Fotbolti.net
Besta deildin
Magnús Atlason
Besta kvenna - Neðri hluti
N1-völlurinn Hlíðarenda
10°, grátt en fínasta fótboltaveður.
Valur
Valur
1 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Emma Hawkins 14'1 - 01 - 121' Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
ÞÞÞ flautar til leiksloka. 1-1 jafntefli niðurstaðan hér í kvöld eftir fínustu skemmtun á Hlíðarenda. Nóg af færum þó ekki dauðafærum. Það stefnir í þriggja liða kapphlaup um eitt öruggt sæti í deild þeirra bestu í lokaumferðinni.
Valur
90. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtArnfríður Auður Arnarsdóttir
90+4
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
89. mín
Ekki mikið búið að gerast síðustu 10 mínútur eða svo.
Víkingur R.
84. mín
InnSelma Dögg Björgvinsdóttir
ÚtThea Rhode
Valur
84. mín
InnGlódís María Gunnarsdóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
Tvöföld skipting
Valur
84. mín
InnSonja Björg Sigurðardóttir
ÚtKimberley Dóra Hjálmarsdóttir
Víkingur R.
79. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
76. mín
SLÁIN AFTUR
Ragnheiður hleður í svakalegt skot, Telma nær rétt svo að slæma höndinni í boltann og þaðan fer hann upp í slánna og aftur fyrir.

Alvöru kraftur sem hún náði í þetta skot.
70. mín
Víkingur fær horn. Bergdís tekur hornið en það kom ekkert úr því.
67. mín
Kimberley með skot fyrir utan teig en rétt framhjá þverskeytunum. Ekki galin tilraun.
63. mín
Skemmtilegt atvik
ÞÞÞ var eitthvað ósáttur við boltann og neglir honum í átt að varamannaskýlunum, beint á Einar Víkingsþjálfara sem grípur boltann. Áhorfendur taka við sér og klappa fyrir þessu.
62. mín
Það eru sóknir á báða bóga og leikurinn er virkilega hraður. Liðin verða samt að fara að skapa sér meira en hálffæri.
61. mín
Jóhanna með skotið við vítateigshornið en rétt yfir markið.
59. mín
Arnfríður í baráttunni inn í teignum eftir góðan bolta frá Ragnheiði en Víkingar koma knetttinum frá en sóknin heldur áfram. Arnfríður nær á endanum fínu skoti fyrir utan teig en Telma ver.
57. mín
Aukaspyrnan inn í teiginn en gestirnir koma honum frá.
Víkingur R.
57. mín
Gult spjald

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir

Brýtur á hættulegum stað.
56. mín
Víkingur með hornspyrnu inn í teiginn en boltinn endar í markspyrnu.
53. mín
Víkingar í hættulegri sókn en fyrirgjöf Þórdísar er alltof föst og endar í markspyrnu.
Valur
51. mín
InnÍsabella Sara Tryggvadóttir
ÚtEmma Hawkins
50. mín
Emma Hawkins lendir í samstuði og kallar eftir skiptingu.
47. mín
Arnfríður tekur á rás með flugbraut fyrir framan sig. Hún tekur stuttan þríhyrning við vítateiginn og dúndrar svo á markið en skotið beint á Telmu.
47. mín
Hafliði Breiðfjörð er með myndavélina undir ljósunum á Hlíðarenda
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

46. mín
Leikurinn farinn af stað aftur
Helga sparkar beint í innkast.
Víkingur R.
46. mín
InnAnika Jóna Jónsdóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
Skipting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Þórður flautar til hálfleiks hér. Stórskemmtilegur og opinn fyrri hálfleikur að baki, mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri. Tökum okkur korter.
45. mín
45+1
Hornspyrna Vals yfir allan pakkann.
45. mín
Einni mínútu verður bætt við þennan fyrri hálfleik.
Víkingur R.
45. mín
Gult spjald

Bergdís Sveinsdóttir

Togar Arnfríði niður. Augljóst spjald.
41. mín
Valskonur gera vel og koma boltanum inn fyrir á Emmu en skotið tiltölulega beint á Telmu.
40. mín
Jóhanna Elín með hörkuskot rétt framhjá. Ég hélt að þessi væri á leiðinni inn.
38. mín
Valur meira með boltann þessa stundina en sendingarnar á köflum ónákvæmar.
32. mín
Arnfríður kemur sér í skotfæri og lætur vaða í nærhornið en Telma sér við þessu.
31. mín
Hornspyrna Þórdísar inn í markteig og virtist vera á leiðinni inn en Tinna kýlir boltanum frá.

Alvöru bananabolti á þessari spyrnu!
29. mín
SLÁIN
Jóhanna Elín með lúmskt skot. Boltinn fer ofan af þverslánnni og afturfyrir. Tinna hreyfði sig ekki í markinu.
27. mín
Heimakonur spila mjög vel sín á milli í langri sókn en koma sér aldrei í skot. Sóknin rennur út í sandinn þegar brotið er á varnarmanni.
Víkingur R.
21. mín
ALLT JAFNT

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Víkingur fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Vals. Sendingin á hættulegan stað inn í teignum og Valur kemur boltanum ekki frá. Stórskotahríð hefst að marki heimakvenna sem gat ekki annað en endað með marki.

Þórdís að skora á móti sínum gömlu félögum.
18. mín
Víkingur fær horn og svo annað horn.

Spyrnan meðfram jörðinni út í D-bogann þar sem Bergþóra reynir skotið í fyrsta en skotið hátt yfir markið.
Valur
14. mín
MAAARKKKKK

Emma Hawkins (stoðsending: Margrét Brynja Kristinsdóttir)

Valur kallar eftir broti í aðdragandanum en ÞÞÞ gerir vel og leyfir leiknum að ganga. Margrét á gott hlaup og þræðir boltann á hárréttum tíma inn í teiginn á Emmu sem klárar fagmannlega í fjærhornið.

Heimakonur komnar yfir!
11. mín
Ragnheiður með frábæra sendingu inn fyrir á Margréti sem lúrir inn í teig. Hún og Telma skella saman í baráttunni um boltann.

Telma liggur eftir en leikurinn farinn af stað aftur.
9. mín
Leikurinn hefur aðeins róast eftir hörkubyrjun hjá gestunum.
5. mín
Valur fær horn en það verður ekkert úr því.
4. mín
Aftur kemur sending fyrir markið en skotið ekki gott. Tvö dauðafæri hjá gestunum á fyrstu fjórum mínútum leiksins.
1. mín
DAUÐAFÆRI
Víkingar nærri því búnir að komast yfir strax á 1. mínútu.
Frábær sending yfir allan völlinn, sendingin svo inn í teiginn þar sem Thea bíður inn í markteig. Veit ekki hvort þetta hafi verið snerting eða skot hjá henni en boltinn endar hjá Tinnu í markinu.

Dauðafæri.
1. mín
Farið af stað!
Jasmín Erla hefur leik.

Valsarar rauðklæddar, Víkingar hvítklæddar.
Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir
Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Þór/KA í síðustu umferð. Kolbrá Una Kristinsdóttir kemur inn í liðið í stað Ísabellu Söru Tryggvadóttur sem sest á bekkinn.

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá jafnteflinu gegn Fram. Emma Steinsen Jónsdóttir og Thea Rhode koma inn í liðið. Anika Jóna Jónsdóttir og Arna Ísold Stefánsdóttir tylla sér á bekkinn.
Fyrir leik
Viðureignir liðanna á tímabilinu
Valur hefur unnið báða leikina gegn Víking á tímablinu 1-0. Nadía Atladóttir skoraði sigurmarkið í fyrri leiknum á sínum gamla heimavelli í 6. umferðinni.

Það var svo Emma Hawkins sem skoraði sigurmarkið í seinni leiknum sem spilaður var á Hlíðarenda í 15. umferðinni.

Sjáðu allt það helsta úr leikjunum tveimur



Fyrir leik
Víkingur
Tímabil Víkings hefur líka verið vonbrigði. Eftir að hafa lent í 5. sæti á síðustu leiktíð var liðinu spáð 3. sæti í spá Fótbolta.net. En liðið hefur aldrei komist á almennilegt strik fyrr en núna.

Víkingur endaðu í 9. sæti fyrir skiptingu, jafnar að stigum við Val. Víkingur vann þó þrjá síðustu leiki sína í deildinni og gerði svo 2-2 jafntefli gegn Fram upp í Úlfarsárdal í fyrst umferð eftir skiptingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Valur
Það eru breyttir tímar á Hlíðarenda. Eitt sigursælasta lið landsins eru í góðri hættu á því að falla. Valur er eina liðið sem hefur aldrei spilað annarsstaðar en í efstu deild svo það yrði högg fyrir liðið.

Valur endaði tímabilið fyrir skiptingu í 8. sæti með 20 stig en þær söfnuðu sjö stigum í síðustu þremur leikjunum. Liðið tapaði þó í fyrstu umferð neðri hlutans á heimavelli gegn Þór/KA 1-0.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómararnir
Þórður Þorsteinsson Þórðarson verður með flautuna í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Mikael Ívan Axelsson og Tryggvi Elías Hermannsson. Þorfinnur Gústaf Þorfinsson verður á milli varamannabekkjanna á meðan Þórður Ingi Guðjónsson verður dómaraeftirlitsmaður leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mikið undir í kvöld
Neðri hluti deildarinnar í ár gæti varla verið meira spennandi. Það munar þremur stigum á efsta og neðsta sæti, en neðsta sæti er með betri markatölu en efsta sætið, svo að allt getur gerst.

Leikirnir tveir í 2. umferð neðri hlutans hefjast á sama tíma.

Svona lítur þetta út:

25. september
Valur - Víkingur (18:00)
Þór/KA - Fram (18:00)

1. Fram, 23 stig(-15)
2. Þór/KA, 22 stig (-3)
----------------------------
3. Víkingur, 21 stig (-11)
4. Valur, 20 stig (-10)

Fyrir leik
Hlíðarendi heilsar!
Góða kvöldið kæru lesendur og verið velkomnir í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Hlíðarenda þar sem Valur tekur á móti Víkingi í neðri hluta Bestu deildar Kvenna.

Flautað verður til leiks á slaginu 18:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.