Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Lengjudeild karla
Kerecisvöllurinn
Vestri
Vestri
2 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Johannes Selvén 1'1 - 0Guðjón Pétur Stefánsson (sjm) 38'2 - 0Jacob Stensson 98'
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Vestri
98. mín
Rautt kort á loft!!

Jacob Stensson

Jacob Stensson fékk að líta rauða spjaldið í látunum hérna eftir leikinn. Sá ekki fyrir hvað. Þetta var ekki seinna gula heldur beint rautt svo eitthvað hlýtur maðurinn að hafa gert.
Leik lokið!
Mikilvægur sigur Vestra staðreynd og allt brjálast!!!
Þorfinnur flautar af hérna á Ísafirði, allt brjálast og rauð spjöld fara á loft, ég sá ekki hver, þarf að finnaa út úr því.

Annars þakka ég fyrir mig, skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í dag.
Vestri
95. mín
Gult spjald

Jacob Stensson

Níunda spjald leiksins.
Vestri
92. mín
Gult spjald

Birkir Eydal

90. mín
+5 mínútum bætt við
Leiknir R.
89. mín
InnKaran Gurung
ÚtAxel Freyr Harðarson
Vestri
88. mín
Gult spjald

Elmar Atli Garðarsson

84. mín
Rólegt yfir þessu síðustu mínúturnar, Leiknir halda meira í boltann og leita að marki til að minnka muninn.
Leiknir R.
79. mín
InnArnór Valur Ágústsson
ÚtBogdan Bogdanovic
Leiknir R.
79. mín
InnEgill Ingi Benediktsson
ÚtJóhann Kanfory Tjörvason
Vestri
79. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtJohannes Selvén
Vestri
79. mín
InnEmmanuel Agyeman Duah
ÚtJacob Stensson
Vestri
79. mín
InnBirkir Eydal
ÚtMarcos Campos Fernandez Marcote
Leiknir R.
79. mín
Gult spjald

Kári Steinn Hlífarsson

76. mín
Tvöföld varsla!
Góð skyndisókn Vestra endar á skoti frá Sergine Fall sem Óli ver, boltinn berst síðan á Breka og Óli ver einnig frá honum.
76. mín
Breki Þór á heiðarlega tilraun að marki Leiknis á sínum eigin vallarhelming, en þetta var allt of laust og auðvelt fyrir Óla.
74. mín
Brynjar Björn og hans teymi virkilega ósáttir með dómaran, veit ekki hvað þeir vilja en það er rannsóknarefni að Brynjar Björn sé ekki búinn að fá spjald hér í dag.
Vestri
69. mín
Gult spjald

Daniel Osafo-Badu

Breki Þór fékk ekki að fara inná í skiptingunni og nú voru liðnar um tvær mínútur síðan og Badu var ósáttur og fékk spjald.
Leiknir R.
67. mín
InnAxel Örn Kjartansson
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
Vestri
67. mín
InnBreki Þór Hermannsson
ÚtChriss-Albin Mörfelt
66. mín
Leiknir í færi!
Jóhann Kanfory gerir vel á miðjum vellinum og kemur boltanum út á Anton Fannar sem sendir fyrir á kollinn á Birni Breka sem á skalla yfir.
62. mín
Albin Mörfelt með frábæra takta og á svo skot fyrir utan teig sem er beint á Óla Íshólm.
Vestri
57. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtGunnar Jónas Hauksson
55. mín
Elmar Atli nálægt því að missa boltann við eigin teig, Axel Freyr nær að pota boltanum aðeins frá honum en Benedikt Snædal kemur úr markinu og hreinsar.
53. mín
Færi!
Vestramenn komast í góða skyndisókn og Balde fær boltann úti hægra meginn og keyrir inn á teig. Hann svo skot sem Óli ver vel, boltinn berst síðar til Mörfelt sem skallar yfir.
49. mín
Marcos Campos liggur eftir og fær aðhlynningu, lítur út fyrir það að hann hafi fenguð hendina á Jóhanni Kanfory í andlitið.
46. mín
Seinni hálfleikur farin af stað
Við vonumst að sjálfsögðu eftir eins mikilli skemmtun og í fyrri hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Frábær hálfleikur að baki!
Þorfinnur Gústaf dómari flautar til hálfleiks vð litla hrifningu Vestra sem voru á leið í skyndisókn. Annars frábær hálfleikur að baki, mikill hiti og fjörugur leikur.

Tökum okkur 15 mínútna pásu.
45. mín
+2 mínútum bætt við fyrri hálfleikinn
43. mín
Dauðafæri!
Elmar Atli fær boltann frá Albin Mörfelt og neglir boltanum fyrir á Cafu sem á skot rúma 2 metra frá markinu sem Ólí Íshólm ver frábærlega.
Leiknir R.
42. mín
Gult spjald

Þorsteinn Emil Jónsson

Leiknir R.
38. mín
Gult spjald

Ólafur Íshólm Ólafsson

Óli mjög ósáttur eftir markið og fær gult spjald.
Vestri
38. mín
Þetta var klaufalegt!

Guðjón Pétur Stefánsson (sjm)

Ibrahima Balde fékk boltann á fjærstönginni og tók hann niður. Balde á síðan skot í innanverða stöngina. Boltinn berst á Guðjón Pétur sem fær hann í sig og í eigið mark.
36. mín
Ibrahima Blade og Guðjón Pétur lenda saman og liggja báðir eftir, þetta leit verr út en varð. Báðir standa upp og eru í lagi.
35. mín
Mikið jafnræði með liðinum þessa stundina, annars hefur leikurinn verið mikil skemmtun og ég hef mikla trú á því að við fáum fleiri mörk í dag.
Vestri
34. mín
Gult spjald

Marcos Campos Fernandez Marcote

Vestri
34. mín
Gult spjald

Johannes Selvén

27. mín
Alvöru MMA taktar frá Benedikt Snædal
Leiknir koma sendingu fyrir sem skoppar upp í loft og Benedikt Snædal markmaður Vestra kemur fljúgandi úr marki Vestra og kýlir boltann frá og fylgir harkalega eftir með hnefanum í leikmann Leiknis.

Aftur snappar Brynjar og Sammi svarar honum úr stúkuni. Það hiti innan og utan vallar hérna á Ísafirði.
25. mín
Vestramenn heppnir
Leiknir taka hornspyrnu fyrir og menn detta út um allan teig og dómari leiksins dæmir brot á Leikni. Leiknir skoraði mark á sama tíma og dómarinn dæmdi. Brynjar Björn er BRJÁLAÐUR!
23. mín
Það hefur verið rólegt yfir þessu síðustu mínútur, Leiknismenn aðeins með yfirhöndina þessa stundina en finna ekki leiðir að marki Vestra.
15. mín
Selvén nálægt því að bæta við!
Selvén vinnur boltann af varnarmanni Leiknis og kemst inn á teiginn, fer framhjá Óla Íshólm en tók of þunga snertingu og nær ekki að stýra boltanum í markið.
11. mín
Leiknir fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Rétt fyrir utan teig Vestra.

Birnir Breki tekur spyrnuna og skýtur yfir, við fáum ekki að klára Gunna Birgis frasan fræga í þetta skiptið.
9. mín
Fyrstu mínútur leiksins hafa verið fjörugar, mikill hraði og alvöru barátta. Stórskemmtilegt.
5. mín
Færi!
Allt í einu dettur Leiknir í færi!

Anton Fannar kemst í góða stöðu í teig Vestra og á fast skot yfir markið.
4. mín
Síðast þegar Vestramenn komust yfir á fyrstu mínútu þá enduðu þeir að tapa 3-1 gegn Njarðvík, ætli við fáum að sjá sömu uppskrift í dag?
Vestri
1. mín
Þetta tók 39 sekúndur!

Johannes Selvén (stoðsending: Ibrahima Balde)

Léleg sending í vörn Leiknis sem Vestri kemst inn í, Ibrahima Balde fær boltann inn á teignum og framlengir yfir á Selvén sem klárar snyrtilega framhjá Ólaf í markinu.
1. mín
Leikur hafinn
Ibrahima Balde skýtur okkur í gang!
Góða skemmtun kæru lesendur.
Fyrir leik
Þorfinnur Gústaf dómari leiksins hikar ekki við að flauta í flautuna sína og leikurinn fær lítið að fljóta, Vestramenn hafa verið ósáttari með það en Leiknir.
Fyrir leik
Allt að verða klárt!
Liðin tvö ganga til vallar hérna á Ísafirði og gera sig klár.
Fyrir leik
Markmannsþjálfari Vestra á bekknum og ein breyting hjá Leikni
Daniel Badu þjálfari Vestra gerir fjórar breytingar á sínu liði frá 2-0 tapinu gegn Völsungi á mánudaginn síðasta. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m), Johannes Selvén, Marcos Campos og Chriss-Albin Mörfelt koma inn í liðið. Emmanuel Duah og Breki Þór Hermannsson. Einnig koma Þórður Gunnar Hafþórsson og Marvin Darri Steinarsson úr liðinu, en þeir eru á meiðslalistanum.

Vladan Djogatovic er á varamannabekk Vestra í fjarveru Marvins Darra.

Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari Leiknis gerir aðeins eina breytingu á sínu liði frá 6-1 stórsigrninum gegn Ægi í síðustu umferð Bogdan Bogdanovic kemur inn í liðið á kostnað Arnórs Vals Ágústssonar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Varð fyrir óhuggnarlegum meiðslum
Í lok leiks Völsungs og Vestra varð Marvin Darri Steinarsson, markmaður Vestra, fyrir meiðslum sem litu mjög illa út. Marvin fór út í teiginn þegar Völsungur átti hornspyrnu og kýldi boltann í burtu, en fékk högg á höfuðið í leiðinni. Hann vankaðist og þurfti aðhlynningu á vellinum.

Um sex mínútna hlé varð á leiknum vegna meiðslanna. Þar sem allar skiptingar Vestra voru búnar þurfti Breki Þór Hermannsson, framherji liðsins, að fara í markið það sem eftir lifði leiks.

Marvin var fluttur með sjúkrabíl af vellinum á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík og gisti þar yfir nótt.





Fyrir leik
Spáin góða
Róbert Hauksson framherji Fram tók að sér það verkefni að spá fyrir leikjum 20. umferðar Lengjudeildarinnar.

Vestri 2 - 3 Leiknir R. (15:00 á morgun)
,,Vestramenn byrja þennan leik af miklum krafti og komast snemma í 2-0 forystu. Eftir taktíska og ástríðufulla hálfleiksræðu frá Nemanja Pjevic „nemmaball“ aðstoðarþjálfara snýst hins vegar pendúllinn og leiknismenn taka alveg yfir leikinn. Daði Bærings fyrirliði byrjar endurkomuna með lausu skoti sem skoppar yfir hendur markmanns Vestra. Það er síðan Árni Elvar sem jafnar leikinn áður en funheitur Axel Freyr setur sigurmarkið í lokin."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Síðustu tveir leikir hafa farið 1-0
Liðin tvö hafa mæst tvisvar sinnum á tímabilinu og deilt með sér sigrunum. Vestri hafði betur í 32. liða úrslitum Mjólkurbikarsins, mark Vestra í leiknum skoraði Imran Mehanovic. Imran varð fyrir því óláni að slíta krossband í byrjun tímabils og hefur því spilað lítið með Vestra.

Seinni leikurinn fór fram á Leiknisvelli í 9. umferð Lengjudeildarinnar og þar höfðu Leiknismenn betur, mark þeirra skoraði Birnir Breki Burknason.



Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Leiknismenn ekki sloppnir
Leiknir eru í 7. sæti með 25 stig og eru því um miðja deild. Þeir eru þó aðeins fimm stigum frá fallsæti þegar þrír leikir eru eftir og því ekki alveg sloppnir úr fallbaráttunni. Það er þó líklegra að Leiknir haldi sér uppi en falli. Sigur hjá Leikni í dag myndi einnig fara langt með að tryggja sér sæti í deildinni.

Leiknir vann 6-1 stórsigur á Ægi í síðustu umferð og féllu þá Ægismenn þar með niður í 2. deildina.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Heimamenn í fallhættu
Vestri eru í fallbaráttu, liðið er í 8. sæti með 24 stig, fjórum stigum frá fallsæti. Fyrir Evrópuleiki Vestra var liðið í umspilssæti og fór um tíma upp í 2. sæti deildarinnar, eftir Evrópu hefur liðið tekið mikla dýfu í deildinni. Með sigri í dag geta Vestramenn farið langt með það að tryggja sætið í deildinni

Í síðustu umferð fór Vestri til Húsavíkur og tapaði 2-0 fyrir Völsungi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómaratríóið
Flautuleikari dagsins er Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson, Kári Mímisson og Jón Reynir Reynisson verða honum til halds og trausts á sitt hvorri hliðarlínuni. Egill Már Markússon er eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Kerecisvöllinn!
Góðan og blessaðan daginn kæra fólk og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Vestra og Leikni R. í 20. umferð Lengjudeildar karla. Leikurinn hefst á slaginu 15:00.

Mynd: Samúel Samúelsson

föstudagur 21. ágúst
18:00 Ægir-Afturelding (GeoSalmo völlurinn)
19:15 Grótta-ÍR (Vivaldivöllurinn)

laugardagur 22. ágúst
14:00 HK-Þróttur R. (Kórinn)
14:00 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
15:00 Vestri-Leiknir R. (Kerecisvöllurinn)
16:00 Njarðvík-Völsungur (JBÓ völlurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.