Fotbolti.net
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Lengjudeild karla
Kórinn
Juju það er hlýtt að venju í Kórnum!
HK
HK
3 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Dominik Radic 11'1 - 053' Hans Sævar SævarssonÞorsteinn Aron Antonsson 70'2 - 0Dominik Radic 94'3 - 097' Hlynur Þórhallsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Þetta er klárt
HK vinnur 3-0 sigur í mjög furðulegum leik þar sem mér fannst Þróttur hafa öll tök á vellinum.
Ég þakka fyrir mig skýrsla og viðtöl koma inn í dag.
Þróttur R.
97. mín
Rautt spjald

Hlynur Þórhallsson

Hlynur fer að rífa kjaft við Óla og fær að líta seinna gula!
HK
94. mín
Er að klára leikinn!

Dominik Radic

Radic er að klára leikinn kemur sér með herkjum inná teiginn, á skot sem Þórhallur ver fær annað tækifæri og skorar í seinni tilraun!
92. mín
HK fær horn, tefja bara upp við hornfána!
Þróttur R.
90. mín
Gult spjald

Hlynur Þórhallsson

Alltof seinn í Tuma
86. mín
Þróttur hafa átt 28 skot í leiknum og 13 á ramman.
Óli er búinn að vera STURLAÐUR
HK
85. mín
InnSvavar Örn Þórðarson
ÚtViktor Helgi Benediktsson
HK
85. mín
InnAlexander Örn Guðmundsson
ÚtAtli Hrafn Andrason
82. mín
Hvernig fer þetta ekki inn???
Magnús fær boltann fyrir nánast opnu marki en Óli Neuer er í gír og með eina sturlaða vörslu!
Þróttur R.
81. mín
InnJakob Ocares Kristjánsson
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
Þróttur R.
81. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
78. mín
Þarna var tækifærið
Arnþór ari ekki langt frá því að gera sjálfsmark. En Óli ver aftur
HK
77. mín
InnAtli Þór Gunnarsson
ÚtÞorvaldur Smári Jónsson
73. mín
Aftur!
Eiríkur með góða fyrirgjöf og aftur er Magnús í góðu tækifæri en neglir boltanum yfir
72. mín
Hörku tilraun
Magnús Þórðar sem á hörku skot en enn og aftur er Óli búinn að loka búrinu.
HK
70. mín
HK að tvöfalda forystuna

Þorsteinn Aron Antonsson

Kemur hörku fyrirgjöf inná teiginn og Þorsteinn Aron stekkur manna hæst og stangar hann, slain-inn. Þetta er gegn gangi leiksins verður að segja!
Þróttur R.
67. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Þróttur R.
67. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtÖrn Bragi Hinriksson
62. mín
Þróttur heldur sóknarþunga áfram og hafa verið töluvert sterkari aðilinn hér í síðari hálfleik.
HK
62. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtJóhann Þór Arnarsson
Þróttur R.
53. mín
Rautt á mann úr starfsliðinu - Sýnist þetta hafa verið Hans

Hans Sævar Sævarsson

Verður trylltur út í Helga Mikael eftir peysutogið og er rekinn úr húsinu!
Þróttur R.
53. mín
Gult spjald

Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson

Rifið í treyjunni á Vilhjálmi og hann verður pirraður á Helga Mikael sem spjaldar Vilhjálm!
Þróttur R.
46. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtNjörður Þórhallsson
HK
46. mín
InnÍvar Örn Jónsson
ÚtBreki Hólm Baldursson
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
HK byrja þennan síðari hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
+3
Helgi Mikael flautar til hálfleiks.
Tökum okkur 15 min pásu.
HK
45. mín
+1

Atli Hrafn Andrason

Atli stígur aftan á Njörð.
Þróttur R.
44. mín
Dýfa?

Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson

Helgi Mikael dæmir dýfu á Vilhjálm Kaldal. Fannst vítalygt af þessu en dæmi hver fyrir sig.
39. mín
Helgi Mikael gefur Sigurvini Ólafs þjálfara Þróttar gott tiltal.
37. mín
Góður skalli
Sigurður Egill með góðan bolta inná teiginn og Aron Snær með góðan skalla en Ólafur Örn með góða vörslu.
34. mín
Vilhjálmur Kaldal með fær boltann inná teignum og skallar boltann fyrir markið en enginn Þróttari mættur.
32. mín
Þróttarar mun hættulegri þessa stundina koma sér í ágætis stöður.
23. mín
Ha?
Jóhann Þór fer í hörku tæklingu á Vilhjálm Kaldal, en ekkert spjald á loft sem er spes. Stuðningsmenn Þróttar vilja rauðan lit ég er ósammála því hins vegar.
HK
19. mín
Gult spjald

Arnþór Ari Atlason

Arnþór of seinn
16. mín
Þróttur fá aukaspyrnu á fínum stað.
Kári á flott skot sem Óli ver
14. mín
Dauðafæri
Langur bolti fram og Aron Snær er sloppinn nánast í gegn og á fast skot sem Ólafur Örn ver mjög vel
HK
11. mín
HK eru komnir yfir!

Dominik Radic (stoðsending: Jóhann Þór Arnarsson)

Að sjálfsögðu er það Domanik Radic sem skorar.
Jóhann Þór með góða sendingu meðfram jörðinni inná teiginn og Radic fyrstur á boltann og kemur boltanum í netið.
9. mín
s
9. mín
HK fá hornspyrnu.
Þorsteinn Aron með skalla en hann er laus og beint á Þórhall
5. mín
Vilhjámur Kaldal kom sér í góða stöðu en skot hans er laust og þægilegt fyrir Ólaf.
3. mín
Arnþór Ari með eina heiðarlega tilraun en hún fer upp í þak nánast.
2. mín
HK fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
Hún er langt frá því að vera góð!
1. mín
Örn Bragi með ágætis tilraun úr þröngri stóði en Ólafur Örn ver frá honum
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið í gang
Það eru gestirnir í Þrótt sem koma þessu af stað!!!
Fyrir leik
Liðinn ganga útá völl! Fólk að streyma inn í stúkuna verður skemmtilegur leikur.
Fyrir leik
10 Mínútur í leik !
Fyrir leik
Breytum einum dollara í tvo!
Stuðlarnir á Epic eru klárir
HK:2,97
X:4,36
Þróttur:2,07

Mynd: EPA

Fyrir leik
Flautukórinn
Dómara þríeykið í dag, er þannig skipað Helgi Mikael Jónasson er á flautunni góðu, honum til halds og trausts eru þeir:
Jovan Subic og Bryngeir Valdimarsson.
Eftirlitsmaðurinn er Ingvar Örn Gíslason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spáin góða
Róbert Hauks leikmaður Stjörnunar, spáir gestunum sigri í dag!
HK 1 - 2 Þróttur R. (14:00 á morgun)
HK hefur tekist að búa til alvöru virki inni í Kórnum í sumar og eru enn ósigraðir á heimavelli. Það breytist þó í þessum leik þar sem þróttarar eru í hefndarhug eftir tap þeirra í umspilinu í fyrra. Baldur Hannes skorar sitt fyrsta mark í sumar eftir mikinn darraðardans í vítateig andstæðinganna áður en Tryggivi Geirs setur þrumufleyg um miðbik seinni hálfleiks. HK-ingar klóra í bakkann í lokin en nær komast þeir ekki og fara þróttarar með stigin þrjú heim í Laugardalinn.
Fyrir leik
Gestirnir úr Laugardalnum!
Gestirnir í Þrótt sitja eins og staðan er í 2.sæti Lengjudeildarinnar með 37 stig, tveimur stigum á eftir Aftureldingu sem unnu stórsigur í gær gegn Ægi 7-0.

Þróttarar hafa heilt yfir verið öflugir á tímabilinu og berjast núna eins og sakir standa við Aftureldingu um að komast beint uppí deild þeirra bestu. Þeir tóku smá dýfu og töpuðu gegn Grindavík á útivelli (2-1) Svo jafntefli við Gróttu á heimavelli (2-1)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heimamenn!
Heimamenn í HK sitja í 4.sæti Lengjudeildarinnar með 32 stig og fara uppfyrir Fylki með sigri sem sitja í 3.sæti deildarinnar.
HK hafa gefið smá eftir í síðustu fjórum leikjum og hafa unnið einn af síðustu fjórum leikum sínum tvö töp, eitt jafntefli og aðeins einn sigur í síðustu fjórum.

Það er nokkuð ljóst að HK muni spila í þessari útsláttarkeppni sérstaklega eftir tap Gróttu í gær gegn ÍR en komast sennilega ekki í það að berjast um topp sætið!

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Lengjudeildinn klár!
Lengjudeildinn er klár og bíður uppá skemmtilegan leik þar sem HK tekur á móti Þrótti, í 20 umferð Lengjudeildar karla.
Get lofað því að við fáum góða skemmtun í þessum topp slag þar sem Þróttur getur endurheimtið topp sætið en það verður erfitt verkefni þar sem HK tapar varla í Kórnum !
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.