SKÝRSLAN: Stórsýning Bríetar Fjólu gegn andlausum Garðbæingum
Hvað réði úrslitum?
Þróttur var einfaldlega miklu betra liðið á öllum sviðum leiksins í dag. Heimakonur hittu líklega á sinn besta leik í sumar á meðan þetta var versta frammistaða Stjörnunnar það sem af er móts.
Bestu leikmenn
1. Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þróttur R.)
Bríet var frábær í dag. Það er afskaplega mikið spunnið í þennan leikmann. Hún skoraði þrjú lagleg mörk og ógnaði vörn Stjörnunnar sífellt með hraða sínum og tækni. Hún er aðeins 16 ár gömul!
2. Sæunn Björnsdóttir (Þróttur R.)
Það er talsvert erfiðara verkefni að velja næst besta leikmanninn á vellinum. Sæunn var afskaplega örugg í sínum aðgerðum í vörn Þróttar. Hún átti stóran þátt í tveimur fyrstu mörkum liðsins með stórhættulegum fyrirgjöfum.
Atvikið
Þriðja mark Þróttar drepur leikinn. Guðmundur dómari fær boltann í sig eftir misheppnaða sendingu Þróttara en Þróttur heldur knettinum og Guðmundur leyfir leiknum að fljóta. Nokkrar Stjörnukonur voru hættar og Bríet Fjóla refsar þeim. Hún keyrir upp völlinn og á frábært skot fyrir utan teig sem syngur í netinu. Það er spurning hvort Guðmundur hafi átti að stöðva leikinn eftir að hafa fengið boltann í sig, hægt að færa rök fyrir því að heimakonur hafi hagnast af því.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur jafnar Stjörnuna að stigum og liðin sitja í fjórða og fimmta sæti deildarinnar. Stjarnan hefur nú tapað fjórum leikjum í röð.
Vondur dagur
Stjörnuliðið í heild sinni var lélegt í dag. Fyrri hálfleikur var gjörsamlega í eign Þróttar og mörkin hefðu getað orðið fleiri. Liðið mætti betur út í seinni hálfleik en heimakonur tóku þá aftur yfir leikinn eftir korter. Ljóst er að eitthvað þarf að breytast í Garðabæ.
Dómarinn - 6
Mér fannst Guðmundur alltaf hafa góða stjórn á leiknum. Að mínu mati á þriðja mark Þróttar ekki að standa í ljósi þess að Þróttur hagnast á því að boltinn fari af Guðmundi. Þetta var þó á gráu svæði og ekki hægt að draga hann mikið niður fyrir þá ákvörðun að leyfa leiknum að halda áfram.



