Fotbolti.net
Besta deildin
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta karla
Miðgarður
Stjarnan
Stjarnan
4 - 2
Þór
Þór
Örvar Eggertsson 6'1 - 0Emil Atlason 41'2 - 0Birnir Snær Ingason 45'3 - 0Emil Atlason 61'4 - 04 - 172' Sigfús Fannar Gunnarsson4 - 289' Christian Jakobsen
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Leik lokið!
Loka færið
Þórsarar pressa stíft og koma sér í góða stöðu. Boltinn dettur fyrir Ágúst sem tekur skotið í fyrsta en framhjá. Svo flautar Ívar og öruggur sigur Stjörnumanna staðreynd.

Skýrsla og viðtöl vænanleg seinna í kvöld.
91. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
Þór
89. mín
Þórsarar laga stöðuna aðeins meira

Christian Jakobsen

Gestirnir með boltann úti vinstra megin og koma svo með fyrirgjöfina inn í teig. Það er svo bara eins og menn gleymdu Jakobsen því það var enginn nálægt honum, hann fær þá bara frían skalla sem hann leiðir í markið.
87. mín
Þórsarar í færi
Góð pressa hjá Þórsurum sem vinna boltann við vítateig Stjörnumanna. Peter er þá kominn í frábært færi en skotið hans er slakt og framhjá markinu,
Þór
83. mín
InnÞorri Ingólfsson
ÚtYann Emmanuel Affi
80. mín
Dauðafæri!!
Stjörnumenn vinna boltann ofarlega á vellinum. Daníel Finns fær þá boltann úti hægra megin og kemur með fyrirgjöfina. Benedikt er aleinn og daufrír á fjær þegar hann fær boltann. Hann tekur skotið í fyrsta en setur boltann yfir.
Stjarnan
78. mín
InnChristian Bjarmi Alexandersson
ÚtEmil Atlason
77. mín
Aron með góða vörslu
Langur bolti fram hjá Stjörnunni, og Aron fer í alvöru skógarhlaup á móti boltanum. Hann hættir við það á hárréttum tíma, því hann bakkar og Emil reynir að lyfta boltanum yfir hann en Aron rétt nær hendinni í boltann.
75. mín
Þórsarar með færi
Fyrigjöfin kemur inn í teig frá vinstri beint á kollinn á Peter sem er dauðafrír. Skallinn hins vegar beint á Árna.
Þór
74. mín
Gult spjald

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson

Stjarnan
72. mín
Gult spjald

Daníel Finns Matthíasson

Þór
72. mín
Þeir klóra í bakkann

Sigfús Fannar Gunnarsson (stoðsending: Bjarni Guðjón Brynjólfsson)

Greko kemur boltanum út á Bjarna á hægri kantinum. Bjarni er fljótur að koma strax með fyrigjöfina, beint á Sigfús sem klárar vel.
Stjarnan
71. mín
InnDamil Serena Dankerlui
ÚtBjarki Hauksson
Stjarnan
71. mín
InnIbrahim Turay
ÚtBirnir Snær Ingason
Þór
69. mín
InnPeter Ingi Helgason
ÚtAtli Sigurjónsson
Þór
69. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtVictor Bertomeu
66. mín
Stöngin!
Sigfús Fannar með flottan sprett upp vinstri kantinn. Hann er svo kominn í mjög þröngt færi en hann nær skoti og í stöngina.
Stjarnan
63. mín
InnÁrni Vilhjálmsson
ÚtAlex Þór Hauksson
Stjarnan
63. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtÖrvar Eggertsson
Stjarnan
61. mín
Þá er þetta endanlega búið

Emil Atlason

Örvar Logi fær boltan á vinstri kantinum, hann kemur með fastan bolta fyrir. Emil kemur í hlaupið, nær að stinga sér framhjá varnarmanninum og klárar vel.
Þór
56. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtEinar Freyr Halldórsson
53. mín
Hvernig skorar hann ekki!?
Skyndisókn hjá Stjörnunni og Örvar er sloppinn í gegn. Hann tekur skotið en Aron ver frá honum, boltinn fer hins vegar beint til Birnis sem er í algjöru dauðafæri. Hann tekur skotið í fyrsta en þrusar honum vel yfir markið.
51. mín
Seinni hálfleikurinn byrjar svipað og sá fyrri endaði. Stjarnan virðist enn vera með öll tök á þessum leik.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
Þórsarar með eina skiptingu í hálfleiknum.
Þór
46. mín
InnVilhelm Ottó Biering Ottósson
ÚtÁsbjörn Líndal Arnarsson
45. mín
Hálfleikur
Stjarnan með mjög örugga forystu í hálfleik. Þórsarar lítið getað svarað fyrir sig. Þeir verða að gera betur í seinni hálfleik.
Stjarnan
45. mín
Stjarnan að klára þetta!?

Birnir Snær Ingason

Stjörnumenn vinna boltann eftir góða pressu. Emil leggur þá boltann út til vinstri á Birni, sem keyrir á sinn mann, tekur eina snögga hreyfingu til hliðar og setur boltann fast í nær.
Stjarnan
43. mín
Gult spjald

Birnir Snær Ingason

Algjör óþarfi, sparkar boltanum frá þegar Þór er að fara taka aukaspyrnu.
Stjarnan
41. mín
Frábær skyndisókn!

Emil Atlason (stoðsending: Örvar Eggertsson)

Stjörnumenn vinna boltann þegar Þórsarar eru að sækja. Þá kemur langur bolti upp hægri kantinn á Örvar sem er með fullt af plássi fyrir framan sig. Hann tekur af stað og kemur svo með fastan bolta fyrir á Emil sem gerir vel og neglir honum í markið.
37. mín
Það er barátta
Eftir mjög sterka byrjun hjá Stjörnunni er leikurinn búinn að jafnast töluvert. Lítið um færi og mikil barátta á miðjum vellinum. En í þeim töluðu orðum nær Ágúst Eðvald skoti fyrir utan teig, en það fer hátt yfir.
31. mín
Benedikt Waren með skotið fyrir utan teig en það er laust og beint á Aron.
30. mín
Stjarnan er með öll tök á þessum leik, Þórsarar eiga mjög erfitt með að byggja eitthvað upp. En á meðan heimamenn eru bara einu marki yfir er alltaf hætta.
24. mín
Bjargað á línu!
Stjörnumenn sækja upp vinstri kantinn og svo kemur boltinn inn í teig. Emil er mættur á endann á sendingunni og skýtur að marki, boltinn er næstum bara kominn í netið en Þórsarar ná að hreinsa á línu!
22. mín
Þröngt færi
Birnir með flottan sprett upp vinstri kantinn, kemst svo inn í teig en þá er plássið orðið lítið og færið þröngt. Hann tekur skotið en Aron ver frá honum.
20. mín
Þórsarar vilja víti
Örvar Logi og Ágúst Eðvald eru í baráttu inn í teig og Ágúst fellur við. Þórsarar bara út höndum, mér fannst nú ekki mikið í þessu.
16. mín
Þórsarar fá aukaspyrnu og fjölmenna í teignum. Fyrsta skiptið sem þeir eru eitthvað að ná að ógna.

Einar kemur með sendinguna inn í teig en Stjörnumenn hreinsa bara strax.
11. mín
Stjarnan með aukaspyrnu vinstra megin við teig Þórsara. Benedikt kemur boltanum inn í teig og Gummi Kri nær skallanum en hann er ekki í jafnvægi og er því ekki nálægt því að koma boltanum á markið.
Stjarnan
6. mín
Stjörnumenn leiða!

Örvar Eggertsson (stoðsending: Birnir Snær Ingason)

Birnir fær boltann úti hægra megin og hann gefur boltann fastan fyrir. Örvar er þar mættur inn í teig, stekkur á boltann og nær að stýra honum í netið!

Heimamenn verið miklu sterkari þessar fyrstu mínútur og þeir uppskera.
3. mín
Skallinn yfir!
Stjörnumenn taka hornið og þeir lyfta boltanum inn í teiginn. Þar nær Kjeldsen skallanum, en hann setur boltann yfir.
2. mín
Birnir með skotið
Stjörnumenn eru mjög ákafir og orkumiklir hér í byrjun leiks. Birnir fær boltann úti vinstra megin, leitar inn á völlinn og tekur skotið en í varnarmann og afturfyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Ívar flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Nýtt þjálfarateymi Stjörnunnar, Olgeir Sigurgeirsson og Brynjar Kristmundsson gera fjórar breytingar á liðinu frá síðasta leik. Árni Snær Ólafsson kemur aftur í markið, og Guðmundur Kristjánsson, Birnir Snær Ingason og Alex Þór Hauksson koma allir inn í liðið. Darri Bergmann Gylfason, Ari Leifsson og Ibrahim Turay setjast á bekkinn, en Jóhann Árni er í banni.

Sigurður Höskuldsson þjálfari Þór gerir tvær breytingar frá síðasta leik. Atli Sigurjónsson og Einar Freyr Halldórsson koma inn í liðið. Fannar Daði Malmquist Gíslason og Þorri Ingólfsson setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Spáin
Guðmundur Tyrfingsson, sóknarmaður Fylkis, tók að sér það verkefni að spá í spilin fyrir þessa umferð.

Stjarnan 1 - 1 Þór
Mun ekki kveikja á þessum leik. Ætli ég taki ekki aukavakt á rútunni í staðinn og keyri 50 túrista á Gullfoss og Geysi í staðinn fyrir að horfa á þennan leik. Þessi lið þurfa virkilega á þessum þremur stigum að halda og leikurinn verður áhættulítill og leiðinlegur. Emil Atlason og Gyrðir skora mörk liðanna.
Fyrir leik
Dómarinn
Ívar Orri Kristjánsson verður með flautuna í dag, en honum til aðstoðar verða Kristján Már Ólafs og Ronnarong Wongmahadthai. Fjórði dómari verður Pétur Guðmundsson og dómaraeftirlitsmaður Gunnar Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Jón Þór látinn fara
Stjarnan gerði breytingu á þjálfurum í annað sinn í sumar. Jón Þór var látinn fara og aðstoðar menn hans hafa tekið við.
Fyrir leik
Já þið lásuð rétt
Leikurinn fer ekki fram á Samsung vellinum heldur inni í Miðgarði. Lesið nánar um það hér.
Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Stjörnunnar og Þór í 20. umferð Bestu deildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður spilaður í Miðgarði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.