Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Keflavík
Keflavík
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Fyrir leik
Innbyrðisviðreignir
Þessi lið hafa mæst 91 sinni í mótsleikjum á vegum KSÍ samkvæmt vef KSÍ.

Keflvíkingum hefur gengið erfiðlega með FH-inga og þá sérstaklega í Kaplakrika. Miðað við vef KSÍ kom síðasti sigurleikur Keflavíkur í Kaplakrika á Íslandsmóti gegn FH 1980 eða fyrir 46 árum síðan.

FH hefur 48 sinnum hrósað sigri í baráttu á milli þessara liða.
Keflavík hefur 23 sinnum átt sigurorðið.
Liðin hafa þá skilið jöfn 20 sinnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson


Fyrri leikur liðana í sumar endaði með sigri FH sem var jafnframt þeirra fyrsti sigur í Bestu deildinni í ár.


Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson, sem er líka mikill Framari og Luton maður, spáði í leikina sem eru framundan.

FH 1 - 0 Keflavík
„Þar munu þeir einir vera að ég hirði aldrei þótt drepist“, sagði Mörður Valgarðsson í Njálu og átti líklega við Fimleikafélagið og Keflavík. Slysalegt mark heimamanna í blálokin mun spilla fyrir því markmiði þeirra að gera jafntefli í öllum sínum leikjum. Bræðurnir setja á ís tillögu sína um að endurvekja tveggja stiga regluna.

Fyrir leik
Staðan í deildinni fyrir leiki dagsins
Við erum að sigla inn í 21. umferð sem er jafnframt næst síðasta umferð fyrir skiptingu.
Einum leik er lokið í umferðinni en Þór Akureyri vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á ÍBV í gær sem gaf baráttunni í neðri hlutanumenn meiri spennu.

Svona lítur þetta út fyrir 21. umferð:

Spilað í gær:
ÍBV 0-1 Þór Akureyri

Leikir dagsins:
FH-Keflavík 17:00
Fram-KA 17:00
Valur-ÍA 19:15

Mánudaginn 31. Ágúst:
Breiðablik-Stjarnan 19:15

Þriðjudagurinn 1.September:
KR-Víkingur R. 17:30

1.Víkingur - 51 stig
2.KR - 43 stig
3.Fram - 43 stig
4.Breiðablik - 30 stig
5.Keflavík - 28 stig
6.ÍA - 26 stig
------------------------
7.Stjarnan - 24 stig
8.Valur - 23 stig
9.FH - 18 stig
10.Þór Akureyri - 18 stig
-------------------
11.ÍBV - 17 stig
12.KA - 16 stig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH
FH hafa verið ólseigir eftir erfiða byrjun á tímabilinu og unnið sig hægt og rólega úr fallsæti en þeir eru í hörku pakka við botn deildarinnar. FH getur með sigri í dag farið í 21 stig og gefið sér smá andrými frá rauðu línunni sem ógnar þeim.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflavík
Keflvíkingar eru búnir að vinna þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum í deildinni og eru komnir vel á veg með að tryggja sig inn í efri hluta deildarinnar fyrir skiptingu.
Með sigri hér í dag tryggir Keflavík sig endanlega inn í efri hlutann fyrir síðustu umferð svo það er til mikils að vinna fyrir Keflvíkinga í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson fær það verkefni að halda utan um flautuna í dag og honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Eysteinn Hrafnkelsson.
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er fjórði dómari og sérstakur tæknimaður á skiltinu góða.
Eftirlitsmaður KSÍ er svo Gylfi Þór Orrason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kaplakriki heilsar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik FH og Keflavíkur í 21. umferð Bestu deild karla sem fram fer á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.