SKÝRSLAN: Haukar komnir í úrslitaleikinn
Hvað réði úrslitum?
Haukar voru betri til að byrja með og svo í restina, þeir náðu inn jöfnunarmarki og komu leiknum í vítaspyrnukeppni sem þeir kláruðu vel.
Bestu leikmenn
1. Óliver Steinar Guðmundsson
Ég ætla gefa Óliver þetta, Óliver var bara mjög solid í dag gerði það sem hann þurfti og á að gera og gerði það vel! Hann skoraði einnig úr sinni vítaspyrnu.
2. Uros Djuric
Uros varði 3-4 virkilega vel í dag og varði einnig eitt víti.
Atvikið
Frederico Russo Anzola klúðraði vítinu sem hefði getað komið Kormáki/Hvöt í bráðabana og hefði gefið þeim von um að komast í þennan úrslitaleik
Hvað þýða úrslitin?
Haukar eru komnir í úrslitaleikinn á móti Selfossi á meðan Kormákur/Hvöt eru úr leik.
Vondur dagur
Pere Belmonte átti frekar slakan dag, náði ekki að skapa sér mikið, fékk gult spjald og klúðraði víti.
Dómarinn - 6
Bergvin Fannar var bara svona allt í lagi í dag, bæði liðin kvörtuðu 2-3 yfir ákvörðunum og kannski spurning um 2 ákvarðanir sem hann tók í dag. En heilt yfir bara allt í lagi leikur hjá honum.


