Fyrir leik
Spáin
Fyrir leik
Mættust í 1. umferð
Fyrri viðureign liðanna á tímabilinu var jafnframt fyrsti leikur deildarinnar. Edith Kristín Kristjánsdóttir og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoruðu virkilega flott mörk með stuttu millibili undir lok fyrri hálfleiks en mörkin urðu ekki fleiri og 2-0 sigur Blika staðreynd.
Sjáðu allt það helsta úr leiknum.
Sjáðu allt það helsta úr leiknum.
Fyrir leik
Breiðablik
Blikakonur hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum, 2-0 gegn Stjörnunni og 2-1 gegn ÍBV. Þar á undan höfðu þær unnið fimm í röð. Blikar sitja í öðru sæti deildarinnar með 36 stig, einu stigi á eftir FH sem hrifsaði toppsætið af þeim með 2-1 sigri á Þór/KA. Blikum nægir jafntefli í dag til þess að endurheimta toppsætið og fá heimavallarréttinn í toppslagnum eftir skiptingu.


Fyrir leik
Þróttur
Þróttarar hafa verið á góðu skriði síðustu vikur. Þær hafa ekki tapað leik síðan 20. júlí og þær eru ósigraðar í síðustu fimm. Tveir sigrar og þrjú jafntefli. Í síðustu umferð gerðu þær markalaust jafntefli gegn Þór/KA hér í Laugardalnum. Þróttarar sitja í 5. sæti, jafnar að stigum við Grindavík/Njarðvík og Fram í 6. og 7. Sæti með 22 stig. Það er því enn tölfræðilega mögulegt að heimakonur endi í neðri helmingnum en þá þurfa þær að þola tólf marka tap í dag, svo efri helmingurinn er svo gott sem gulltryggður.


Fyrir leik
Dómarateymið
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson verður með flautuna í kvöld. Ásgeir Viktorsson og Kristinn Freyr Victorsson verða með flöggin, fjórði dómari verður Milan Djurovic og dómaraeftirlitsmaður kvöldsins verður Sigurður G Friðjónsson.


Fyrir leik
Lokaumferðin
Leikurinn er hluti af tíundu umferð deildarinnar en umferðinni var frestað vegna EM u19 sem var haldið fyrr í sumar.
Umferðin:
5. september
ÍBV 2-3 Fram
6. september
FH 2-1 Þór/KA
Grindavík/Njarðvík 1-4 Valur
7. september
Stjarnan - Víkingur (19:15)
Þróttur - Breiðablik (19:15)
Umferðin:
5. september
ÍBV 2-3 Fram
6. september
FH 2-1 Þór/KA
Grindavík/Njarðvík 1-4 Valur
7. september
Stjarnan - Víkingur (19:15)
Þróttur - Breiðablik (19:15)
Fyrir leik
Pepsi völlurinn heilsar
Verið velkomin kæru lesendur í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Þróttar og Breiðabliks í öðrum af lokaleiknum fyrir skiptingu.






“Þróttarar þurfa að tryggja sig frá neðri hlutanum og mæta Blikum eftir að þær hafa verið að vinna yfirvinnu síðustu daga eins og FH líka. Þróttarar munu taka þennan leik og tryggja sæti í efri hluta deildarinnar“