Fotbolti.net
Helgi Inguson
Umspil Lengjudeildarinnar
Kórinn
HK
HK
2 - 3
Fylkir
Fylkir
Dominik Radic 45'1 - 01 - 155' Kári Sigfússon1 - 263' Theodór Ingi ÓskarssonArnþór Ari Atlason 76'2 - 22 - 389' Guðmundur Tyrfingsson (víti)
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson

SKÝRSLAN: Fylkir batt enda á sigurgönguna

Hvað réði úrslitum?

Það var jafnræði með liðunum í dag. Spennustigið var hátt hjá báðum liðum í fyrri hálfleik, þá sérstaklega Fylki sem spilaði lélegan sóknarleik. Bæði lið sýndu þá karakter í seinni hálfleik. Gestirnir komast yfir, HK nær að jafna metin en vítaspyrna Guðmunds Tyrfingssonar tryggði Fylki forystuna eftir fyrri leik liðanna.

Bestu leikmenn

1. Theodór Ingi Óskarsson

Hann var ekki að finna sig á hægri kantinum en var allt annar þegar hann fór yfir á þann vinstri. Ógnaði sífellt með hraða sínum og skoraði annað mark Fylkis.

2. Dominik Radic

Það sást svo sem ekkert alltof mikið til Radic í leiknum. Það segir sitt um hann, skorar og leggur upp og manni finnst hann eigi eitthvað inni.

Atvikið

Fylkismenn gleyma sér undir lok fyrri hálfleiks og Dominik Radic sleppur einn í gegn. Hann hljóp upp hálfan völlinn með þrjá Fylkismenn í bakinu áður en hann lék á Ólaf Kristófer og kom HK yfir með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Leikurinn hafði verið frekar bragðdaufur fram að markinu.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir fer heim í Árbæinn með eins marks forystu í einvíginu. Liðin mætast aftur á sunnudaginn í seinni leiknum. Sigurhrinu HK í Kórnum er þar með lokið og ljóst að liðið þarf að vinna á útivelli.

Vondur dagur

Birgir Steinn brýtur á Kára Sigfússyni undir lok leiks og vítaspyrna er dæmd. Birgir er klaufi þarna, Kári var ekki í hættulegri stöðu og óþarfi að vera svona ákafur í þessari stöðu. Hann spilaði annars flottan leik en það er ekki spurt að því.

Dómarinn - 9

Þórður var með allt í teskeið í dag. Mér þótti vítaspyrnudómurinn réttur og línan var fullkomin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.