2026
Kúlan gefur til kynna óvænt úrslit hér í dag og eitthvað segir mér að Rúnar sé með lykilinn að KR liðinu.
X2 eða Fram eða jafntefli er á stuðlinum 1.98https://t.co/Co1A2qClk8
Fyrir þá sem vilja eitt value pick þá er það Haraldur Einar fær spjald á stuðlinum 4.00
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir tvær breytingar á liði sínu frá 2-1 tapi gegn Stjörnunni í Mjólkurbikarnum á miðvikudag.
Luke Rae og Hjalti Sigurðsson koma inn í byrjunarliðið í stað Finns Tómasar Pálmasonar og Eiðs Gauta Sæbjörnssonar.
Finnur Tómas, Arnór Ingvi, Michael Akoto, Stefán Árni Geirsson og Ástbjörn Þórðarson eru allir utan hóps.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir eina breytingu á sínu liði frá dramatískum sigri gegn Val. Inn í liðið kemur Már Ægisson í stað Kyle McLagan sem er utan hóps.

Spáir öruggum sigri KR
Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis, spáir Vesturbæingum öruggum sigri í kvöld.
KR 4 - 1 Fram
Óskar Hrafn skilar þremur punktum í VSB, klárt. Finnur Tómas fær að valsa í gegnum lið Fram og setur hann.
KR 4 - 1 Fram
Óskar Hrafn skilar þremur punktum í VSB, klárt. Finnur Tómas fær að valsa í gegnum lið Fram og setur hann.
Fyrir leik
Hvernig svarar KR fyrir tapið?
KR er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Liðið tapaði fyrsta leik tímabilsins á miðvikudag er liðið laut í lægra haldi gegn Stjörnunni í Mjólkurbikarnum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í hvernig tilfinningin væri að mæta í viðtal eftir tapleik, enda hafði það ekki gerst áður í sumar.
Óskar svaraði spurningunni léttur og sagðist búa að ágætri reynslu frá síðasta sumri.

Býst ekki við Arnóri Ingva í dag
„Það er farið að höggva aðeins í hópinn. Þá þurfa aðrir að stíga upp, allar hendur á dekk. Þetta er tækifæri fyrir menn að taka pláss í hópnum,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR eftir tap liðsins gegn Stjörnunni á miðvikudag.
Arnór Ingvi Traustason, Ástbjörn Þórðarson og Michael Akoto voru hvorugir í leikmannahóp KR á miðvikudag og þá fór Finnur Tómas Pálmason af velli með höfuðhögg.
Óskar sagðist ekki gera ráð fyrir því að Arnór Ingvi yrði leikfær í dag en bjóst þó við að Ástbjörn myndi koma til baka.
Guðmundur Andri Tryggvason, Birgir Steinn Styrmisson og Aron Þórður Albertsson hafa lítið sem ekkert verið með á tímabilinu vegna meiðsla. Arnar Freyr Ólafsson meiddist alvarlega í upphafi tímabils og verður frá til lengri tíma.
Þá eru þeir Hjalti Sigurðsson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson komnir til baka eftir meiðsli.

Rúnar og Kennie snúa aftur í Vesturbæinn
Rúnar Kristinsson þekkir Meistaravelli þokkalega eftir að hafa stýrt KR í samtals ellefu tímabil, fyrst frá 2010 til 2014 og síðar frá 2018 til 2023.
Frá því að Rúnar tók við Fram haustið 2023 hefur hann mætt KR fimm sinnum og haft betur í þremur þeirra og tapað tveimur.
Rúnar sótti Kennie Chopart til liðs við Fram frá KR eftir komu sína í Úlfarsárdal 2023. Sá danski hefur farið á kostum í upphafi tímabils og er markahæsti leikmaður Fram með fjögur mörk í deild og eitt í bikar.

Tvö skemmtilegustu lið deildarinnar mætast!
KR og Fram eru tvö skemmtilegustu lið deildarinnar ef litið er til markafjölda í leikjum liðanna.
Þar er KR í sérflokki en Vesturbæingar hafa skorað 25 mörk og fengið á sig ellefu í fyrstu sex umferðum tímabilsins.
Framarar hafa einnig boðið upp á mikla skemmtun í upphafi móts. Í fyrstu sex leikjum þeirra hafa verið skoruð 29 mörk, en markatala liðsins er 18:11.

Meistaravellir heilsa!
Heilir og sælir lesendur góðir og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Meistaravöllum þar sem topplið KR fær Fram í heimsókn.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.