Fyrir leik
Umferðin
Fyrir leik
Tvö töp í röð
FH var lengi á toppi deildarinnar en undanfarið hefur aðeins dregið úr gengi liðsins. FH hefur tapað síðustu tveimur leikjum, gegn Breiðablik og Víkingi, og skoraði ekki mark í hvorugum leiknum. Það er því mikilvægt fyrir FH að ná í sigur í þessum leik ef liðið ætlar að narta í hælana á Breiðabliki, sem situr í 1. sæti.
FH er í 2. sæti deildarinnar með tíu sigra, þrjú jafntefli og þrjú töp. Liðið er með 33 stig, en Breiðablik er með 36 stig. FH er með lakari markatölu en munurinn er aðeins tvö mörk. FH getur því komist í toppsætið að leik loknum ef liðið vinnur með þriggja marka mun, eftir að Breiðablik missteig sig gegn ÍBV og töpuðu 1-2.

Heimakonur í fallsæti
Tímabilið hjá Val hefur ekki verið gott. Liðið situr í botnsætinu með 16 stig eftir fjóra sigra, fjögur jafntefli og átta töp. Aðeins þrjú stig skilja Val að frá 8. sætinu, sem er ekki fallsæti, en Fram situr þar með 19 stig.
Valur á tvo leiki eftir, þennan leik og gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð fyrir skiptingu. Fallbaráttan getur því orðið æsispennandi þegar upp verður staðið.

Valur á tvo leiki eftir, þennan leik og gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð fyrir skiptingu. Fallbaráttan getur því orðið æsispennandi þegar upp verður staðið.

Fyrir leik
Þriðja liðið
Reynir Ingi Finnsson er með flautuna, Bryngeir Valdimarsson og Daníel Örn Arnarson verða með flöggin, Óli Njáll Ingólfsson er með skiltið.

Fyrir leik
Besta heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Vals og FH í 18. umferð Bestu Deild kvenna.

Fram 3-2 Stjarnan
Víkingur R. 3-0 Grindavík/Njarðvík
Þróttur R. 0-0Þór/KA
Breiðablik 1-2 ÍBV