SKÝRSLAN: Þróttur kominn í brekku?
Hvað réði úrslitum?
Þróttur lágu á HK mest megnið af leiknum, en verður ekki tekið af HK að þeir nýttu færin sín vel. Þróttur sköpuðu sér samt urmul af færum en Óli í marki HK var í rosalegum gír í dag!
Bestu leikmenn
1. Ólafur Örn Ásgeirsson
Óli Neuer var stórbrotinn í dag varði endalaust, Þróttur hefði ennþá getað verið að spila og Óli væri ennþá að verja og halda hreinu!
2. Domanik Radic
Radic var einnig mjög líflegur í dag skoraði tvö stykki og var alltaf að atast í varnarmönnum Þróttar.
Atvikið
Rauða spjaldið á aðstoðarþjálfara Þróttar, veit ekki hvað gerist. Mér var sagt að það hafi verið litið í þessu.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða að Þróttur eru komnir í 2.sætið og meðan Afturelding vinna og þeir klikka verður brekkan brattari.
HK styrkja stöðu sína í deildinni!
HK styrkja stöðu sína í deildinni!
Vondur dagur
Sóknarleikur Þróttar var ekki góður í dag og klikkuðu endalaust af dauðafærum.
Dómarinn - 4
Fannst Helgi Mikael eiga mjög lélegan leik verður að segja. Ílla dæmdur fyrri hálfleikur, flautaði endalaust ætla ekki fara út í sérstaka dóma en ekki góður dagur hjá Helga.



