Leik lokið!
FH að sigra sinn fyrsta Evrópuleik!
96. mín
Hildur Katrín tekur hornið, út í teiginn en þær ná ekki að gera sér mat úr þessu
95. mín
Nia!
Nia gerir ótrúlega vel! kemur sér í gegnum 4 varnarmenn Apollon nær svo skotinu en í varnarmenn og afturfyrir
95. mín
Jæja! Flauta þetta af bara!
Leikmenn FH eru orðnar virkilega þreyttar
94. mín
InnKorina Adamou
ÚtFilippa Savva
94. mín
InnMariam Yunus
Út Natasha Hudson
93. mín
Mackenzie eins og herforingi í varnarlínunni hjá FH, hún ætlar ekki að hleypa neinu í gegn hérna
92. mín
Nia að gera sig klára að koma aftur inn
91. mín
FH að sigla fyrsta sigrinum heim
A.m.k. 5 mínútum bætt við venjulegan leiktíma!
90. mín
Liðin taka vatnspásu á meðan
Það er heitt og leikmenn eru augljóslega þreyttir
89. mín
Nia pressar á Hara í markinu og fær fasta spyrnu í sig af mjög stuttu færi, þetta hefur ekki verið gott! og dómari leiksins stoppar leikinn
86. mín
Gult spjald
Natasha Hudson
86. mín
InnRagnheiður Th. Skúladóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
86. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
85. mín
Unnur!
Unnur keyrir á þær á hægri kantinum og fer bara auðveldlega í gegn setur boltann fyrir markið þar er Hildur mætt en nær ekki skotinu
85. mín
Nia eltir upp frákast en Hara kemur út á móti og nær þessu á undan henni
83. mín
Ingibjörg kemur upp með boltann, brotið á henni en boltinn berst áfram á Niu sem reynir að fara sjálf, þær tvöfalda á hana og hún missir hann
79. mín
Ingibjörg þræðir sig í gegn og ætlar að leggja boltann en Hara kemur út á móti henni og hirðir boltann
78. mín
InnMackenzie Jordan Geigle
ÚtMarilena Georgiou
78. mín
Hildur Katrín vinnur boltann og með stungu sendingu upp á Niu sem setur boltann í markið! en sendingin aðeins of sein og flaggið fer á réttilega á loft
76. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtÁsdís Karen Halldórsdóttir
Ásdís lenti í hnjaski áðan, engir sénsar teknir
72. mín
Ásdís Karen!
Ásdís Karen með góðan snúning, leggur boltan fyrir sig við vítateigshornið vinstra meginn, lætur vaða en í hliðarnetið!
71. mín
Andrea tekur hornið en þær ná ekki að nýta sér það nægilega vel
71. mín
Anna Heiða og Unnur eru að koma hér inn af miklu krafti!
Anna Heiða er grjóthörð og Unnur að ógna og nælir í horn fyrir FH
Anna Heiða er grjóthörð og Unnur að ógna og nælir í horn fyrir FH
70. mín
Gult spjald
Jónína Linnet
Brýtur harkalega af sér68. mín
Ásdís Karen við það að sleppa í gegn en missir boltann í góðri stöðu
68. mín
Hildur finnur Unni á kantinum, hún reynir að finna Hildi aftur en þær missa boltann
66. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtHrönn Haraldsdóttir
66. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtDeja Jaylyn Sandoval
Þær neyðast til að gera skiptingu, vonandi ekkert alvarlegt að hrjá Deju hún er einn af máttarstólpunum í þessu frábæra FH liði
66. mín
Deja fer útaf og Georgiou hefur leikinn aftur með innkasti
65. mín
Leikmenn taka vatnspásu á meðan
64. mín
Deja virðist hafa meitt sig eitthvað eða með vott af krampa, þeir eru allavega að teygja og athuga aftan í læri hjá henni
63. mín
Hudson kemur sér inn fyrir Jónínu, setur síðan boltann fyrir en það er of aftarlega og Deja nær að hreinsa boltann frá
60. mín
Inn Antriana Tsoukka
ÚtEleni Giannou
60. mín
Inn Maya Matesa
Út Lainey Higgins
59. mín
JÓNÍNA LINNET!
Hudson er sloppin í gegn en Jónína eltir hana uppi og bara hirðir af henni boltann! Vel gert!
57. mín
Birna reynir skotið en það er rétt framhjá, Hrönn og Ásdís Karen voru nálægt því að pikka því inn líka en útaf fer boltinn
54. mín
Prvulovic brýtur á Helenu, Andrea Rán setur hann aðeins of fast upp kantinn og Ingibjörg á ekki séns í þennan bolta
53. mín
Andrea Rán með frábæra skiptingu yfir völlinn á Hildi Katrínu en hún er aðeins of fljót að reyna losa sig við boltann og sendingin fram á við ekki nógu nákvæm, hefði getað tekið boltann með sér þarna
51. mín
Saava, tekur hornspyrnuna fyrir Apollo, setur hann stutt, fær hann aftur og setur hann fyrir, Freda nær skallanum en Aldís grípur þetta
50. mín
Jónína enn og aftur rétt kona á réttum stað, kemur í veg fyrir að Hudson komist í dauðafæri
48. mín
Hudson!
Hudson með þrumuskot beint í þverslánna! Tréverkið að bjarga á ögurstundu
47. mín
Aldís!
Apollo konur komast 3 á tvær en eru alltof lengi að athafna sig! Hudson reynir skotið en Aldís ver þetta vel
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Freda hefur leikinn fyrir okkur aftur!
45. mín
Hálfleikur
FH leiða 0-2 í hálfleik!
Hafa heilt yfir verið betri aðilinn í þessum leik og leiða sanngjarnt hér í hálfleik.
Við tökum okkur stutt pásu á meðan
Við tökum okkur stutt pásu á meðan
45. mín
Gult spjald
Hrönn Haraldsdóttir
45. mín
+3
Andrea Rán með hornið, setur hann stutt á nærsvæðið þar sem Ásdís Karen kemur hlaupandi, setur hann aftur á Andreu en þær komast svo í boltann
45. mín
+2
Ásdís Karen allt í einu í Dauuuuuðafæri en Hara nær að verja þetta vel!
45. mín
a.m.k. 3 mínútum bætt við
43. mín

STÖNGIN INN!
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Andrea Rán lætur bara vaða, boltinn á viðkomu í varnarmann en stöngin inn fer boltinn! og FH tvöfalda hér rétt fyrir hlé!
42. mín
Pearse brýtur á Ásdísi Karen á miðjum vallarhelmingi Apollo, Andrea Rán gerir sig klára til að spyrna þessu
39. mín
Saava tekur hornið fyrir Apollo, setur hættulegan bolta á teiginn en FH konur ná að endingu að koma boltanum frá
37. mín
Fyrsta mark FH í Evrópu!

JÁ JÁ JÁ!
Helena Maree Errington (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)
Ingibjörg með brjálæðisleg einstaklingsgæði, prjónar sig upp kantinn á svo frábæra sendingu út í teiginn þar sem Helena kemur í hlaupinu og setur boltann framhjá Hara í markinu!Fyrsta mark FH í Evrópu!

35. mín
Saava tekur hornið fyrir Apollo, FH konur ná að koma honum frá en Mooney er þar mætt og setur boltann á markið en ekki nógu nákvæmt
34. mín
Jónina aftur með frábæra tæklingu kemur í veg fyrir að Hudson sleppi ein í gegn
33. mín
Gult spjald
Angelos Tsolakis
Bekkurinn fær spjald fyrir kvart32. mín
Andrea Rán með frábæran varnarleik, stelur boltanum af Freda sem var að gera sig líkelga í skot
32. mín
Helena nær skoti á markið en það er laust
31. mín
Andrea Rán með Ingibjörgu með sér, tekur spyrnuna á teignn, Ásdís Karen nær skotinu en beint í varnarmenn Apollo
30. mín
Hildur Katrín nælir í fyrstu hornspyrnuna fyrir FH
29. mín
Jónína með frábæra tæklingu og kemur í veg fyrir að Savva sleppi í gegn
28. mín
Ásdís Karen kemst í góða stöðu er með Ingibjörgu til hliðar við sig en þær ná ekki að nýta þetta
28. mín
FH konur í smá brasi, Freda pressar og setur Andreu í vesen en þær ná þó að leysa vel úr þessu
26. mín
Við erum farin af stað á ný
23. mín
Vatnspása
Það er mikill hiti og sól og við förum í stutta vatnspásu
22. mín
Brotið á Helenu á miðjum vallarhelmingi Apollo, Andrea tekur spyrnuna en ekkert kemur úr henni
20. mín
Giannou með aðra aukaspyrnu, setur hann á teiginn en nú finnur hún enga Apollo konu í teignum
19. mín
Úffff
Giannou tekur aukaspyrnu af vinstri kantinum, Olivia Pearse nær skotinu en það er rétt framhjá. Þetta var besta færi leiksins hingað til
14. mín
Hudson eltir boltann, Deja nær að skýla þessu fyrir Aldísi en það mátti ekki miklu muna að hún gæti strítt FH
13. mín
Jelena Prvulovic með hornið, setur þetta á nærsvæðið en þar er engin Apollokona og FH kemur þessu frá
12. mín
Natasha Hudson kemst í gott færi en Aldís ver frá henni, þær fá svo horn
12. mín
Hildur með fínustu tilraun af löngu færi en aðeins of laust og Isabella Hara í markinu þarf ekki að hafa neitt fyrir þessu
10. mín
Ficzay með aukaspyrnu utan af kanti en Deja skallar þetta frá og nær svo að skýla boltanum útaf,
7. mín
Ásdís Karen reynir að finna Hrönn út í teignum, hún setur hann upp á Helenu en flaggið fer réttilega á loft.
5. mín
Dæmt á Andreu, Ficzay tekur spyrnuna og setur hann á teiginn en FH konur koma þessu frá
4. mín
Ingibjörg, kemst í gott hlaup, reynir við skotið en setur hann í varnarmann og Isabella Hara handsamar hann svo.
3. mín
FH konur hafa verið með boltann það sem af er og eru fljótar að pressa og ná honum aftur þegar þær missa hann
1. mín
Leikur hafinn
Andrea Rán og Ásdís Karen hefja leikinn fyrir FH
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin eru komin inn á völlinn og þessi Evrópuveisla er rétt að byrja!
FH konur í flottum Evróputreyjum, sömu litir og við þekkjum, hvítar og svartar en eru með stofnunarár FH, 1929, framan á.
það er klassi yfir þessu!
FH konur í flottum Evróputreyjum, sömu litir og við þekkjum, hvítar og svartar en eru með stofnunarár FH, 1929, framan á.
það er klassi yfir þessu!
Fyrir leik
Byrjunarlið FH í sögulegum leik
Byrjunarlið FH fyrir fyrsta Evrópuleik kvennaliðs félagsins hefur verið opinberað.
Guðni og Hlynur Eiríkssynir gera fjórar breytingar frá tapinu gegn Víkingi. Aldís Guðlaugsdóttir kemur í markið og Helena Errington, Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir og Jónína Linnet koma einnig inn í liðið.

Fyrri leikur einvígisins
Leikurinn í dag er fyrri viðureign liðanna í fyrstu umferð forkeppninnar en FH tekur svo á móti Apollon Ladies í Kaplakrika miðvikudaginn 2. september.
Sigurvegarar samanlagt úr báðum leikjum tryggir sér sæti í annarri umferð forkeppninnar og því væri kjörið tækifæri fyrir FH í dag að koma sér í góða stöðu fyrir heimaleikin í Kaplakrika eftir viku.

Hvað er Evrópubikarinn?
Evrópubikar kvenna er önnur af tveimur Evrópukeppnum félagsliða á vegum UEFA og fer fram samhliða Meistaradeildinni. Keppnin var sett á laggirnar á síðasta tímabili til að fjölga þeim liðum sem fá tækifæri til að spreyta sig á evrópska sviðinu.
Fyrirkomulag keppninnar er einfalt, þar sem um útsláttarkeppni er að ræða og allar umferðir, allt frá forkeppni til úrslita, eru leiknar heima og að heiman.
Breiðablik náði eftirtektarverðum árangri á síðasta tímabili en þær m.a. slógu út Spartak Subotica frá Serbíu og unnu síðan ævintýralegan sigur á danska liðinu Fortuna Hjörring í sextán liða úrslitum. Ferð þeirra lauk í átta liða úrslitum gegn Häcken, sem stóð að lokum uppi sem fyrsti sigurvegari Evrópubikarsins.
Blikarnir sýndu það að íslensk lið geta heldur betur látið til sín taka og nú fær FH sitt tækifæri!

Apollon Ladies
Apollon Ladies var stofnað árið 2007 en hefur síðan þá orðið langöflugasta kvennalið Kýpur. Félagið varð kýpverskur meistari í 16. sinn á síðasta tímabili og hefur unnið meistaratitilinn sex ár í röð.
Á meðan FH er að leika sinn fyrsta Evrópuleik er Apollon Ladies enginn nýgræðingur á þessu sviði. Kýpverska félagið hefur reglulega tekið þátt í Evrópukeppni og komst fjögur tímabil í röð í 32-liða úrslit Meistaradeildarinnar á árunum 2010 til 2014.
Apollon hóf Evrópuævintýrið í forkeppni Meistaradeildarinnar fyrr í mánuðinum. Liðið gerði þar 3-3 jafntefli við pólska liðið Czarni Sosnowiec eftir framlengingu en tapaði í vítaspyrnukeppni. Apollon vann síðan Vllaznia frá Albaníu 2-1 eftir framlengingu og tryggði sér þannig sæti í Evrópubikarnum.
Apollon teflir fram afar alþjóðlegum leikmannahópi. Í hópnum eru meðal annars leikmenn frá Bandaríkjunum, Englandi, Svíþjóð, Írlandi, Rúmeníu, Austurríki og Gana auk kýpverskra landsliðskvenna. Þjálfari liðsins er hinn kýpverski Angelos Tsolakis.

FH
FH konur hafa verið í gríðarlega miklu stuði í sumar og hefur verið eitt allra skemmtilegasta sóknarliðið í deildinni. Liðið er með lang flest skoruð mörk en þær hafa sett 52 mörk í 16 leikjum í Bestu deildinni. Þær sitja í 2. sætinu þar eins og staðan er núna með 33 stig, aðeins 3 stigum á eftir toppliði Breiðabliks.

Þrátt fyrir öll þessi mörk þá hafa þær aðeins hikstað í síðustu leikjum en þær hafa tapað tveimur leikjum í röð á heimavelli og í fyrsta skipti sumar náðu þær ekki að skora!
Þá er stórt skarð í FH liðinu þar sem Ída Marín Hermannsdóttir gekk á dögunum til liðs við sænska liðið Hammarby. Þær hafa þó fengið Ásdísi Karen til að reyna fylla það skarð og það er kjörið tækifæri fyrir hana í dag að sýna hvað í henni býr!
Þrátt fyrir erfitt gengi í síðustu tveimur likjum þá breytir það ekki því að liðið hefur átt mjög gott tímabil og er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Verkefnið í dag er hins vegar af allt annarri stærðargráðu þegar FH mætir sextánföldum meisturum Kýpur á þeirra heimavelli.

Sögulegur dagur hjá FH
Leikurinn í dag er sá fyrsti í sögu kvennaliðs FH í Evrópukeppni.
FH tryggði sér Evrópusætið með frábærum árangri á síðasta tímabili, þegar liðið hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar og lék jafnframt til úrslita í Mjólkurbikarnum.
Nú er hins vegar komið að því að stíga út á evrópska sviðið í fyrsta sinn!

Serbneskt dómarateymi
Á flautunni í dag verður Jelena Medjedovic, henni til halds og trausts verða Ivana Jovanovic og Andrea Marinkovic aðstoðardómarar.
Fjórði dómari í dag er svo Marina Živkovic
Fjórði dómari í dag er svo Marina Živkovic
Fyrir leik
Evrópa kallar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu úr fyrri viðureign liðanna í fyrsta einvíginu í Evrópubikarnum. FH mætir liði Apollon Ladies F.C. á heimavelli þeirra, Stelios Kyriakides Stadium, í Kýpur.
Leikurinn hefst á slaginu 15:00!

Leikurinn hefst á slaginu 15:00!

Virkilega sanngjarn og sannfærandi sigur!
Takk fyrir samfylgdina, skýrslan kemur inn síðar í dag!