Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Undankeppni EM U21
PEPSI völlurinn
Grátt, blautt og 10°c.
Ísland U21
Ísland U21
5 - 1
Sviss U21
Sviss U21
Daníel Tristan Guðjohnsen 11'1 - 0Benoný Breki Andrésson 45'2 - 02 - 146' Labinot BajramiDavíð Helgi Aronsson 62'3 - 1Daníel Tristan Guðjohnsen 79'4 - 1Hilmir Rafn Mikaelsson 86'5 - 1
Dómari: Jakob Semler (Austurríki)
Áhorfendur: 341.
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Stórkostlegur sigur!
Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
91. mín
Þremur bætt við!
Það er game over hérna og við erum í dauðafæri á þessu umspilssæti.

Stórkostlegur leikur hjá okkar strákum, margar góðar frammistöður.
Ísland U21
91. mín
Gult spjald

Stígur Diljan Þórðarson

90. mín
Júlíus Mar með skotið úr spyrnunni!
En í vegginn og í horn, ekki galin tilraun enda Júlli með löpp.

Galdur tekur hornspyrnuna stutt með Daníel Frey en gestirnir skalla svo frá.
Ísland U21
89. mín
InnNóel Atli Arnórsson
ÚtDavíð Helgi Aronsson
Ísland U21
89. mín
InnHaukur Andri Haraldsson
ÚtKjartan Már Kjartansson
88. mín
Daníel Freyr núna að sækja aukaspyrnu á góðum stað, af svona 25 metra færi.
Ísland U21
86. mín
VIÐ ERUM AÐ SLÁTRA ÞEIM!

Hilmir Rafn Mikaelsson (stoðsending: Hlynur Freyr Karlsson)

Hlynur Freyr tók spyrnuna fast á markið, Silas varði út í teig og Hilmir stangaði frákastið í netið.

Lúlli Gunn at the wheel, how good does it feel?
85. mín
Stígur með skot rétt framhjá!
Viktor Bjarki sterkur inná teignum, heldur í boltann og kemur honum á Stíg sem fer á hægri og lætur vaða en hittir ekki markið.

Við erum svo að fá aukaspyrnu hérna núna við hægra vítateigshornið, ákjósanlegur staður myndi ég segja.
Sviss U21
82. mín
Gult spjald

Alessio Besio

Ísland U21
80. mín
InnHilmir Rafn Mikaelsson
ÚtDaníel Tristan Guðjohnsen
Ætla að kalla þetta heiðursskiptingu!
Beint eftir markið, maður leiksins hérna, djöfull er hann góður.
Eiður Smári eigum við ekki einn eða tvo drengi inni fyrir næstu kynslóð?
Ísland U21
79. mín
ÞESSI GÆÐI!

Daníel Tristan Guðjohnsen (stoðsending: Viktor Bjarki Daðason)

Viktor Bjarki gerir hrikalega vel á miðjum vellinum í að koma boltanum bakvið vörn gestanna í hlaupið hjá Daníel, sem virkaði meiraðsegja smá þreyttur en tekur boltann frá hægri yfir á vinstri fótinn, tekur eitt auka touch og slúttar svo bara framhjá Silas í markinu og klárar þennan leik.
Sviss U21
77. mín
InnAlessandro Vogt
Út Liam Chipperfield
77. mín
Gestirnir með smá stjórn á þessu eins og er
Ná að þrýsta okkar strákum niður og halda vel í boltann, Júlli að skalla frá fyrirgjafir og fleira, engar stórhættur.
75. mín
Viktor Bjarki með flottan sprett upp völlinn og sækir horn.
Galdur fer að taka þessa spyrnu.
Júlli nær skallanum en hann upp í loftið og Silas grípur.
72. mín
Kjartan Már með frábæra takta fyrir framan vítateig gestanna og reynir svo að lauma Viktori Bjarka í gegn en það nær ekki tengingu.
Sviss U21
68. mín
InnBung Meng Freimann
ÚtNico Rissi
Ísland U21
68. mín
InnViktor Bjarki Daðason
ÚtBenoný Breki Andrésson
Ísland U21
68. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtAmin Cosic
67. mín
Okkar drengir með virkilega góða stjórn á þessum leik, halda vel í boltann og þessir strákar eru bara að leika listir, Galdur, Daníel Tristan og fleiri verið gjörsamlega stórkostlegir hérna.
Ísland U21
62. mín
JÁJÁJÁJÁ VIÐ ERUM KOMNIR Í 3-1!

Davíð Helgi Aronsson (stoðsending: Hlynur Freyr Karlsson)

Daníel Freyr tók þessa hornspyrnu frá hægri með sínum sturlaða vinstri fæti, setur boltann alla leið á fjær þar sem Hlynur Freyr skallar aftur þvert fyrir markið og Davíð Helgi stangar þetta yfir línuna, aftur komin þægileg staða og það verðskuldað!
61. mín
ÞVÍLÍK MARKVARSLA SILAS HUBER!
Hornspyrnan tekin í lappir á Beno, sem setur hann útfyrir teiginn á Daníel, sem setur boltann á vinstri fótinn og smyr boltann í samskeytin fjær og Silas með gjörsamlega sturlaða vörslu, nær með fingurgómunum að setja þetta í hornspyrnu.

Hættu þessu drengur.
60. mín
Galdur að ógna!
Kemur sér í góða 1v1 stöðu á Nyakossi inn á teignum, fer á hægri og skýtur en Nyakossi kemur tánni fyrir og af honum fer boltinn í hliðarnetið, munaði engu!
59. mín
Virkilega góð sókn okkar stráka!
Voru að færa boltann og þrýsta gestunum niður, hársbreidd frá því í nokkur skipti að skapa alvöru færi.
Gestirnir komu boltanum svo fram þar sem Bajrami var einn gegn hafsentunum okkar og reyni skot af löngu færi en beint í hendurnar á Lukasi.
55. mín
Haukur í horni
Haukur Gunnarsson er með myndavélina hér í Laugardalnum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

54. mín
GALDUR GUÐMUNDSSON!
Þvílílir taktar, það er margbrotið á honum úti hægra megin af Nico Rissi en Galdur nær að skilja hann eftir og halda áfram, fer þá inn á teiginn gegn Nyakossi og sólar hann tvisvar og lætur svo vaða en rétt framhjá.

Galdur hefði líklegast átt að gefa boltann á Amin sem var aleinn á fjær en það hefði verið of nett að skora sjálfur eftir þetta einstaklingsframtak svo ég skil pælinguna hjá Galdri.
53. mín
Lukas með vörslu!
Besio kemst inná teiginn vinstra megin, fer á vinstri framhjá Hlyn og hamrar á nær, Lukas stendur og ver í horn.

Hornspyrna gestanna skilar okkur svo markspyrnu.
51. mín
Frábær tækling!
Beno nær að snúa og setja Amin í frábæra stöðu, Amin ræðst inn á teiginn en Ogbus með stórkostlega tæklingu til að stöðva Amin.
Örlítil mistök af hálfu Ogbus og við værum að taka vítaspyrnu í þessum skrifuðu, en svo er ekki!
49. mín
Daníel Tristan sá gæðamikli drengur með frábæra takta inná miðjunni og skiptir svo yfir til vinstri á Amin en Amin klaufi og missir boltann útaf í móttökunni.

Daníel verið stórkostlegur í dag.
Sviss U21
46. mín
Gestirnir svara strax!

Labinot Bajrami

Fyrirgjöf frá hægri sem okkar menn misreikna og boltinn fellur fyrir Bajrami sem þrumar þessi í netið úr dauðafæri.

Klaufaleg byrjun hjá okkar mönnum.
46. mín
Komið af stað aftur!
Ísland byrjar með boltann.
Sviss U21
46. mín
InnGiacomo Koloto
ÚtNoah Streit
Þreföld hjá Alexander Frei í hálfleik!
Sá hefur verið ósáttur við sína menn, eðlilega.
Sviss U21
46. mín
InnBung Hua Damian Freimann
ÚtLoun Srdanovic
Þreföld hjá Alexander Frei í hálfleik!
Sá hefur verið ósáttur við sína menn, eðlilega.
Sviss U21
46. mín
Inn Labinot Bajrami
ÚtAndrej Vasovic
Þreföld hjá Alexander Frei í hálfleik!
Sá hefur verið ósáttur við sína menn, eðlilega.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði frá UEFA
Marktilraunir: 7-4
Skot á mark: 2-1
Hornspyrnur: 4-2
Rangstöður: 0-0
45. mín
Hálfleikur
Kaffi og kleinur, heyrumst!
Ísland U21
45. mín
VÁVÁVÁ

Benoný Breki Andrésson (stoðsending: Galdur Guðmundsson)

Þetta var ekkert eeeeðlilega vel gert hjá okkar strákum!

Galdur var enn úti vinstra megin eftir hornspyrnuna, Galdur tekur tvö skref í átt að Davíð Helga sem platar Loun uppúr skónum sem stígur hratt upp úr vörninni á sama tíma og Galdur leggur af stað í gegn, Davíð Helgi vel með á nótunum á þessa drauma sendingu á Galdur bakvið vörnina sem er kominn í 1v1 stöðu á teignum, sendir þvert fyrir markið og Beno réttur maður á réttum stað potar boltanum yfir línuna.
Þetta var gjörsamlega stórkostalega gert hjá þessum þremur drengjum.
Unun að sjá hvernig Davíð Helgi og Galdur voru samtengdir og gjörsamlega slátruðu Loun greyjinu sem var skilinn eftir.
44. mín
Okkar menn að fá aðra hornspynu.
Galdur að koma með enn eina gullsendinguna?
Svarið er já en Silas nær að kýla frá af línunni.
40. mín
HVAR ER GREDDAN?
Galdur með stórkostlegan bolta inn á teiginn þar sem fjórir bláklæddir drengir láta allir boltann þjóta rétt framhjá sér og boltinn í markspyrnu, þetta á bara að vera auðvelt mark.
Beno var aftastur af þeim og það var augljóst á hans viðbrögðum að hann átti aldrei von á því að þessi myndi berast til sín enda þrír samherjar í betri stöðu.

Galdur með tvær gullsendingar að engu núna á stuttum tíma.
39. mín
Daníel Tristan finnur Amin í hlaupið vinstra megin og Amin gerir fáránlega vel í móttökunni, kemur Loun í erfiða stöðu sem endar á að þurfa að brjóta á honum.
Ísland U21
37. mín
Gult spjald

Davíð Helgi Aronsson

Brýtur á Noah Streit sem var kominn framhjá Davíð.
37. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu hægra megin við vítateiginn.
Chipperfield stendur yfir þessum með sinn eitraða vinstri fót.
Hann reynir bara skotið en það ofan á þaknetið, ekki slæm tilraun!
35. mín
Frábær spyrna!
Galdur með geggjaðan bolta inn á teiginn en einhvernveginn tekur enginn snertingu á boltann og hann lekur afturfyrir hinumegin.
Þarna þurfti bara einn til þess að ráðast á boltann.
34. mín
Amin með takta!
Fær boltann í breiddina frá Davíð Helga og setur hann með hælnum í fyrsta inn á miðjuna í hlaup hjá Daníel Frey sem ræðst á teiginn og lætur vaða en í varnarmann og horn.
31. mín
Lukas Petersson!
Hefur ekki haft neitt að gera en skyndilega sleppur Vasovic í gegn, stóri maðurinn mætir og étur hann, vel gert drengur.
29. mín
DANÍEL TRISTAN!
Fær boltann, keyrir í átt að teignum og krullar boltann svo skemmtilega innanfótar og í samskeytin, bókstaflega.

Boltinn hrekkur út í teig og gestirnir hreinsa.

Þetta hefði verið gullfallegt mark, veit ekki hvort Silas kom fingurgómum á þetta til að verja.
28. mín
Frábært spil hjá okkar strákum!
Halda vel í boltann og færa hann svo hratt frá hægri til vinstri, Amin í 1v1 stöðu á Loun, notar Eggert sem sendir fyrir, boltinn hrekkur út á Kjartan Má sem hamrar í fyrsta en í varnarmann.
21. mín
Gestirnir eru að stíga hærra í talsvert ákveðnari pressu eftir að hafa lent undir.

Við litum út fyrir að vera talsvert betri en Svisslendingarnir í upphafi en þetta er að jafnast út þar sem gestirnir gera okkar strákum erfiðara fyrir núna.
19. mín
Gestirnir fá annað horn.
Júlíus Mar með frábæran varnarleik eftir að Hlynur Freyr missti manninn sinn innfyrir sig.

Hornspyrnan skapar hættu, Galdur klaufi að taka boltann niður fyrir gestina sem endar með skoti úr ágætis færi en það hittir ekki markið.
17. mín
Fyrsta almennilega sóknarlota gestanna
Og þeir uppskera hornspyrnu eftir fyrirgjöf.

Spyrnan frá Chipperfield er góð inn á miðja teiginn en Davíð Helgi skallar frá.
12. mín
Hvar er byrjunarliðið okkar uppalið?
3 - Stjarnan.
1 - Breiðablik.
1 - HK.
1 - ÍBV.
1 - KR.
1 - Fjölnir.
1 - Víkingur R.
1 - Hoffenheim.
1 - Barcelona.

Bara svona stemningsmoli afþví við erum yfir!
Ísland U21
11. mín
ÞVÍLÍKT MARK!

Daníel Tristan Guðjohnsen (stoðsending: Galdur Guðmundsson)

Daníel Freyr og Amin Cosic tvöfalda upp vinstra megin, Amin leikur lystir sínar með Ronaldo trixinu, fylgir því á eftir með Zidane snúning, boltinn út á Daníel aftur sem sendir þessa gullsendingu á fjær þar sem Galdur sendir aftur þvert fyrir markið og Daníel Tristan kemur honum yfir línuna, algjört gull af marki hjá okkar mönnum.

1-0 og við viljum meira!
6. mín
Hættulegur bolti!
Daníel Freyr með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn sem Beno kemur fætinum í en nær ekki að stýra á markið, boltinn dettur laus í teignum og Silas er fyrstur að átta sig og handsamar boltann.
5. mín
DAUÐAFÆRI!
Lúlli Gunn special af æfingasvæðinu, Galdur sendir boltann á Benoný í frábærri stöðu inná teignum en Beno rennur í skotinu, boltinn dettur þá á D-bogann fyrir Eggert Aron sem þrumar út á bílastæði, skemmtileg útfærsla.
4. mín
Ísland byrjar sterkt!
Með flotta stjórn þessar upphafsmínútur og að koma sér í flottar stöður, rétt í þessu var Júlli Mar að lyfta boltanum í hlaup hjá Galdri og önnur hornspyrna niðurstaðan.
2. mín
Spyrnan frá Galdri er arfaslök og spörkuð frá af fyrsta manni.
1. mín
Fyrsta hornpyrnan er okkar!
Langt innkast upp frá Hlyni Frey, Galdur á harðaspretti sendir fyrir og gestirnir hreinsa í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Liðin byrja á að skipta um vallarhelming.
Sem þýðir að Ísland byrjar með smá vind í bakið, ekkert mikinn samt.
Gestirnir setja leikinn af stað og sækja í átt að Húsdýragarðinum!
Fyrir leik
Daníel Tristan með frábæran sprett upp miðjan völlinn og lætur vaða við teiginn en í varnarmann.

Okkar drengir eru miklu betri!
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar!
Ísland í bláu, Sviss í ljósgrænu, Austurríkismennirnir í svörtu.

Þjóðsöngvar óma svo þetta er að bresta á!
Fyrir leik
Liðin eru að hita!
Það styttist í leik, eða um 20 mínútur í upphafsflaut.

Liðin eru bæði að skrúfa upp tempoið í upphitun sinni.
Ég geri ráð fyrir hörku leik og vonandi fáum við flotta mætingu eins og gegn Frökkunum á föstudaginn!
Fyrir leik
Byrjunarlið okkar Íslendinga!

Búið er að opinbera byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Sviss en það eru fjórar breytingar á íslenska liðinu. Hlynur Freyr Karlsson kemur inn í hægri bakvörðinn í staðinn fyrir Hlyn Þórhallsson.

Þá kemur Galdur Guðmundsson inn í liðið fyrir Helga Fróða Ingason sem er tæpur fyrir leikinn og Kjartan Már Kjartansson tekur sæti Tómasar Orra Róbertssonar á miðsvæðinu.

Þá fer Viktor Bjarki Daðason á bekkinn og Benoný Breki Andrésson kemur inn í framlínuna.

Eggert Aron Guðmundsson, leikmaður Brann, er áfram með fyrirliðabandið hjá Íslandi.
Fyrir leik
Veðrið!
Klassískt íslenskt haustveður, grátt yfir, spáin segir smá rigning meðan leikurinn er og laufblöðin falla í kringum okkur.

Þetta eru vonandi aðstæður sem henta og hjálpa okkar strákum!
Fyrir leik
Svissnesku strákarnir!
Eru ekki alveg af sama kaliberi og Frakkarnir sem komu í heimsókn um daginn, þar sem við þekktum stórstjörnur í því liði.

Flestir Svisslendingarnir eru að spila í heimalandinu, sem er auðvitað sterk deild, það er einn liðsfélagi Hákonar Haralds þarna, Loun Srdanovic í Lille, en sá strákur var keyptur í sumar frá Servette og hefur ekki spilað mínútu með aðalliði Lille.

Stærsta stjarna Svisslendinganna er auðvitað þjálfarinn, sjálfur Alexander Frei, gömul markakempa sem spilaði meðal annars með Dortmund á sínum ferli, hann á einmitt 42 landsliðsmörk fyrir Sviss í 84 leikjum.
Fyrir leik
Þriðja liðið frá Austurríki.
Dómarinn í dag heitir Jakob Semler, 35 ára Austurríkismaður sem hefur dæmt síðan 2012 og verið FIFA dómari síðan 2025, dæmdi sinn fyrsta leik í efstu deild Austurríkis 2023 og hefur því vaxið hratt síðan hann tók það skref.

Honum til aðstoðar verða þeir Alexander Borucki, Philipp Duschek og Alain Sadikovski.
Fyrir leik
Við erum í séns á umspili!
Strákarnir okkar náðu frábærum úrslitum gegn Frökkum í síðasta leik hér á Pepsi vellinum í Laugardal.

Lestu nánar um þann leik hér.

Það sem að þarf að gerast svo að okkar drengir komist í umspilið er að við verðum að vinna Sviss í dag, vinna svo Færeyjar í næsta leik og Frakkar að vinna Sviss á sama tíma.
Mynd: .net

Sá lærði, Guðmundur Aðalsteinn, rýndi í stöðuna:
Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur!
Og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Íslands og Sviss í Undankeppni EM hjá U21 landsliðum karla.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.