Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Þjóðadeildin
Stade de Luxembourg
Lúxemborg
Lúxemborg
0 - 3
Ísland
Ísland
0 - 113' Andri Lucas Guðjohnsen0 - 239' Orri Steinn Óskarsson (f)0 - 373' Guðlaugur Victor Pálsson
Dómari: Enea Jorgji (ALB)
Áhorfendur: 8.879
Leik lokið!
Flott svar hjá íslenska liðinu!
Eftir dapra frammistöðu á laugardaginn sýndi Ísland allt aðra og betri hlið hér í Lúxemborg í kvöld. Fjögur stig uppskeran úr fyrstu tveimur leikjunum og næst er komið að Búlgaríu á Laugardalsvelli á laugardag.

Leik Búlgaríu og Eistlands lauk með markalausu jafntefli.

Ísland er með 4 stig, Lúxemborg 3 stig, Eistland 2 stig og Búlgaría 1 stig.
Ísland
92. mín
Gult spjald

Ísak Snær Þorvaldsson

Logi Tómasson með fyrirgjöf, Lúxemborg kemur boltanum í burtu og Ísak Snær er svo dæmdur brotlegur. Fær gult spjald frá albanska dómaranum.
Lúxemborg
91. mín
Gult spjald

Enes Mahmutovic

Pirringsbrot, braut á Brynjólfi.
91. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti 3 mínútur
Ég endurtek, 3 mínútur
89. mín
Kvöldið er ungt
Þó leiknum sé að ljúka þá munum við á Fótbolta.net fylgja ykkur lengra inn í kvöldið; viðtöl, einkunnir og fleira efni sem mun detta inn beint frá Lúxemborg.
88. mín
Ísland er að fá sér sæti á toppi riðilsins. Staðan er markalaus í Sofíu þar sem Búlgaría og Eistland eru að mætast í hinum leiknum.
Ísland
85. mín
InnArnór Sigurðsson
ÚtGuðlaugur Victor Pálsson
Einn af markaskorurum Íslands orðinn bensínlaus.
83. mín
Logi Tómasson brýtur á Duarte við hliðarlínuna.
81. mín
Búin/n að kaupa miða?
Minnum á að næsti leikur verður heimaleikur gegn Búlgaríu á laugardaginn, miðasala á þann leik ætti að taka einhvern kipp eftir þessi úrslit hér í Lúxemborg í kvöld.
79. mín
Mikael Egill sækir upp hægra megin, kemur inn völlinn og tekur skotið en varnarmaður heimamanna kemst fyrir.
Ísland
78. mín
Gult spjald

Mikael Egill Ellertsson

Gult fyrir brot, hárréttur dómur.
Lúxemborg
76. mín
Inn Omar Natami
ÚtHamza Kadamani
Lúxemborg
76. mín
Inn Timothe Rupil
Út Tomas Moreira
Ísland
74. mín
InnÍsak Snær Þorvaldsson
ÚtAndri Lucas Guðjohnsen
Ísland
74. mín
InnMikael Anderson
ÚtOrri Steinn Óskarsson (f)
Ísland
74. mín
Inn Brynjólfur Willumsson
ÚtHákon Arnar Haraldsson
Lúxemborg
73. mín
Gult spjald

Leandro Barreiro

Ísland
73. mín
SKALLAR INN Í 60. LANDSLEIK SÍNUM!

Guðlaugur Victor Pálsson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

SIGURINN INNSIGLAÐUR!

Guðlaugur Victor nánast ódekkaður eftir hornspyrnu Gylfa og skallar inn!
73. mín
Mikael Egill lyftir boltanum á fjærstöngina þar sem Logi Tómasson er í baráttunni. Boltinn fer af heimamanni og í hornspyrnu.
71. mín
Lokakaflinn framundan, heimamenn vilja aukaspyrnu á vinstri kantinum en Albaninn dæmir ekkert. Dardari fór niður í baráttu við Daníel Leó.
70. mín
Nánast fullur völlur
8879 áhorfendur, völlurinn tekur tæplega 9500 manns.
Ísland
67. mín
InnHörður Björgvin Magnússon
ÚtStefán Teitur Þórðarson
Neyðist til að fara af velli
Tveir örvfættir í hjarta varnarinnar.
65. mín
Stefán Teitur liggur niðri
Þarfnast aðhlynningar, nær eflaust ekki að halda leik áfram. Hörður Björgvin hleypur að bekknum og gerir sig kláran.
65. mín
,,Áfram Ísland," heyrist dauflega úr stúkunni.
64. mín
Fer utan í aðstoðardómararann
Stefán Teitur með sprett upp hægri vænginn, missir boltann aðeins of utarlega og rekst í aðstoðardómarann áður en hann er dæmdur brotlegur.
62. mín
Lúxemborg með hornspyrnu sem Hákon grípur.
Lúxemborg
62. mín
Inn Jayson Videira
ÚtVincent Thill
Lúxemborg
62. mín
Inn Enzo Duarte
ÚtMathias Olesen
60. mín
Lúxemborg fær hornspyrnu en Stefán Teitur skallar frá.
Ísland
59. mín
Ísak í bókina

Ísak Bergmann Jóhannesson

Fer af miklum krafti í Barreiro og fær að líta gula spjaldið.
57. mín
Mikael Egill!
Með frábæra takta á hægri vængnum og kemur boltanum fyrir á Hákon Haralds sem hittir boltann ekki nægilega vel og tilraun hans framhjá marki heimamanna.
53. mín
Guðlaugur Victor með kraftlítið skot sem Moris ver þægilega í marki Lúxemborgar. Ísland að byrja þennan seinni hálfleik betur.
50. mín
Ísland vinnur boltann hátt uppi á vellinum, Ísak Bergmann í teignum og ætlar að gefa fyrir markið en varnarmaður kemst fyrir sendinguna.
48. mín
Ísland að komast í álitlega stöðu. Andri og Orri vefjast hvor fyrir öðrum en Orri heldur í boltann.

Hann fellur við í teig Lúxemborgar eftir að varnarmaður stígur hann út. Ekkert í þessu enda biður Orri ekki um neitt.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Hákon Arnar sparkar þessu af stað!
45. mín
Hálfleikur
UEFA tölfræði
Með boltann: 53%-47%
Marktilraunir: 2-8
Skot á mark: 0-2
Hornspyrnur: 0-1
Kláraðar sendingar: 194-192
45. mín
Hálfleikur
Mikið er gaman þegar gengur vel!
+2

Sá albanski flautar til leikhlés. Ísland með tveggja marka forystu í leikhléi. Tvö glæsimörk skilja liðin að, mikil framför í frammistöðunni samanborið við vonbrigðin á laugardag.

Mynd: KSÍ
45. mín
Tveimur mínútum bætt við
45. mín
Seinna markið var úr efstu hillu
43. mín
Víti?
Hákon keyrir í teig heimamanna en fellur við og Íslendingar vilja vítaspyrnu. Hefði verið nokkuð hart að benda á punktinn miðað við fyrstu sýn.
42. mín
Hákon traustur
Dardari með ágætis skot úr teignum en Hákon ver vel í markinu. Fyrsta skotið sem Hákon þarf að verja.
Ísland
39. mín
ÞVÍLÍKT MARK!!!!

Orri Steinn Óskarsson (f) (stoðsending: Andri Lucas Guðjohnsen)

Orri og Andri að vinna frábærlega saman!

Andri með sturlaða hælsendingu á lofti og þræðir Orra í gegn. Orri stingur varnarmenn Lúxemborgar af og klárar frábærlega!

Íslenska liðið hefur náð að refsa háu línu heimamanna vel!

Mynd: KSÍ
Ísland
34. mín
Spjaldaður fyrir leiktöf

Hákon Rafn Valdimarsson

Full lengi að taka aukaspyrnu og sá albanski á flautunni áminnir hann.
31. mín
Ísland vinnur boltann hátt uppi á vellinum. Hákon mundar skotfótinn og lætur vaða fyrir utan teig en tilraun hans framhjá marki heimamanna.
30. mín
Lítið um að vera síðastliðnar tíu mínútur, bæði lið þreifa hvort á öðru.
24. mín
Bomban hefur talað
19. mín
Meðbyr með Íslandi
Ísland fær hornspyrnu, Gylfi tekur. Boltinn fer manna á milli í teignum og heimamenn hreinsa í innkast.

Lúxemborg ekki komist yfir miðju eftir markið.
17. mín
Ísland fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, Gylfi tekur. Hættuleg sending inn á teiginn en heimamenn bægja hættunni frá. Ísland heldur í boltann.
Lúxemborg
15. mín
Inn Omar Natami
Út Laurent Jans (f)
Fyrirliðinn meiddur af velli
Eflaust mikið högg fyrir heimamenn.
Ísland
13. mín
ANDRI BRÝTUR ÍSINN!!!

Andri Lucas Guðjohnsen (stoðsending: Orri Steinn Óskarsson (f))

Orri Steinn gerir frábærlega og snýr varnarmann Lúxemborgar af sér.

Orri keyrir í átt að markinu, rennir boltanum til hliðar á Andra sem klárar frábærlega einn gegn markverði! Andri að skora annan leikinn í röð.

Góður dagur fyrir Guðjohnsen-bræðurna! Daníel Tristan fór hamförum gegn U21 árs liði Sviss fyrr í dag.

Mynd: KSÍ
9. mín
Heimamenn stíga hátt upp á íslenska liðið, Ísland þarf að nýta svæðið fyrir aftan vörn Lúxemborgar.
7. mín
Óþarfi
Ísak með slæma sendingu á eigin vallarhelmingi og heimamenn sækja hratt. Dardari kominn í góða stöðu í teignum og lætur vaða en Daníel Leó gerir vel og kemst fyrir skotið.
5. mín
Prýðis sókn Íslands
Andri Lucas með fyrirgjöf út í teiginn, Mikael Egill tekur viðstöðulaust skot á lofti sem fer framhjá marki Lúxemborgar.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Lúxararnir hefja leik!

Heimamenn í alrauðum búningum, Íslendingarnir í hvítum og appelsínugulum treyjum.
Fyrir leik
Við hlýðum á þjóðsöngvana
Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Tíu mínútur í leik
Enn nokkuð mörg laus sæti. Búist var við um 8500 áhorfendum en völlurinn tekur tæplega 9500 manns. Maður hefur rekist á nokkrar íslenskar treyjur sem er ánægjulegt!

Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Fyrir leik
20 í leik
Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Byrjunarliðið komið í hús! Gylfi og Logi inn
Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
90 mín í leik
Íslenska liðið skoðar aðstæður.

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Kári Snorrason
Fyrir leik
Tveir tímar í leik
Stundvísustu stuðningsmenn Lúxemborgar eru mættir á völlinn. Hitinn er rétt yfir 20 stig og mun haldast á þeim slóðum á meðan leik stendur.

Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Tíu mánuðir síðan Ísland vann fótboltaleik
Rúmir tíu mánuðir eru síðan Ísland vann síðast fótboltaleik, en síðasti sigurinn kom gegn Aserbaísjan í Bakú í nóvember á síðasta ári.

Á þessum tíu mánuðum hefur liðið spilað sjö leiki, tapað fjórum og gert þrjú jafntefli.

Fyrir leik
Búist við 50 Íslendingum
Samkvæmt nýjustu upplýsingum er búist við 8.500 manns á vellinum og þar af eiga að vera um 50 Íslendingar.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Völlurinn er hinn glæsilegasti
Leikið er á hinum spaðalega Stade de Luxembourg. Völlurinn var vígður árið 2021 og tekur tæplega tíu þúsund manns í sæti.

,,Það er orðið vel þreytt að koma til margra landa, bæði með landsliðinu og Víkingi, og alveg sama hvaða lönd það eru að þá er þau öll með frábæra velli. En við einhvern veginn sitjum eftir í súpunni," sagði Arnar Gunnlaugsson á blaðamannafundi í gær aðspurður um völlinn.



Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Aðeins 19% sigurhlutfall
Arnar Gunnlaugsson hefur stýrt Íslandi í 16 leikjujm. Af þessum 16 leikjum hafa bara þrír leikir unnist og eru tveir þeirra gegn Aserbaídsjan sem situr í 125. sæti heimslistans.

Guðmundur Aðalsteinn, fréttamaður Fótbolta.net, tók saman gengi síðustu landsliðsþjálfara og raðaði þeim upp í röð eftir sigurhlutfalli.

1. Guðjón Þórðarson - 44%
2. Heimir Hallgrímsson - 42%
3. Lars Lagerback - 41%
4. Age Hareide - 37%
5. Atli Eðvaldsson - 36%
6. Erik Hamren - 33%
7. Ólafur Jóhannesson - 28%
8-9. Ásgeir og Logi - 26%
8-9. Arnar Þór Viðarsson - 26%
10. Arnar Gunnlaugsson - 19%
11. Eyjólfur Sverrisson - 14%

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Albani á flautunni
Aðaldómarinn kemur frá Albaníu og heitir Enea Jorgji. Hann dæmdi Evrópuleik Víkings gegn Borac Banja Luka hér á íslandi fyrr á árinu en Víkingur tapaði 1-3.

Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net á leiknum, var ekkert sérlega hrifinn af frammistöðu Jorgji og gaf honum fimm í einkunn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið
Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Laskaðir Lúxarar
Sóknarmiðjumaðurinn Danel Sinani, leikmaður Sampdoria, fór meiddur af velli í leikn Lúxemborgar gegn Búlgaríu og ljóst er að hann spilar ekki meira. Þessi 29 ára leikmaður var meðal markaskorara þegar Lúxemborg vann 3-1 sigur gegn Íslandi 2023.

Miðvörðurinn Seid Korac er einnig á meiðslalistanum og helsti markaskorari liðsins Gerson Rodrigues hefur ekki spilað síðan á síðasta ári en hann fékk dóm fyrir líkamsárás og heimilisofbeldi.

Þá er einn mest spennandi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, Brian Madjo, ekki með liðinu sökum meiðsla. Madjo, sem er leikmaður Aston Villa, er fæddur árið 2009 og hefur vakið athygli fyrir sína kraftalegu holningu. Hann skoraði í úrslitum ofurbikarsins gegn PSG í byrjun tímabils en meiddist í sama leik og hefur ekki spilað síðan.

Mynd: EPA

Fyrir leik
Albert ekki með
Albert Guðmundsson verður ekki meira með íslenska landsliðinu í komandi verkefni í Þjóðadeildinni eftir að hafa farið úr axlarlið í fyrri hálfleik gegn Eistum.

Þórir Jóhann Helgason, leikmaður Venezia, var kallaður inn í hópinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Vel heppnaður ferðadagur
Íslenska liðið ferðaðist frá Keflavíkurflugvelli og tók beint leiguflug til Lúxemborgar á sunnudag. Þrátt fyrir vonbrigði gegn Eistum á laugardag virtist vera góð stemning í hópnum og menn einbeittir á verkefnið gegn Lúxerunum.

Mynd: KSÍ
Fyrir leik
Stórhertogadæmið heilsar!
Heilir og sælir, lesendur góðir, og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Íslands og Lúxemborgar í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Aðstæður hér í Lúxemborg eru upp á tíu. Hitinn er rúm 20 stig, sólin skín og eina sjálfstæða stórhertogadæmi heims tekur vel á móti íslenska landsliðinu.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.