Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Besta karla - Efri hluti
Meistaravellir
KR
KR
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
Galdur Guðmundsson 10'1 - 01 - 134' Helgi Guðjónsson (víti)1 - 271' Stígur Diljan Þórðarson89' Daníel Hafsteinsson90' Sveinn Margeir Hauksson90' Aron Baldvin Þórðarson90' Hajrudin Cardaklija Hrafn Tómasson 90'
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Víkingur er Íslandsmeistari árið 2026

Hvað réði úrslitum?

Víkingar byrjuðu leikinn ekki nógu vel en þeir unnu sig smátt og smátt inn í leikinn. Þegar Helgi Guðjónsson jafnaði metin gengu Víkingar á lagið og tóku yfir leikinn. Bæði lið sköpuðu sín færi en Víkingar heilt yfir sterkari aðilinn í þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Gylfi Þór Sigurðsson

Mögnuð frammistaða. Gylfi var frábær varnarlega og sóknarlega í þessum leik. Ég get ekki talið hversu oft hann bjargaði Víkingum eftir mistök (ball recovery. Hann stjórnaði einnig miðjunni eins og hershöfðingi.

2. Stígur Diljan Þórðarson

Stígur skorar auðvitað sigurmarkið í þessum leik. Hann skapaði einnig mikinn usla í þágu Víkinga allan leikinn. Steig virkilega upp í þessum leik.

Atvikið

Annars vegar sigurmarkið sem Stígur skoraði. Hann var fyrstur til að ráðast á lausa boltann, komst einn í gegn og kláraði færið af öryggi. Hins vegar þegar Sveinn Margeir fékk að líta rauða spjaldið. Víkingar trylltust við það og þá fór að sjóða upp úr.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Víkingur er Íslandsmeistari árið 2026. KR-ingar þurfa að sætta sig við að áframhaldandi baráttu um 2. sætið.

Vondur dagur

Það var enginn sem átti sérstaklega vondan dag.

Dómarinn - 6

Heilt yfir dæmdi Sigurður Hjörtur leikinn vel. Að mínu mati hefði Sveinn Margeir átt að fá gult en ekki rautt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.