SKÝRSLAN: Baráttusigur Þróttara
Hvað réði úrslitum?
Vilji Þróttara til þess að ná í úrslit hér í dag. Njarðvík bankaði fast undir lok leiks en Þróttarar hentu sér fyrir alla bolta og Þórhallur ætlaði ekki að fá mark á sig.
Bestu leikmenn
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (Þróttur)
Var eins og klettur í markinu í dag. Skotin dundu á honum en hann varði þau öll, tvisvar - þrisvar virkilega vel. Þróttarar geta þakkað honum fyrir sigurinn.
2. Aron Snær Ingason (Þróttur)
Frábær í dag. Lagði upp markið og ógnaði verulega með hraða sínum og styrk. Fiskaði gult spjald og var erfiður viðureignar.
Atvikið
Þegar Oumar Diouck var sloppinn einn í gegn og Þórhallur tekur hann niður. Það setti tóninn og úr varð hörkuleikur. Njarðvíkingar ósáttir.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttarar fara með 1-0 forystu í einvíginu heim í Laugardalinn en það er allt opið og ekkert ráðið.
Vondur dagur
Því miður var þetta ekki nægilega dæmdur leikur svo þetta verður að skrifast á dómarann. Enginn leikmaður var skúrkur í dag. Oumar Diouck hefði mögulega mátt nýta færi sín betur en annars væri það full gróft að klína þessu á Oumar.
Dómarinn - 3
Get ekki gefið Gunnari hærri einkunn í dag. Atvikið í upphafi leiks voru klár mistök. Get ekki tjáð mig um vítaköll Njarðvíkur en hann dæmdi illa í báðar áttir. Grænklæddur gaf Hlyni Þórhalls greinilegan olnboga í andlit en ekkert spjald fór á loft. Línan alltof há og alltof lítið gripið inn í.


