Fotbolti.net
Besta deildin
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Besta kvenna
Miðgarður
Stjarnan
Stjarnan
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 141' Bergþóra Sól ÁsmundsdóttirSnædís María Jörundsdóttir 61'1 - 11 - 289' Thea Rhode
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson

SKÝRSLAN: Vinna og vinna en komast ekki upp fyrir strik

Hvað réði úrslitum?

Víkingar fóru bara betur með færin sín, svo einfalt er það. Skrýtinn leikur á marga vegu en bæði lið fengu færi og fótbolti er einfalt sport, skora meira en hinn. Víkingar gerðu það í dag og sóttu ótrúlega mikilvæg þrjú stig.

Bestu leikmenn

1. Telma Ívarsdóttir (Víkingur R.)

Sá leikmaður sem skilur liðin að í dag. Mikið 'presence' sem fylgir henni í teignum og það er meira en að segja það að ætla að setja fyrirgjafir inn á teig Víkinga því oftar en ekki er hún mætt fyrst. Átti nokkrar góðar vörslur og var örugg í löppunum.

2. Jasmín Erla Ingadóttir (Víkingur R.)

Leggur upp bæði mörk Víkinga í dag og hefði heldur betur getað skorað allavega eitt sjálf og það sérstaklega í fyrri hálfleik. Hefur verið að stíga upp fyrir Víkingsliðið undanfarið eftir að hafa farið hægt af stað sem er gríðarlega mikilvægt fyrir þær í þeirri baráttu sem framundan er.

Atvikið

Sigurmark Víkinga á 89. mínútu gæti reynst gullsígildi þegar það verður talið upp úr pokanum í lok móts. Ekki bara var markið mikilvægt en það var líka stórglæsilegt, Thea Rhode tók færið virkilega vel og kláraði það heldur betur snyrtilega yfir Skiba í markinu.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar senda Þór/KA á botninn en komast þó ekki upp úr fallsæti þegar við förum inn í tvískiptingunna. Stjörnunni mistekst að enda í þriðja sætinu og fá því bara tvo heimaleiki í stað þriggja.

Vondur dagur

Ég ætla að nýta þennan vettvang í að lýsa yfir pirringi mínum á KSÍ þessa dagana. Í fyrsta lagi er alveg óþolandi að lið í efstu deild fái það í gegn að spila inni í Miðgarði, þessi völlur er í besta falli völlur fyrir mót á undirbúningstímabili og mér finnst að lið ættu að vera með varavelli sem standast þær kröfur sem settar hafa verið en það hefur vissulega verið farið yfir þetta í löngu máli oft áður. Annað sem er mér, og báðum þjálfurum þessa leiks, óskiljanlegt er hvernig það má vera að þessi umferð sé ekki öll spiluð á sama tíma. Það virðist enginn hafa nein svör við því og ég væri mjög til í að heyra þau rök sem liggja þar að baki.

Dómarinn - 7

Brynjar Þór og félagar gerðu vel í dag. Línuverðirnir voru í yfirvinnu að lyfta flöggunum sínum og var það helsta hlutverk teymisins í dag. Ég er reyndar sannfærð um að Víkingar hafi átt að fá víti í byrjun seinni hálfleiks þegar leikmaður Stjörnunnar dripplaði boltanum inní eigin teig en Víkingar virtust ekki átta sig á því frekar en Brynjar og því varð minna úr því augnabliki en ég hefði haldið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.