Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
4 - 6
FH
FH
0 - 15' Helena Maree Errington0 - 232' Ída Marín HermannsdóttirAlda Ólafsdóttir 43'1 - 21 - 351' Hrönn Haraldsdóttir1 - 458' Ída Marín Hermannsdóttir1 - 570' Ragnheiður Th. SkúladóttirSara Svanhildur Jóhannsdóttir 72'2 - 5Alda Ólafsdóttir 83'3 - 53 - 685' Nia Raisa ChristopherTaylor Marie Hamlett 90'4 - 6
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson

SKÝRSLAN: FH-vélin fór á fullt í villta vestrinu

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag var hreinlega örlítið meiri einstaklingsgæði og breidd í FH. Þær eru alltaf hættulegar og það eiginlega skiptir ekki hver er fyrir framan markið þær eru allar jafn líklegar að skora! Fram veittu þeim þó hetjulega baráttu fram til leiksloka en allt kom fyrir ekki.

Bestu leikmenn

1. Ída Marín Hermannsdóttir

Er bara fáránlega góður leikmaður og alltof góð fyrir þessa deild! skorar tvö mörk í dag sem gætu orðið hennar síðustu í sumar ef samningaviðræður og félagsskipti ganga í gegn. Helena Maree var líka frábær eins og Hafrún Birna og Hrönn!

2. Alda Ólafsdóttir

kom inn á um miðjan fyrri hálfleik fyrir Unu Rós sem meiddist og hún var svo sannarlega mætt til leiks! Setti tvö mörk í kvöld og var að ógna varnarlínu FH trekk í trekk ásamt Söru Svanhildu og Taylor Marie!

Atvikið

Set þetta á Sjötta mark FH á 85. mínútu. Fram var búið að minnka muninn í 5-3 og allt í einu var komið alvöru líf í leikinn. Þá vann Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir boltann, setti hann fyrir og Nia Raisa Christopher kláraði á auðum sjó. Það mark tók síðustu stóru spennuna úr leiknum og tryggði FH sigurinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að FH er enn á toppnum með betri markatölu en Breiðablik. Fram hins vegar fá engin stig og eru dottnar í 7. sætið þar sem Þróttur sigraði Val.

Vondur dagur

Ætli það sé ekki hægt að skella þessu á varnarleik beggja liða. Það er varla hægt að horfa fram hjá því þegar tíu mörk eru skoruð í einum leik. Bæði lið fengu allt of mikið pláss á köflum og sóknarmenn beggja liða fengu að njóta sín.

Dómarinn - 6

Brynjar Þór Elvarsson komst bara ágætlega frá leiknum í kvöld sem var galopinn og fór mikið fram og til baka. Það var mikil hraði í leiknum, og nokkur stór brot en engin stór úrslitaákvörðun sem skyggði á markaveisluna nema mögulega hvort það var víti eða ekki víti þegar Ashley mögulega braut af sér en fékk ekki dæmt á sig hins vegar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.