Leik lokið!
Þetta er búið, góður leikur. Valur átti betri seinni en fyrri, mögulega stig skilið en svo er ekki. Takk fyrir mig , skýrsla og viðtöl á leiðinni.
93. mín
InnRósey Björgvinsdóttir
ÚtJelena Tinna Kujundzic
92. mín
Hawkins ótrúleg
Hawkins fær boltann, er tækluð en fær boltann beint í hausinn. Hún er samt ekki niðri, heldur bara áfram. Ég hef séð leikmenn vera niðri eftir þetta vá.
89. mín
Nadía kemur með sendingu inn í teig á Sonju sem nær skallanum en Swift tekur boltann.
87. mín
Sonja fær boltann inn í teignum en skýtur framhjá markinu, þetta var erfitt færi.
85. mín
InnKristrún Ýr Holm
ÚtKayla Marie Rollins
85. mín
Dauðafæri en rangstaða
Lelii er alveg ein á vinstri kantinum, kemur með bolta í áttina að Rollins sem skýtur yfir markið en dómarinn setur upp flaggið.
81. mín
Gult spjald
Málfríður Anna Eiríksdóttir
80. mín
Leliiiii
Lelii er á hægri kantinum. Cuttar inn og varnarmaður Vals slædar út af vellinum. Lelii tekur skotið og það er rétt framhjá markinu. Hefði verið frábært mark.
78. mín
Hawkins fær boltann, sendir á Arnfríði sem lætur vaða. Swift ver en Nadía var ekki langt frá því að ná boltanum en hún er rangstæður.
76. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtKolbrá Una Kristinsdóttir
75. mín
InnSierra Marie Lelii
ÚtKatherine Amanda Cousins
75. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
75. mín
Valur næstum því búin að missa boltann í uppspilinu en Málfríður nær að tækla boltann.
74. mín
Ekki langt frá
Cousins fær boltann inn í teignum og lætur vaða, rétt framhjá. Varis eins og stytta.
73. mín
Bríet Fjóla fær boltann og skýtur í varnamann.
71. mín
Nálægt
Darraðadans inn í teig Vals, þar sem Þróttur er með horn. Boltinn dettur á Unni sem skýtur rétt framhjá stönginni. Ekki langt frá en er viss um það að það ætti að vera hendi á Þrótt þarna.
66. mín
Arnfríður tekur aukaspyrnuna, þær ná skallanum og skalla á fjær stöngina þar sem Hawkins er en hún er rangstæður.
66. mín
Mist tæklar Bryndísi og Valskonur fá hættulega aukaspyrnu.
65. mín
María Eva kemst inn í teiginn, cuttar inn og kemur með háa sendingu sem Málfríður skallar burt.
63. mín
Glódís María með tvær stoðsendingar eftir að hafa komið af bekknum í hálfleik, þetta kalla ég innkomu.
62. mín
Lillý Rut tekur hættulega aukaspyrnu, ákveður að skjóta undir vegginn en Swift grípur boltann þægilega.
61. mín
Gult spjald
María Eva Eyjólfsdóttir
60. mín
Glódís með auka inn í teiginn en það er dæmt brot á leikmann Vals.
56. mín
Glódís fær boltann og sendir á Ragnheiði sem skýtur beint á Swift. Swift ver en fer boltinn samt yfir hana og inn í markið. Swift ver hann kannski inn í sitt eigið mark, ég veit það ekki alveg, ég er smá orðlaus. Það er mjög erfitt að lýsa þessu og ég mæli með því að skoða þetta í sjónvarpinu.
Þetta kallast trúðamark.
MAAAARK!
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir (stoðsending: Glódís María Gunnarsdóttir)
Úffff Swift....Glódís fær boltann og sendir á Ragnheiði sem skýtur beint á Swift. Swift ver en fer boltinn samt yfir hana og inn í markið. Swift ver hann kannski inn í sitt eigið mark, ég veit það ekki alveg, ég er smá orðlaus. Það er mjög erfitt að lýsa þessu og ég mæli með því að skoða þetta í sjónvarpinu.
Þetta kallast trúðamark.
55. mín
Arnfríður kemst upp kantinn, sendir inn í teiginn en það er enginn til þess að skjóta boltanum. Boltinn endar hjá Ragnheiði sem skýtur í varnarmann og fær horn.
52. mín
Sláinnnnnn
Unnur Dóra er við D bogann, nær að snúa sér og lætur strax vaða. Beint í slána og niður. Líklega mark tímabilsins ef hann hefði farið inn.
50. mín
MAAAARK!
Kayla Marie Rollins (sjm)
Glódís María tekur hornið, sendingin er frekar lág og boltinn fer af Rollins og inn í markið. Mjög gott mark ef þetta væri ekki í hennar eigið mark.49. mín
Sóley Edda keyrir inn í teiginn og sendir fram fyrir markið en heimakonur ná að verjast.
48. mín
Bryndís með háan bolta á Sonju sem er rangstæður.
46. mín
Vesen á mér, nóg af breytingum. Sjáum til hvernig Valskonur spila þennan seinni hálfleik.
46. mín
InnGlódís María Gunnarsdóttir
ÚtKimberley Dóra Hjálmarsdóttir
46. mín
InnSonja Björg Sigurðardóttir
ÚtÍsabella Sara Tryggvadóttir
46. mín
InnSóley Edda Ingadóttir
ÚtHelga Rut Einarsdóttir
46. mín
InnArnfríður Auður Arnarsdóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
46. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur
Heimakonur byrja.
45. mín
Hálfleikur
Heimakonur eiga þetta skilið, sjáum til hvernig Valskonur svara. Sjáumst eftir korter.
43. mín
Bryndís reynir að senda til baka en var nálægt því að senda á Rollins.
41. mín
Sæunn með horn, boltinn fer alla leið yfir teiginn á Unni sem skýtur í varnarmann og fær annað horn.
39. mín
Færi
Boltinn dettur á Hawkins sem sendir Ragnheiði í gegn, erfitt færi en hún nær skoti en beint á Swift.
37. mín
Heimakonur eru búnar að vera miklu betri og meira með boltann, alveg klárt. Valskonur þurfa að gera breytingar í hálfleik ef þær vilja fá eitthvað út úr þessum leik.
36. mín
Skyndisókn hjá Val, Hawkins sendir á Margréti en Jelena Tinna nær svo boltanum af henni rétt akkúrat þegar Margrét fær boltann.
34. mín
Björg er alveg galopin á hægri kantinum, kemur með sendingu inn í teig en varnarmaður Vals er á undan í boltann og kemur honum burt.
33. mín
Gult spjald
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
31. mín
Rollins kemst í skyndisókn en sendingin áfram er beint á varnarmann Vals.
28. mín
Stöng
Ragnheiður Þórunn fær boltann fyrir utan teig Þróttar og neglir beint í stöngina.
26. mín
MAAAARK!
Björg Gunnlaugsdóttir (stoðsending: María Eva Eyjólfsdóttir)
Ef ég fæð að sletta, it gets bad to worse. María Eva sendir á Björg sem er við miðju vallarhelming Vals. Björg keyrir í áttina að teig Vals, Valskonur setja nánast enga pressu á hana og hún nær að skjóta framhjá Varis. Hún var með of mikið svæði til þess að athafna sig og það var enginn þarna til þess að stoppa hana. Ekki gott fyrir Val.23. mín
Sigríður sendir inn í teiginn, Rollins ætlar í boltann en Málfríður er á undan henni.
22. mín
Varis í veseni
Varis sendir beint á Björg, sem sendir á Rollins. En Rollins er rangstæður og dómarinn flaggar.
19. mín
Valskonur taka stutt horn, sending inn í teiginn en Swift grípur boltann.
17. mín
Dauðafæri
Ragnheiður Þórunn fær boltann fyrir utan teiginn, hún er alveg ein. Keyrir inn í teiginn, 1v1 við Swift en skýtur framhjá. Allt galopið.
16. mín
MAAAARK!
Kayla Marie Rollins
Cousins fær boltann og ákveður að skjóta fyrir utan teiginn. Vera Varis ver boltann út í teiginn og Rollins nær boltanum og slúttar framhjá Varis.15. mín
Sæunn missir boltann klaufalega, Hawkins nær boltanum af henni en Sæunn nær svo að tækla hana. Hawkins brýtur svo af sér.
11. mín
Sæunn tekur aukaspyrnuna, há sending inn í teig á Cousins sem vinnur skalla boltann, en boltinn fer upp í loftið og Valskonur ná að koma boltanum burt.
10. mín
Bryndís tekur Björg niður, aukaspyrna inn á vallarhelming gestana.
8. mín
Færiii
Rollins fær boltann inn í teignum. Nær að snúa og skýtur beint á markið, skotið var lágt og frekar laust. Varis greip boltann.
4. mín
MAAAARK!
Unnur Dóra Bergsdóttir (stoðsending: Mist Funadóttir )
Mist Funadóttir er á vinstri kantinum fyrir utan teiginn. Sendir inn í teiginn, í áttina að vítapunktinum. Unnur Dóra ræðst á boltann og neglir beint í netið.3. mín
Jelena með háa sendingu í áttina að teig Vals, Málfríður með lélegan skalla en ekki svo lélegan og Varis nær boltanum.
2. mín
Léleg sending til baka en Jelena Tinna kemst í boltann og kemur með betri sendingu til baka.
1. mín
Avis völlurinn heitir ekki lengur Avis, núna heitir hann Pepsi völlurinn.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Gluggalok
Þróttur hefur náð í einn leikmann á lokadegi félagaskiptagluggans, hana Björgey Njála Andreudóttir. Þróttur segir að í yfirlýsingunni að hún sé ,,einn efnilegasti leikmaður landsins". Hún kemur frá Selfossi sem spilar í Lengjudeildinni.
Fyrir leik
Síðustu innbyrðis viðureignir
Fyrr í sumar mættust liðin á heimavelli Vals. Þróttur vann leikinn 0-1, þar sem Unnur Dóra skoraði eina mark leiksins á 30. mínútu. Czerwien fékk einnig að líta rauða spjaldið í leiknum.
Liðin mættust fjórum sinnum á síðasta tímabili, tvisvar í þessu hefðbundna móti, einu sinni eftir skiptingu deildarinnar og einu sinni í Mjólkurbikarnum. Þar var jafnræði með liðunum, en Þróttur vann tvo leiki og Valur tvo.

Liðin mættust fjórum sinnum á síðasta tímabili, tvisvar í þessu hefðbundna móti, einu sinni eftir skiptingu deildarinnar og einu sinni í Mjólkurbikarnum. Þar var jafnræði með liðunum, en Þróttur vann tvo leiki og Valur tvo.

Fyrir leik
Óvæntur fallbaráttuslagur?
Bæði lið sitja í neðri hluta Bestu deildarinnar. Þróttur er í 8. sæti með 15 stig, en Valur er í 9. sæti með 13 stig.
Þróttur hefur gert tvö jafntefli og tapað þremur af síðustu fimm leikjum sínum. Í síðustu tveimur leikjum hefur liðið gert jafntefli 1–1 gegn Stjörnunni á útivelli og 1–1 gegn Víkingi á heimavelli.
Þrátt fyrir erfiða stöðu í deildinni hefur Þróttur hins vegar náð góðum árangri í Mjólkurbikarnum og er komið í úrslit. Þar mætir liðið Grindavík/Njarðvík á Laugardalsvelli þann 12. september.

Valur hefur einnig átt það erfitt í síðustu leikjum. Í síðustu fimm leikjum hefur liðið gert eitt jafntefli, tapað þremur og unnið einn. Sigurinn kom í síðustu umferð þegar Valur lagði Víking 1–0 á heimavelli. Emma Hawkins skoraði sigurmarkið og tryggði Val dýrmæt þrjú stig.

Þróttur hefur gert tvö jafntefli og tapað þremur af síðustu fimm leikjum sínum. Í síðustu tveimur leikjum hefur liðið gert jafntefli 1–1 gegn Stjörnunni á útivelli og 1–1 gegn Víkingi á heimavelli.
Þrátt fyrir erfiða stöðu í deildinni hefur Þróttur hins vegar náð góðum árangri í Mjólkurbikarnum og er komið í úrslit. Þar mætir liðið Grindavík/Njarðvík á Laugardalsvelli þann 12. september.

Valur hefur einnig átt það erfitt í síðustu leikjum. Í síðustu fimm leikjum hefur liðið gert eitt jafntefli, tapað þremur og unnið einn. Sigurinn kom í síðustu umferð þegar Valur lagði Víking 1–0 á heimavelli. Emma Hawkins skoraði sigurmarkið og tryggði Val dýrmæt þrjú stig.

Fyrir leik
Þriðja liðið
Atli Björn E Levy er með flautuna. Mikael Ívan Axelsson og Daníel Örn Arnarson eru með flöggin. Atli Haukur Arnarsson er með skiltið.


Fyrir leik
Besta Deildin heilsar
Heil og sæl, kæru lesendur!
Hér verður bein lýsing frá viðureign Þrótts og Vals í 16. umferð Bestu deildarinnar. Flautað verður til leiks kl. 19:15 á heimavelli Þróttar.
Og það er ekki bara fótboltinn sem bíður! Sólmyrkvinn verður sýnilegur á höfuðborgarsvæðinu kl. 17:48, þannig að það er um að gera að njóta bæði himinsins og fótboltans í kvöld.

Hér verður bein lýsing frá viðureign Þrótts og Vals í 16. umferð Bestu deildarinnar. Flautað verður til leiks kl. 19:15 á heimavelli Þróttar.
Og það er ekki bara fótboltinn sem bíður! Sólmyrkvinn verður sýnilegur á höfuðborgarsvæðinu kl. 17:48, þannig að það er um að gera að njóta bæði himinsins og fótboltans í kvöld.







