SKÝRSLAN: Laugardalurinn kallar á Selfoss!
Hvað réði úrslitum?
Álftanes byrjuðu leikinn af miklum krafti og gerðu Selfyssingum erfitt fyrir. Álftanes missti hins vegar mann af velli með rautt spjald eftir um 26 mínútna leik, og þá varð brekkan alltaf brattari og brattari fyrir gestina, Selfyssingar nýttu sér liðsmuninn vel og keyrðu yfir þá.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Stefánsson
Skoraði fyrstu tvö mörk Selfyssinga og komu þeim almennilega á bragðið í dag, var mjög ógnandi inní teig Álftnesinga
2. Viðar Örn
VÖK var mjög góður í dag duglegur að koma niður á völlinn að sækja boltan og búa til færi fyrir félaga sína. Viðar skoraði einnig frábært mark úr aukaspyrnu.
Atvikið
Ætla setja rauða spjaldið á Hilmi þegar hann tók Elías niður sem var sloppinn einn í gegn. Einnig ætla ég að setja þegar VÖK vélinn setti eitt gullfallegt aukaspyrnumark í netið rétt áður en hann var tekinn af velli fyrir Aron Fannar sem skoraði held ég 10 sekúndum eftir að hann kom inná!
Hvað þýða úrslitin?
Álftanes kveðja að þessu sinni eftir gott run.
Selfoss fer á Laugardalsvöll og mæta Haukum.
Selfoss fer á Laugardalsvöll og mæta Haukum.
Vondur dagur
Ætla nánast ekki að gefa neinum þetta en það er alltaf jafn leiðinlegt. En Hilmir Ingi fær þetta fyrir að fá þetta rauða spjald sem gerði leikinn miklu miklu erfiðari fyrir Álftanes.
Dómarinn - 9
Hef ekkert útá Gunnar að setja og fær 9 í einkunn!



