SKÝRSLAN: Alessandra læsti markinu og Margrét lyfti Þór/KA af botninum
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mikill baráttuleikur og það sem réði úrslitum var hreinlega bara mjög þéttur varnarleikur hjá Þór/KA sem og að Alessandra Augur í markinu átti stórleik, þær náðu síðan að pota inn marki eftir horn og þetta eina mark er það sem skilar stigunum þrem norður!
Bestu leikmenn
1. Alessandra Dorothy Augur
Var frábær í marki Þórs/KA, var örugg í öllum sínum aðgerðum og átti margar mjög mikilvægar vörslur sem kom í veg fyrir að Valur næði að stela sigrinum.
2. Arna Sif Ásgrímsdóttir
Fyrirliðinn var líka frábær í dag bara eins og öll aftasta lína Þórs/KA. Ég veit ekki hversu margar fyrirgjafir og skot Arna Sif fleygði sér fyrir, er líka grjóthörð í föstum leikatriðum bæði varnarlega og sóknarlega. Margrét Árna fær líka kudos fyrir gott mark sem auðvitað varð til þess að Þór/KA fór heim með þrjú stig í stað eins!
Atvikið
Á 62. mínútu varði Alessandra frábærlega hörkuskot Emmu Hawkins sem stefndi í fjærhornið. Aðeins mínútu síðar fór Þór/KA upp hinn endann og fékk horn þar sem Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins. Risastór sveifla sem réði úrslitum.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Þór/KA spyrna sér af botninum og í 2. sæti neðri hlutans, með 22 stig, stigi á eftir Fram og stigi á undan Víking. Valur vermir nú botnsætið með 20 stig. Þessi keppni hefur sldrei verið jafn jöfn og öll liðin eiga enn möguleika á að bjarga sér eða misstíga sig,
Vondur dagur
Svo sem ekki vondur dagur kannski en set þetta á sóknarlínu Vals. Heimakonur sköpuðu sér næg færi, fóru meðal annars í stöng og neyddu Alexöndru til stórra varslna, en fundu aldrei leiðina framhjá henni. Í jafn mikilvægum leik reyndist færanýtingin dýrkeypt.
Dómarinn - 8
Twana og hans teymi áttu bara fínasta dag í dag. Þetta var erfiður leikur að dæma þar sem mikil barátta og hiti var í leiknum en mér fannst dómarateymið halda sig við setta línu og leyfi og dæmdi á báða bóga!



