Fotbolti.net
Besta deildin
Magnús Atlason
Besta kvenna
PEPSI völlurinn
12°, sól en hvasst.
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 1
Breiðablik
Breiðablik
0 - 142' Katelyn DuongSierra Marie Lelii 61'1 - 1
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson

SKÝRSLAN: Sanngjarnt í síðasta leik fyrir skiptingu

Hvað réði úrslitum?

Heilt yfir var það vilji beggja liða til að fá eitthvað útúr þessum leik. Mörkin hefðu getað orðið fleiri, sérstaklega í seinni hálfleik, en varnirnar héldu vel.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)

Sýndi gæðin sín í kvöld. Kom sér og liðinu oft í fínar stöður og var í rauninni óheppin að skora ekki í kvöld.

2. Þórdís Nanna Ágústsdóttir (Þróttur)

Mjög dugleg á kantinum og bjó til hornspyrnuna sem endaði með marki Þróttar.

Atvikið

Þegar Þróttarar héldu að þær væru að komast yfir í seinni hálfleik en rangstaða dæmd. Það hitnaði enn meira í kolunum eftir atvikið.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik endar á toppi deildarinnar fyrir skiptinguna, jafnar að stigum við FH en með betri markatölu. Tæpara gæti það samt varla verið því það munar bara einu marki á liðunum. Blikar fá í leiðinni að spila leikinn gegn FH á heimavelli.

Þróttarar gulltryggja sig í efri hlutanum og enda í 5. sæti með 23 stig. Þróttarar enduðu mótið af krafti en þær eru taplausar í síðustu sex leikjum.

Vondur dagur

Mollee Swift (Þróttur).
Verð að klína þessu á Mollee sem hefði mátt gera betur í markinu sem Breiðablik skoraði. Var illa staðsett og var lengi að átta sig á lausu skoti Katelyn Duong sem endaði í netinu.

Dómarinn - 7

Hafði góða stjórn á leiknum og línan var góð. Líklega ekki erfiður leikur til þess að dæma og lítið um erfiðar stórar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.