Í BEINNI
Umspil Lengjudeildarinnar
Fylkir
LL 2
2
HK
Fylkir
2
2
HK
Samtals
5
:
4
Theodór Ingi Óskarsson '37 1-0
1-1 Birgir Steinn Styrmisson '54
1-2 Dominik Radic '65
Guðmundur Tyrfingsson '105 2-2
Dominik Radic '105
Aron Snær Guðbjörnsson '121
Aron Kristófer Lárusson '122
13.09.2026  -  19:15
tekk VÖLLURINN
Umspil Lengjudeildarinnar
Aðstæður: Mikill vindur og smá rigning
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Maður leiksins: Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson (f)
4. Hlynur Sævar Jónsson
6. Guðfinnur Þór Leósson ('76)
11. Magnús Daði Ottesen ('68)
17. Birkir Eyþórsson ('106)
20. Theodór Ingi Óskarsson ('68)
23. Aron Snær Guðbjörnsson
70. Guðmundur Tyrfingsson
77. Bjarki Steinsen Arnarsson ('76)
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
30. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
7. Máni Austmann Hilmarsson ('68)
9. Eyþór Aron Wöhler ('106)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('68)
13. Þórður Ingi Ingimundarson
14. Tumi Fannar Gunnarsson ('76)
18. Nikulás Val Gunnarsson ('76)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Daði Ólafsson (Leikgr.)
Arnór Gauti Brynjólfsson (Styrktarþj.)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (MÞ)
Kristófer Sigurgeirsson (AÞ)
Ágúst Aron Gunnarsson (Liðsstj.)
Daníel Bjarki Stefánsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Bjarki Steinsen Arnarsson ('59)
Nikulás Val Gunnarsson ('90)
Aron Snær Guðbjörnsson ('108)
Guðmundur Tyrfingsson ('117)
Eyþór Aron Wöhler ('119)

Rauð spjöld:
Aron Snær Guðbjörnsson ('121)
Skýrslan
@fotboltinet Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Skýrslan: 13 gul og 3 rauð í áhugaverðum leik
Hvað réði úrslitum?
Þetta var stál í stál, bæði lið hefðu geta unnið þennan leik. Þrátt fyrir að vera einum færri þá gat HK alveg unnið þetta. Það voru litlu mómentin sem tóku þetta, HK menn slökkva á sér í nokkrar sekúndur og Gummi Tyrfings skorar, svona fór leikurinn. Þetta var mjög áhugaverður leikur og margt hægt að ræða eftir hann.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Skoraði sigurmarkið, fyrir utan það var hann að ógna mjög mikið og átti sinn þátt í fyrra markinu.
2. Ívar Örn Jónsson (HK)
Tvær stoðsendingar í dag, föstu leikatriðin sem hann tók voru alltaf að ógna. Þessar tvær stoðsendingar voru mjög góðar. Vil nýta þennan dálk líka til þess að hrósa Jóhanni Þór sem kom flottur af bekknum hjá HK. Theodór Ingi frá Fylki var góður líka.
Atvikið
Rauða spjaldið hjá Radic breytir öllu. Þetta gerist rétt fyrir hálfleik í framlengingu og í seinni þá missa menn hausinn, 10 gul spjöld eftir það, allir að rífast og tuð frá HK bekknum. HKingar gera vel eftir að vera einum færri en spurningin er hvað myndi gerast ef þeir væru ellefu.
Hvað þýða úrslitin?
HK er dottið úr leik en Fylkir spilar á móti Þrótti á Laugardalsvelli í úrslitaleik Lengjudeildarumsspilsins.
Vondur dagur
Ólafur Kristófer í seinna markinu, spurning hvort að hann eigi að verja þetta, skallinn fer yfir hann, ég þarf að sjá endursýningu en fyrst leit þetta illa út. Radic á líka ekki að haga sér svona þótt að honum finnst að þetta var brot, mjög heimskulegt. Rauða spjaldið hjá Aroni Kristófer er eiginlega en þá verra, hann reynir ekkert að fara í boltann og þetta er bara pjúra pirringur. Aron Snær missir af leiknum gegn Þrótti með tvö gul sem bæði var hægt að sleppa, þetta var allt heimskulegt og hann veit það sjálfur.
Dómarinn - 2
Ég sá ekki hvort að Radic sparkaði eða gaf olnboga en útskýringin var að þetta var ásetningarbrot sem er auðvitað rautt. En það er klárlega brotið á Radic fyrir seinna mark Fylkis og að dómarinn sá það ekki er alls ekki gott. Svo átti HK að fá víti eftir að Jóhann Þór kemst inn í teiginn og hann er svo keyrður niður í framlengingu. Þetta var ekki allt HK, dómarinn var líka ekki góður fyrir Fylki, Gummi Tyrfings var tekinn niður rétt fyrir utan teig HK og fékk ekki neitt. Bjarki tekur Atla niður en rétt fyrir það var höndin hans Atla í hausnum á Bjarka. Þetta er ekki gott og ég skil stuðningsmenn HK mjög vel að þeir séu pirraðir eftir þennan leik.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
5. Þorsteinn Aron Antonsson
8. Arnþór Ari Atlason (f)
10. Atli Hrafn Andrason ('96)
15. Birgir Steinn Styrmisson
16. Svavar Örn Þórðarson ('115)
17. Dominik Radic
19. Atli Þór Gunnarsson
21. Ívar Örn Jónsson ('101)
27. Karl Ágúst Karlsson ('106)
28. Tumi Þorvarsson ('106)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson ('101)
9. Jóhann Þór Arnarsson ('106)
20. Breki Hólm Baldursson ('106)
23. Baldvin Dagur Vigfússon
26. Viktor Helgi Benediktsson ('115)
45. Alexander Örn Guðmundsson ('96)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson (Liðsstj.)
Þjóðólfur Gunnarsson (Liðsstj.)
Sigurður Már Birnisson (Styrktarþj.)
Arnar Freyr Smárason (AÞ)
Ingvar Örn Kristinsson Valberg (Sjúkraþj.)
Sandor Matus (MÞ)

Gul spjöld:
Birgir Steinn Styrmisson ('44)
Ívar Örn Jónsson ('78)
Sigurður Már Birnisson ('105)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson ('107)
Aron Kristófer Lárusson ('108)
Þorsteinn Aron Antonsson ('108)
Arnþór Ari Atlason ('117)
Alexander Örn Guðmundsson ('122)

Rauð spjöld:
Dominik Radic ('105)
Aron Kristófer Lárusson ('122)