Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta karla
Greifavöllurinn
KA
KA
3 - 5
KR
KR
0 - 14' Aron Sigurðarson0 - 29' Aron SigurðarsonHallgrímur Mar Steingrímsson 14'1 - 2André Rømer 20'2 - 22 - 328' Aron Sigurðarson2 - 437' Orri Hrafn Kjartansson2 - 549' Eiður Gauti SæbjörnssonKári Gautason 93'3 - 5
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Sigur KR staðreynd. VIðtöl og skýsla koma inn á síðuna síðar í kvöld
KA
93. mín
MAAAARK!

Kári Gautason

Sárabótamark. Grímsi sendir hann í gegn og hann klárar vel.

Fyrsta mark Kára í keppnisleik með KA.
90. mín
Þrjár mínútur í viðbót
KR
88. mín
InnSölvi Snær Ásgeirsson
ÚtÁstbjörn Þórðarson
87. mín
Hvernig fór þessi ekki inn?
Fannar Heimisson alveg upp við markið og á skalla en Ívar nær að kýla boltann frá
82. mín
Ekki boðið upp á sömu skemmtun í seinni hálfleik og í fyrri hálfleik....
KA
75. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtMikael Breki Þórðarson
KR
75. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtGaldur Guðmundsson
KR
75. mín
InnFannar Heimisson
ÚtHrafn Tómasson
KR
75. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtSigurður Breki Kárason
74. mín
Vandræðagangur í vörn KA. Aron Sig nær boltanum og á skot sem Hans Viktor nær að bjarga á síðustu stundu
72. mín
Luke Rae með skot rétt framhjá. Jakob Héðinn Róbertsson sleppur í gegn hinu megin stuttu síðar en Halldór Snær ver vel frá honum.
KA
68. mín
InnJeppe Pedersen
ÚtSamuel Karl Kroon
KR
67. mín
InnHjalti Sigurðsson
ÚtMichael Osei Akoto
61. mín
Luke Rae með fyrirgjöf, hún er mjög innarlega og Ívar þarf að blaka boltanum í horn.
KA
60. mín
InnMarkús Máni Pétursson
ÚtAdam Ægir Pálsson
KA
60. mín
InnDanijel Dejan Djuric
ÚtBirgir Baldvinsson
56. mín
Gabríel Hrannar með fína tilraun en skotið framhjá
52. mín
ADAM ÆGIR!
Adam sleppur einn í gegn en skotið alveg hrikalegt og boltinn fer vel framhjá
51. mín
KR-ingar halda áfram að sækja. Sigurður Breki ákveðinn og tekur skot en boltinn vel yfir.
KR
49. mín
Sjöunda markið í leiknum

Eiður Gauti Sæbjörnsson

Luke Rae með fyrirgjöf og Eiður Gauti skallar boltann í netið
47. mín
Aron Reynir að lauma boltanum yfir Ívar Arnbro. Sólin skín á Ívar en hann sá boltann og varði örugglega.
KA
46. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
Breyting hjá KA í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Mögnuðum fyrri hálfleik lokið. Vonandi fáum við annað eins í seinni hálfleik
43. mín
Adam Páls með hörkuskot rétt framhjá. Sýndist boltinn jafn vel fara í stöngina.
41. mín
KA menn í álitlegri stöðu en Samuel Kroon rennur þegar hann reynir skotið.
KR
37. mín
Stórglæsilegt mark

Orri Hrafn Kjartansson (stoðsending: Sigurður Breki Kárason)

Vá. Aron Sig og Galdur leika á milli sín. Aron sendir síðan á Sigurð Breka inn á teignum sem hælar boltann snyrtilega á Orra sem skorar.
32. mín
Orri Hrafn Kjartansson með skot sem Ívar ver út í teiginn. Ástbjörn Þórðarson tekur skallann en setur boltann yfir.
KR
28. mín
ÞRENNA

Aron Sigurðarson (stoðsending: Sigurður Breki Kárason)

Fær boltann á eigin vallarhelming og brunar að teignum. Hann sendir á Sigurð Breka, fær boltann aftur, leikur á Römer og skorar með skoti í fjærhornið.
28. mín
Hallgrímur Mar með skot úr þröngu færi. Halldór ver og Jakob Snær á skot vel yfir
KA
20. mín
KA búið að jafna!

André Rømer (stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson)

Fyrirgjöf á fjær úr hornspyrnu og Römer stekkur hæst og skallar boltann í netið
18. mín
Luke Rae með lúmskt skot en boltinn fer framhjá
KA
14. mín
Laglegt mark

Hallgrímur Mar Steingrímsson

Hallgrímur fær boltann á miðjum vallarhelmingi KR og vippar yfir Halldór Snæ. Laglega gert.
KR
9. mín
Tvenna!

Aron Sigurðarson (stoðsending: Sigurður Breki Kárason)

Aron einn og óvaldaður inn á teig og skallar boltann í netið eftir hornspyrnu frá Sigurði Breka.
7. mín
Hrafn með hrikalega sendingu beint á Adam Páls sem tekur skotið frá miðju en boltinn víðsfjærri markinu.
KR
4. mín
GLÆSILEGT MARK

Aron Sigurðarson

KR fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn og Aroni tekst að lyfta boltanum yfir vegginn og setur hann í hornið
3. mín
Hrafn Tómasson með hörkuskot sem Ívar ver í slána.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir koma þessu af stað
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það er ein breyting á liði KA sem gerði 4-4 jafntefli gegn Val í síðustu umferð. Hans Viktor Guðmundsson snýr aftur úr leikbanni og kemur inn fyrir Jeppe Pedersen sem fær sér sæti á bekknum.

Það eru tvær breytingar á liði KR sem gerði 3-3 jafntefli gegn Breiðabliki í síðustu umferð. FInnur Tómas Pálmason og Arnór Ingvi Traustason eru í banni og Michael Akoto og Sigurður Breki Kárason koma inn í byrjunarliðið.
Fyrir leik
Fjörugur leikur framundan
Guðmundur Tyrfingsson, sóknarmaður Fylkis, er spámaður umferðarinnar. Hann býst við fjörugum leik.

KA 2 - 4 KR
Eiður Smári er ekki mættur til að spila vörn fyrir norðan og Óskar eyðir litlum tíma í vörn líka. Úr því verður mikil skemmtun. Hrafn Tómasson, Jason Daði, Eiður Gauti og Aron Sig skora. Sigurpáll Sören kemur inn á í markið og ver víti eftir að Hallgrímur reynir Panenka-víti á hann. DDD skorar fyrir KA og Jeppe Pedersen með banger.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna hér í dag. Eysteinn Hrafnkelsson og Þráinn Jón Elmarsson verða honum til aðstoðar. Twana Khalid Ahmed er fjórði dómari og Þóroddur Hjaltalín er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hvað gerir Eiður Smári fyrir KA?
Það komu vægast sagt óvæntar fréttir í vikunni þegar Eiður Smári Guðjohnsen var ráðinn í þjálfarateymi KA. Talandi um sóknarleikinn þá ætti Eiður að geta kennt mönnum að klára færin sín.





Fyrir leik
KR
KR situr í 2. sæti með 40 stig, átta stigum á eftir toppliði Víkings. Liðið er taplaust í síðustu sex leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
KA
KA er í 11. sæti með 16 stig, stigi frá öruggu sæti. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu 12 leikjum sínum. Sóknarleikurinn hefur ekki verið upp á marga fiska en liðinu tókst að skora fjögur mörk gegn Val í síðustu umferð en það skilaði aðeins einu stigi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan daginn
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og KR í Bestu deildinni. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.