Leik lokið!
Grindavík vinnur góðan sigur á titilbaráttuliði FH hér í dag. Martraðarkafli í upphafi síðari hálfleiks reyndist FH afskaplega dýr í dag.
97. mín
InnBrynja Pálmadóttir
ÚtTinna Hrönn Einarsdóttir
95. mín
Boltinn uppvið hornfána á vallarhelmingi FH og tíminn að fljúga frá FH. Mínúta eftir af uppgefnum uppbótartíma eða svo.
94. mín
Júlía Ruth klók, vinnur boltann á miðjum vellinum og reynir lítið að sækja. Bíður eftir snertingu frá varnarmanni og nælir sér í aukaspyrnu. Tíminn vinnur með heimakonum.
93. mín
Birna Kristín reynir skot. lítur vel út en boltinn siglir framhjá stönginn.
Taylor virkaði með þetta alveg á hreinu.-
Taylor virkaði með þetta alveg á hreinu.-
92. mín
InnKatrín Lilja Ármannsdóttir
ÚtEmersen Jennings
91. mín
Hildur Katrín reynir skot fyrir gestina en boltinn í fang Taylor.
90. mín
Sex mínútur í uppbótartíma!
89. mín
Hafrún Birna með fast skot af töluverðu færi. Nær fínum krafti en stefnan beint í fang Taylor.
88. mín
Emersen vinnur boltann af harðfylgi við teig FH og reynir skotið. Auðveld viðureignar fyrir Steinunni í marki FH:
85. mín
InnJúlía Ruth Thasaphong
ÚtSanta Sanija Vuskane
82. mín
Fáum alvöru spennu hér í lokin!
Þær minnka munin
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir (stoðsending: Hrönn Haraldsdóttir)
Hornið tekið út í teiginn þar sem Hrönn skallar boltann í átt að marki. Elín Björg framlengir hann og skilar honum í netið af stuttu færi.Fáum alvöru spennu hér í lokin!
81. mín
Sóknarþungi FH að aukast mikið.
Vinna hér horn.
Vinna hér horn.
79. mín
Birna Kristín Björnsdóttir reynir skot af löngu færi. Ekki galin tilraun en boltinn yfir markið.
76. mín
Gult spjald
Emersen Jennings
Sparkar boltanum í burtu eftir að heimakonur voru dæmdar brotlegar.75. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtNia Raisa Christopher
74. mín
FH sækir hornspyrnu.
Darraðardans í teignum eftir hornið en Taylor sterk og hirðir upp boltann.
Darraðardans í teignum eftir hornið en Taylor sterk og hirðir upp boltann.
72. mín
Emersen Jennings kemst inn á teiginn frá hægri,. Reynir að finna Emmu sem er mætt í hlaupið í teignum en gestirnir bjarga í horn.
70. mín
Thelma Lóa með tíma og pláss úti til vinstri til að finna samherja í teignum. Kemur með boltann fyrir en Hayden mætt og kemur boltanum frá.
Hayden verið virkilega öflug í dag í vörn heimakvenna.
Hættuleg sókn FH
Thelma Lóa með tíma og pláss úti til vinstri til að finna samherja í teignum. Kemur með boltann fyrir en Hayden mætt og kemur boltanum frá.
Hayden verið virkilega öflug í dag í vörn heimakvenna.
69. mín
InnHildur Katrín Snorradóttir
ÚtHelena Maree Errington
69. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
67. mín
Deja með hörkuskot af löngu færi en Taylor vandanum vaxin og grípur boltann.
66. mín
Helena Maree með skot frá vítateigshorni sem svífur yfir markið.
Miklu meiri kraftur í liði FH núna.
Miklu meiri kraftur í liði FH núna.
63. mín
Færi!
Nia í hörkufæri inn á markteig eftir sendingu frá Ingibjörgu. Færið nokkuð þröngt en hún nær skotinu sem smellur í hliðarnetinu.
59. mín
Hafrún fær boltann fyrir utan teig Grindavík/Njarðvíkur og leggur hann vel fyrir sig áður en hún snýr boltann laglega í hornið fjær.
Það er von fyrir FH.
Þær eru enn á lífi!
Hafrún Birna Helgadóttir
Hafrún fær boltann fyrir utan teig Grindavík/Njarðvíkur og leggur hann vel fyrir sig áður en hún snýr boltann laglega í hornið fjær.
Það er von fyrir FH.
58. mín
Nia að vinna sig í færi við teig heimakvenna. Tekur skotið úr D-boganum en setur boltann yfir markið.
58. mín
Gestirnir skiljanlega nokkuð slegnar eftir þessar upphafsmínútur síðari hálfleiks. Heimakonur á meðan pollrólegar í öllu sem þær gera enda með þriggja marka forystu.
52. mín
InnSteinunn Erna Birkisdóttir
ÚtSigurborg K. Sveinbjörnsdóttir
Sigurborg getur ekki stigið í fótinn og er studd af velli. Hún sparkaði undir sólann á skóm Emmu er hún reyndi að hreinsa boltann frá og fór ansi illa út úr því.
49. mín
Boltinn innfyrir vörn FH og Emma eltir, Sigurborg mætir út á móti en Emma er á undan í boltann og rennir honum í netið. Sigurborg verður fyrir því að meiðast sömuleiðis og þarf skiptingu!
Martraðarmínútur fyrir FH og Sigurborgu!
Emma Nicole Phillips
Boltinn innfyrir vörn FH og Emma eltir, Sigurborg mætir út á móti en Emma er á undan í boltann og rennir honum í netið. Sigurborg verður fyrir því að meiðast sömuleiðis og þarf skiptingu!
48. mín
Stórfurðulegt mark.
Hvað gerðist þarna?
Emma Nicole Phillips
Engin hætta í loftinu og boltinn virðist stefna beint í fang SIgurborgar í marki FH eftir skalla úr teignum upp i loftið. En hún rennur á vellinum og missir boltann yfir sig og gerir eftirleikinn fyrir Emmu mjög auðveldan!Stórfurðulegt mark.
46. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
46. mín
InnBirna Kristín Björnsdóttir
ÚtMackenzie Elyze Smith
Mackenzie kemur af velli í hálfleik. Spurning hvort höfuðhöggið í fyrri hálfleik hafi haft eitthvð um það að segja.
46. mín
Gestirnir rúlla þess af stað.
Síðari hálfleikur hafinn
Gestirnir rúlla þess af stað.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks á JBÓ vellinum. Heimakonur með forystu eftir þennan baráttu fyrri hálfleik.
Tökum okkur smá hlé og mætum aftur að vörmu spori.
Tökum okkur smá hlé og mætum aftur að vörmu spori.
43. mín
Frábærlega skotið!
Mark
Tinna Hrönn Einarsdóttir
Boltinn berst út fyrir teiginn eftir horn, þar mætir Tinna, leggur boltann fyrir sig og hamrar hann í netið.Frábærlega skotið!
42. mín
Og uppskera horn.
Heimakonur sækja.
Og uppskera horn.
41. mín
Nia Raisa aftur að sleppa í gegn, kemst inn á teiginn hægra megin og nær skotinu en setur hann beint í fang Taylor í markinu,
38. mín
Hnoðið heldur áfram. Gestirnir heldur bætt í pressu sína síðustu mínútur þó.
31. mín
Nia Raisa að sleppa innfyrir og er að komast í dauðafæri. Hayden hleypur hana uppi og á frábæra tæklingu og vinnur af henni boltann.
Varnarleikur upp á 11
Varnarleikur upp á 11
30. mín
Leikurinn að litast af aðstæðum síðustu mínútur. Mikið að misheppnuðum sendingum í báðar áttir og lítill taktur.
23. mín
Tinna Hrönn í dauðafæri í teignum eftir góðan undirbúning Emmu. Nær skotinu en setur aðeins of mikið púður í það og smellur boltinn í slá og út.
Sláarskot!
Tinna Hrönn í dauðafæri í teignum eftir góðan undirbúning Emmu. Nær skotinu en setur aðeins of mikið púður í það og smellur boltinn í slá og út.
21. mín
Hafrún Birna í frábærri stöðu en skóflar boltanum yfir markið úr úrvalsfæri.
Aftur FH
Hafrún Birna í frábærri stöðu en skóflar boltanum yfir markið úr úrvalsfæri.
20. mín
Gestirnir að skapa tækifæri, komast inn á teiginn frá hægri en sendingin fyrir markið í hendur Taylor.
17. mín
Grindavík fær horn. Boltinn fyrir markið á kollinn á Hayden Colson sem skallar boltann himinhátt yfir.
16. mín
Heimakonur vinna boltann hátt á vellinum. Ná skotinu en það er slakt og beint á Sigurborgu í markinu.
13. mín
Leikurinn stopp, bylmingsskot frá heimakonum endar beint í andlitinu á Mackenzie sem steinliggur.
12. mín
Emma Philips hársbreidd frá því að komast í dauðafæri eftir aukaspyrnu en Sigurborg mætir út og hirðir boltann.
11. mín
Vindurinn að hafa talsverð áhrif á leikinn sem skiljanlegt er. Svo sannarlega haustlegt um að litast.
6. mín
Gult spjald
Ása Björg Einarsdóttir
Rennur á vellinum og úr verður hressileg tækling. Gult á loft.5. mín
Öðruvísi útfærsla á horninu, nokkrar úr liði heimakvenna stíga hringdans fyrir hornið seem virðist rugla vörn FH aðeins, Þær koma þó boltanum frá.
Skemmtilegt
Öðruvísi útfærsla á horninu, nokkrar úr liði heimakvenna stíga hringdans fyrir hornið seem virðist rugla vörn FH aðeins, Þær koma þó boltanum frá.
4. mín
Heimakonur fylgja á eftir og fá sitt fyrsta horn.
3. mín
FH sækir fyrstu hornspyrnu leiksins eftir tæklingu frá Hayden Colson.
2. mín
Fyrsta tækifærið.
Emersen Jennings í algjöru dauðafæri eftir skyndisókn heimakvenna. Kemst ein gegn Sigurborgu í marki FH en nær ekki valdi á boltanum í vindinum sem gerir Jónínu Linnet kleift að hlaupa hana uppi og hirða af henni boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað á JBÓ vellinum. Heimakonur sparka okkur af stað.
Fyrir leik
Spámaðurinn
John Andrews, þjálfari KR, spáir í leikina. Vesturbæjarstórveldið verður í Bestu deildinni á næsta ári eftir að hafa endað í öðru sæti Lengjudeildarinnar í sumar.
Um leikinn í Grindavík sagði John.
Grindavík/Njarðvík 1 - 4 FH
Grindavík/Njarðvík heldur áfram að gefa ungum leikmönnum tækifæri og byggja upp þetta spennandi verkefni, en krafturinn í FH verður of mikill að þessu sinni. Þar sem grasið er ekki Grindavík/Njarðvík í hag í þessum leik sé ég FH stjórna leiknum að mestu. Julia Ruth skorar fyrir heimakonur en Thelma, Deja og Andrea skora snemma fyrir FH áður en Elín Björg klárar dæmið með frábæru einstaklingsframtaki undir lokin.

Dómarinn
Stefán Ragnar Guðlaugsson er með flautuna hér í dag. Óliver Thanh Tung Vú og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem eru honum til aðstoðar auk Atla Björns E Levy sem er fjórði dómari. Eftirlitsmaður KSÍ er svo Sigurður G Friðjónsson.

Fyrir leik
Fjórða sætið og stolt er það sem er undir hjá Suðurnesjaliðinu í þessum lokaleikjum mótsins. Í raun stórgott fyrir nýliða í deildinni þegar horft er heildrænt yfir tímabilið og ekki versnar það þegar bikarúrslit koma þar inn líka þó tapið þar svíði eflaust enn.
Hvernig mun liðið nálgast leikinn nú þegar að "litlu" er að keppa verður forvitnilegt. Ég á þó frekar von á því að heimakonur mæti af krafti til leiks enda virðast skilaboðin úr Reykjanesbæ vera nokkuð skýr ef miðað er við tímabilið í ár. Liðið er mætt til að vera í efstu deild.

Grindavík/Njarðvík

Gestirnir úr Hafnarfirði eiga í harðri titilbaráttu við Breiðablik. Sigur Blika á ÍBV í gær gaf þeim þriggja stiga forskot á toppnum en því bili ætlar lið FH sér væntanlega að loka í dag. Það stefnir allt í rosalega baráttu á toppnum og alls ekki ólíklegt að við stefnum í hreinan úrslitaleik um titilinn í lokaumferðinni.
FH átti Evrópuleik í miðri viku þar sem liðið atti kappi við Eintracht Frankfurt frá Þýskalandi. Fór svo að þýska stórliðið vann nauman 1-0 sigur þar sem eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu.

FH

Leikdagur í Reykjanesbæ
Heil og sæl læru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavík/Njarðvík gegn FH en flautað verður til leiks á JBÓ vellinum klukkan 14:00