Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Jónasson
Besta kvenna - Neðri hluti
VÍS völlurinn
8 gráður og skýjað
Þór/KA
Þór/KA
1 - 2
Fram
Fram
0 - 111' Sara Svanhildur Jóhannsdóttir0 - 218' Emma Kate YoungMargrét Árnadóttir (víti) 36'1 - 2
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Áhorfendur: 322
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
1-2 lokatölur! Fram áfram í deild þeirra bestu á næsta ári
Skemmtilegum leik lokið og er ljóst að Fram halda sér í Bestu deild kvenna á meðan Þór/KA eru að fara í æsispennandi lokaleik í næstu umferð.
Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld.
95. mín
Fyrirgjöf frá Maríu á Örnu Sif sem skallar boltann framhjá
94. mín
Þór/KA fá aukaspyrnu, síðasti séns?
93. mín
Þór/KA að gera allt sem þær geta til að reyna jafna
90. mín
4 mínútum bætt við
90. mín
Halla Bríet með fína fyrirgjöf á Örnu Sif sem á lélegt skot sem er á leiðinni framhjá
Fram
89. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtSara Svanhildur Jóhannsdóttir
88. mín
Arna Sif farin fram, Þór/KA ætla láta hann vinna löngu boltana
Þór/KA
88. mín
InnAmalía Árnadóttir
ÚtKaren María Sigurgeirsdóttir
87. mín
Karen María með hörku skot rétt fyrir utan teig en boltinn fer rétt framhjá!
Þór/KA að ógna mun meira þessar seinustu mínútur
84. mín
Þór/KA fá aukaspyrnu á fínum stað
78. mín
Þór/KA fá hornspyrnu
Fram
76. mín
InnHlín Heiðarsdóttir
ÚtKatrín S. Vilhjálmsdóttir
73. mín
Fram fá hornpyrnu
70. mín
Karen María með skot af löngu færi sem fer beint á Ashley í markinu
Þór/KA
69. mín
InnHalla Bríet Kristjánsdóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
68. mín
Taylor Marie keyrir inn á völlinn og ákveður að láta vaða lengst fyrir utan teig og boltinn fer hátt yfir markið
65. mín
Fram komnar í góða stöðu og reyna fyrirgjöf sem Karen Hulda gerir vel í og kemur boltanum í horn
Fram
61. mín
InnUna Rós Unnarsdóttir
ÚtKatrín Erla Clausen
60. mín
Hulda Ósk komin ein í gegn og í góða stöðu en gerir ekki vel og Fram vinna boltann
59. mín
Fram fá hornspyrnu
56. mín
Hulda Ósk gerir virkilega vel og Þór/KA fá hornspyrnu
55. mín
Þór/KA fá hornspyrnu
Þór/KA
51. mín
InnErin Flurey
ÚtAngela Mary Helgadóttir
47. mín
Fram fá hornspyrnu
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
Þór/KA sparka seinni hálfleiknum í gang
45. mín
Hálfleikur
Fram leiðir 2-1 í hálfleik
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið.
45. mín
2 mínútur í uppbót
40. mín
Þór/KA aðeins að sækja núna
Þór/KA
36. mín
Þór/KA að minnka muninn

Margrét Árnadóttir

Setur boltann í vinstra hornið niðri!
Öruggt!
Fram
35. mín
VÍTI!

Ashley Brown Orkus

Kemur fyrirgjöf frá hægri og Lauren er að hlaupa að boltanum og Ashley missir af boltanum og tekur þar með Lauren niður og Gunnar bendir á punktinn
32. mín
Alessandra liggur eftir og þarf aðhlynningu, spurning hvort þetta sé taktískt stopp
31. mín
Sara Svanhildur kominn upp hægri kantinn og kemur með góða fyrirgjöf en það er ekki neinn í teignum
30. mín
Gott færi!
Hulda Ósk gerir virkilega vel og klobbar eina og rennir svo boltanum út í teiginn á Elizabeth Moore sem tekur skot sem Framarar komast fyrir!
Þór/KA
24. mín
Gult spjald

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson

21. mín
Taylor tekur gott skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá markinu!
Fram að sækja miklu meira þessa stundina
Fram
18. mín
2-0!!!!

Emma Kate Young

Kemur góð fyrirgjöf þar sem er mikil barátta og boltinn hrekkur fyrir framan markið þar sem Emma Kate er mætt og potar boltanum inn!
17. mín
Fram fá aukaspyrnu á fínum stað til að gefa fyrir
15. mín
Valur eru komnar yfir gegn Víking R.
Fram
11. mín
Fram eru komnar yfir!!!

Sara Svanhildur Jóhannsdóttir (stoðsending: Brookelynn Paige Entz)

Fram eiga innkast og taka 1-2 þríhyrningaspil og svo kemur boltinn fyrir þar sem Sara Svanhildur nær að pota boltanum í átt að markinu og boltinn endar inni!

Fram 1 Þór/KA 0!
8. mín
Þór/KA fá aukaspyrnu á fínum stað
7. mín
Virkilega góð mæting í stúkuna í kvöld
4. mín
Klaufaleg mistök
Fram tapa boltanum á hættulegum stað og Karen María nær boltanum og sér að Ashley Orkus er ekki í markinu og Karen reynir þá skot í fyrsta sem fer rétt yfir markið!
1. mín
Leikur hafinn
Fram sparka þessu af stað, góða skemmtun!
Fyrir leik
Liðin að ganga inn á völlinn
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þór/KA
Þór/KA gera enga breytingu á sínu liðið frá 0-1 sigrinum gegn Val í síðustu umferð.

Fram
Fram eru einnig með óbreytt lið frá síðasta leik sem endaði í 2-2 jafntefli við Víking R.
Fyrir leik
Síðasta umferð
Þór/KA vann 0-1 útisigur á Val í síðustu umferð en degi áður hafði Fram gert 2-2 jafntefli gegn Víkingi.

Taylor Marie Hamlett og Alda Ólafsdóttir gerðu mörk Fram í þem leik og það var Margrét Árnadóttir sem gerði sigurmark Þórs/KA gegn Val.
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Leikurinn er liður í næstsíðsutu umferð deildarinnar og Fram getur tryggt sæti sitt í deildinni með sigri.

Fram er fyrir leikinn með 23 stig, Þór/KA er með 22, Víkingur er með 21 og Valur er með 20 á botninum. Valur og Víkingur mætast á sama tíma á Hlíðarenda.

Ef Þór/KA vinnur og Víkingur og Valur gera jafntefli þá er Þór/KA öruggt með sæti sitt í deildinni. Þór/KA er með langbestu markatöluna af liðunum fjórum.
Fyrir leik
Frítt á völlinn
Ákall til Akureyringa!

Nú sem aldrei fyrr er þörf á stuðningi við stelpurnar okkar. Síðasti heimaleikurinn á dagskrá í kvöld, frítt á völlinn í boði Bílaleigu Akureyrar og Grand þvottar ehf.

Gríðarlega hörð og spennandi barátta fjögurra liða í tveimur síðustu umferðum neðri hluta deildarinnar og öflugur stuðningur úr stúkunni getur hreinlega skipt sköpum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.