Leik lokið!
93. mín
Bryndís í baráttunni við Daria Kurzawa, sem reynist sterkari og skýlir boltanum fyrir Palinksi í markinu
92. mín
Chmura tekur hornið sem endar með tilraun frá Sarapata en allt kemur fyrir ekki
92. mín
Kozielska með hörkuskot en í varnarmann og yfir markið, horn!
91. mín
A.m.k. 4 mínútur í uppbótartíma!
89. mín
Aftur er Milek að klúðra dauðafæri, hún hefur klárað markakvótann á Eikarvellinum...
84. mín
InnAmelia Chmura
ÚtNatalia Chudzik
84. mín
InnAmelia Chmura
Út Nikol Kaletka
83. mín
Gult spjald
Luiza Kozielska
83. mín
Til að forðast allan misskilning þá var bara eitt víti eeeeeen vissulega varði Taylor Kane 2 víti frá Milek
Þettttttta var rosalegt
82. mín
Víti misnotað
Klaudia Milek
Aftur ver Taylor Kane!!!!!82. mín
Milek Klúðrar en dómarateymið vill meina að Taylor Kane hafi farið af línunni og vítið tekið aftur!
Þær náðu hins vegar að setja boltann í markið...
Þær náðu hins vegar að setja boltann í markið...
82. mín
JEEEEESÚS HVAÐA BULL ER Í GANGI!?!?
Það er allt að gerast hér og ég hef ekki undan að skrifa....
81. mín
Víti misnotað
Klaudia Milek
Taylor Kane ver þetta, Milek er fyrst á frákastið en leyfir liðsfélaga sínu að taka boltann sem setur hann í netið eeeeeen dómarateymið flautar það af81. mín
Víti fyrir Czarni!
80. mín
Gult spjald
Elín Helena Karlsdóttir
78. mín
úffff
Chudzik með aukaspyrnu utan af velli, boltinn berst svo til Milek en hún ætlar bara ekki að ná að skora í dag og þær bjarga þessu á línu!
77. mín
InnOliwia Zgoda
ÚtZofia Burzan
75. mín
Milek er við það að sleppa í gegn en Elín Helena gerir vel að koma sér niður fyrir og hægja á henni, Milek sendir boltann til hliðar en þá er Dórothea mætt til, Blikarnir sterkar þarna
73. mín
InnDórothea Ósk Haraldsdóttir
ÚtHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
73. mín
Sobierajska reynir skot utan af velli en það er hátt yfir!
70. mín
InnEmilia Sobierajska
ÚtOliwia Katowicz
70. mín
Inn Luiza Kozielska
ÚtZofia Buszewska
69. mín
Kaletka með hornspyrnu, tekur þetta stutt til baka, og þær reyna að spila úr þessu, endar síðan með tilraun frá Miksone en setur þetta í varnarmann
64. mín
úfffffff
Milek í Dauuuuuuuðafæri! Hún var aaaaaaleeeeiiiiin inn í teignum, þetta má ekki gerast en sem betur fer þá klúðrar hún þessu
62. mín
Burzan tekur hornið en ekkert kemur úr því, nema hálfgerð skyndisókn hjá Blikum sem er þó stoppuð fljótt
61. mín
Buszewska með hööööörkuskot en Taylor ver þetta yfir
60. mín
Milek í stórhættulegu færi, Elín Helena nær að halda henni í skefjum í bili en þetta var hættulegt þar sem Taylor Kane var komin úr markinu
58. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtKristín Vala Stefánsdóttir
58. mín
MAAAARK!
Patrycja Sarapata
Kaletka tekur hornið, boltinn á miðjann markteiginn, Sarapata, fyrst á boltann setur hann á markið en þær komast fyrir, frákastið fellur fyrir hana og þá bregst bogalistin ekki og í markið lekur boltinn57. mín
Chudzik með annað horn og þær næla svo í þriðja hornið!
56. mín
Chudzik tekur hornið, Úlfa nær að skalla þetta frá og Agla María kemst svo í tvígang fyrir boltann, annað horn
56. mín
Elísa með erfiðan bolta til baka á Taylor sem reynir að taka hann en út fyrir endalínu fer boltinn! Horn!
54. mín
Jeeeeeeesús
Milek á skot á markið sem Elísa Viðars nær að komast í en það hrekkur á markið en Elísa kemst svo fyrir þetta aftur áður en boltinn lekur yfir!
52. mín
Ása brýtur á Kaletka, þær taka sér góðan tíma í þetta og ákveða svo að spila úr þessu
49. mín
Kaletka með hörkuskot en það fer framhjá markinu
48. mín
Fyrsta horn Blika
Sunna Rún með fyrsta horn Blika í leiknum, fer á teiginn en þær eru ekki nægilega grimmar og heimakonur koma þessu frá
46. mín
Ása hefur leikinn strax á að valda usla í öftustu línu Czarni en Lapinska kemst í boltann
46. mín
InnOlga Ingibjörg Einarsdóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
45. mín
0-0 í hálfleik!
staðan í einvíginu er því ennþá 6-2 fyrir pólsku meisturunum.
Þær hafa verið með yfirburði í þessum leik og hafa hleypt Blikunum lítið áfram.
Blikakonur hafa þó fengið sín færi og það hefði verið gaman ef þessi tvö dauðafæri sem sleiktu stöngina á leiðinni útaf hefðu legið inni í fjærhorninu! En það má alltaf vona og það eru allavega 45 mínútur + uppbótartími sem þær hafa!

Ohhhhhhhh
Kristín Vala finnur Ásu í gegn og hún tekur boltan með sér kemur sér í frábæra stöðu en boltinn sleikir stöngina á leiðinni framhjá!
Þessi hefði mátt liggja inn.....
Þessi hefði mátt liggja inn.....
44. mín
Zofia Burzan kemur sér í góða stöðu, reynir fyrirgjöf en Elín Helena skallar þetta frá
42. mín
Zofia Burzan tekur spyrnuna, setur hann á fjærstöngina, Buszewska fyrst á boltann en framhjá
42. mín
Elísa tekur Kaletka niður og þær stilla boltanum upp
40. mín
Agla María með aukaspyrnu utan af vinstri kantinum setur hann á teiginn, en heimakonur ná fyrsta skallanum
38. mín
Elín Helena!
Buszewska hleypur upp miðjuna alveg ein og óvölduð, finnur svo Milek til hliðar en Elín Helena gerir svo frábærlega í að mæta henni og stelur af henni boltanum!
38. mín
Úlfa Dís finnur Ásu inn fyrir en flaggið fer þó réttilega á loft í þetta sinn.
36. mín
Elísa tekur innkast finnur Úlfu í hlaupið innfyrir, hún er síðan bara rifin niður en ekkert dæmt!
35. mín
Gult spjald
Karitas Tómasdóttir
35. mín
Heyyyyyyrðu!
Kristín Dís lætur vaða á markið, fer í stöngina og út fyrir markið, Palinska virðist hafa snert boltann en ekkert horn dæmt og Karitas fær svo spjald fyrir mótmæli
34. mín
Natalia Chudzik þarf aðhlynningu og liggur hér á vellinum
31. mín
Zofia Burzan er alltof sein í tæklingu þegar hún freistast til að ná í boltann á undan Taylor Kane, þarna hefði alveg mátt spjalda
27. mín
Taylor Kane fer út í skógarhlaup, Milek nær til boltans og æltar að lyfta honum yfir Taylor og á markið en Elín Helena vel staðsett og skallar þetta frá
25. mín
Milek með höööööörkuskot en það er hárfínt framhjá!
24. mín
Chudzik með hornspyrnuna, Elín Helena nær skallanum frá
24. mín
Kristín Vala brýtur á Burzan, hún er fljót að senda boltann yfir vörnina og Sarapata er í baráttunni en Kristín Dís tæklar þetta út fyrir endalínu
23. mín
Blikar!
Ása gerir vel á vinstri kantinum, nær frábærri fyrirgjöf inn á teiginn þar er Úlfa Dís mætt en skallinn hjá henni rétt framhjá!
21. mín
Milek í hörkuuuufærði, skilur Kristínu Dís eftir í skrefinu, fær pláss til að skjóta en það er rétt framhjá!
19. mín
Kaletka með hornspyrnu, fer í pakkann, boltinn berst svo til Katowicz sem reynir skotið en beint fætur í Elínar Helenu
17. mín
Gult spjald
Zofia Buszewska
Fær gult fyrir að brjóta á Sunnu17. mín
Gult spjald
Sunna Rún Sigurðardóttir
Fær líklega gult fyrir kjaft? Var allavega ekki sátt við brotið hennar Buszewska15. mín
Mileka sem fyrr potturinn og pannan í sóknarleik Czarni, á frábæra sendingu á Kaletka sem er í dauuuuuuðafæriiii en hittir ekki boltann og Taylor Kane nær þessum bolta
14. mín
Karitas brýtur á Miksone, þær taka þetta hratt en Blikarnir vel á verði koma í veg fyrir að eitthvað verði úr þessu
13. mín
Kristín Vala á fína sendingu á Úlfu sem er með nóg pláss en Úlfa flýtir sér aðeins of mikið og sendingin frá henni ekki á neinn
9. mín
Burzan með aukaspyrnu setur hann á teiginn og þar er stórhætta en Blikakonur ná að bægja hættunni frá í bili! Þær Pólsku hafa pressað hátt þessar fyrstu mínútur og Blikarnir varla komist yfir miðju
7. mín
ÚFFFFFF
Burzan með hornspyrnu, setur hann á miðjann teiginn, Milek setur boltann í STÖNGINA þaðan fer hann út í teiginn og í SLÁNNA og dettur fyrir fætur Buszewska sem skýtur síðan yfir! Þettta var ROSALEGT!!
5. mín
Kaletka með hornspyrnuna, Katowicz nær skoti en það er framhjá
5. mín
Klaudia Milek er sem fyrr stórhættuleg fyrir Czarni og nær að sækja aðra hornspyrnu heimakvenna á stuttum tíma
4. mín
Kaletka með hornspyrnu fyrir heimakonur, Taylor og Karitas hoppa báðar upp, Miksone reynir skotið en ekkert kemur úr þessu
2. mín
Fyrsta aukaspyrna leiksins
Þær setja þetta á teiginn en Taylor Kane handsamar þennan bolta auðveldlega
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur hefja leikinn fyrir okkur
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Ian Jeffs gerir tvær breytingar á liði Breiðabliks frá fyrri leiknum. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Kristín Vala Stefánsdóttir koma inn í byrjunarliðið fyrir Þórdísi Elvu Ágústsdóttur, sem tekur sæti á bekknum, og Líf van Bemmel, sem er í leikbanni eftir rauða spjaldið á Eikarvellinum.

Czarni stillir upp nákvæmlega sama byrjunarliði og vann 6–2 sigur á Eikarvellinum. Klaudia Milek, sem skoraði fjögur mörk í fyrri leiknum, leiðir sókn pólsku meistaranna.
Breiðablik þarf að vinna með fjórum mörkum til að knýja fram framlengingu en fimm marka sigur myndi tryggja Blikum sæti í næstu umferð eftir venjulegan leiktíma.

Byrjunarlið Czarni
1. Anna Palinska (m)
2. Oliwia Lapinska
7. Klaudia Milek
8. Natalia Chudzik
9. Patrycja Sarapata
14. Zofia Burzan
17. Nikol Kaletka
19. Karlina Miksone
27. Daria Kurzawa
70. Zofia Buszewska
84. Oliwia Katowicz
Byrjunarlið Breiðablik
12. Taylor Kane (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Katelyn Duong
11. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
29. Sunna Rún Sigurðardóttir
52. Kristín Vala Stefánsdóttir

Milek heldur áfram að skora
Klaudia Milek lét ekki fjögur mörk gegn Breiðabliki duga í síðustu viku. Hún var aftur á skotskónum um helgina þegar Czarni vann 2–0 sigur á UJ Kraków í pólsku úrvalsdeildinni.
Milek kom Czarni yfir úr vítaspyrnu á 31. mínútu áður en Oliwia Lapinska innsiglaði sigurinn undir lok leiksins.
Milek hefur því skorað fimm mörk í síðustu tveimur leikjum sínum og verður augljóslega leikmaðurinn sem varnarlína Blika þarf helst að hafa hemil á.

Czarni hefur ekki enn tapað leik í pólsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Liðið hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum og gert eitt jafntefli, skorað ellefu mörk og aðeins fengið þrjú á sig.
Vegna Evrópuverkefna og frestana hefur Czarni leikið færri deildarleiki en flest liðin í kringum sig. Liðið er í fjórða sæti með tíu stig en getur komist upp að toppliðunum þegar leikirnir til góða verða spilaðir.
Kvennalið Czarni á sér langa og glæsta sögu. Félagið hefur fjórtán sinnum orðið pólskur meistari og ekkert annað kvennalið í landinu hefur unnið fleiri meistaratitla.
Czarni varð pólskur meistari á síðasta tímabili og tryggði sér þá sinn fyrsta titil síðan 2021. Félagið hefur einnig fjórtán sinnum unnið pólska bikarinn.

Svöruðu skellinum með mikilvægum sigri í deildinni
Blikar létu tapið í Evrópu ekki sitja lengi í sér og svöruðu því með gríðarlega mikilvægum 1-2 endurkomusigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum um helgina.
Breiðablik var marki undir í hálfleik en Agla María Albertsdóttir jafnaði úr vítaspyrnu áður en Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði sigurmarkið á 79. mínútu.
Sigurinn varð enn dýrðmætari þegar FH tapaði 3–2 gegn Grindavík/Njarðvík daginn eftir. Breiðablik er því með þriggja stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir.

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með hvernig leikmenn hans svöruðu bæði slökum fyrri hálfleik gegn ÍBV og vonbrigðunum gegn Czarni.
Blikar fengu fjölmörg dauðafæri í Vestmannaeyjum og Jeffs hrósaði karakter liðsins fyrir að snúa leiknum sér í vil þrátt fyrir mögulega þreytu eftir Evrópuleikinn.
„Tökum þetta skemmtilega ævintýri til Póllands og svo byrjum við að hugsa um deildina eftir það,“ sagði Jeffs eftir sigurinn í Eyjum.

Martraðarkenndur fyrri hálfleikur á Eikarvellinum
Einvígið fór nánast úr böndunum hjá Breiðabliki fyrir hálfleik í fyrri leiknum. Czarni komst í 4–0 áður en Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir minnkaði muninn rétt fyrir hlé.
Klaudia Mi?ek skoraði þrennu áður en 50 mínútur voru liðnar og bætti svo fjórða marki sínu við á 70. mínútu. Karlina Miksone og Zofia Buszewska skoruðu einnig fyrir gestina en Karitas Tómasdóttir gerði hitt mark Blika.
Líf van Bemmel fékk svo að líta rauða spjaldið undir lok leiksins og verður því ekki með Blikum í Póllandi.

Verkefni Breiðabliks er því einfalt á blaði en ansi flókið í framkvæmd. Czarni er með fjögurra marka forskot eftir 2-6 sigurinn í Kópavogi.
Blikar þurfa því að vinna með fjórum mörkum til að knýja fram framlengingu en fimm marka sigur myndi tryggja þær beint áfram eftir venjulegan leiktíma.
Czarni má á sama tíma tapa með allt að þremur mörkum og fara samt áfram.
Blikar hafa því nákvæmlega engu að tapa og þurfa að sækja grimmt frá fyrstu mínútu!

Hvað er Evrópubikarinn?
Evrópubikar kvenna er önnur af tveimur Evrópukeppnum félagsliða á vegum UEFA og fer fram samhliða Meistaradeildinni. Keppnin var sett á laggirnar á síðasta tímabili til að fjölga þeim liðum sem fá tækifæri til að spreyta sig á evrópska sviðinu.
Fyrirkomulag keppninnar er einfalt, þar sem um útsláttarkeppni er að ræða og allar umferðir, allt frá forkeppni til úrslita, eru leiknar heima og að heiman.
Breiðablik náði eftirtektarverðum árangri á síðasta tímabili en þær m.a. slógu út Spartak Subotica frá Serbíu og unnu síðan ævintýralegan sigur á danska liðinu Fortuna Hjörring í sextán liða úrslitum. Ferð þeirra lauk í átta liða úrslitum gegn Häcken, sem stóð að lokum uppi sem fyrsti sigurvegari Evrópubikarsins.

Rúmenskt dómarateymi
Á flautunni í dag verður Ana Maria Terteleac, henni til halds og trausts verða Andreea Daniela Susca og Maria Mirabela Druica aðstoðardómarar.
Fjórði dómari í dag er svo Eniko Biro.
Fjórði dómari í dag er svo Eniko Biro.
Fyrir leik
Evrópa kallar á ný!
Verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu þar sem Breiðablik mætir pólska liðinu Czarni á heimvelli þeirra, Zaglebiowski Park Sportowy, í seinni viðureign þeirra í annarri umferð undankeppni Evrópubikarsins
Pólska liðið vann fyrri leikinn 2-6 á Eikarvellinum og Blikar þurfa því á stórkostlegri endurkomu að halda ætli þær sér áfram í keppninni.
Leikurinn hefst á slaginu 17:00 á íslenskum tíma!

Pólska liðið vann fyrri leikinn 2-6 á Eikarvellinum og Blikar þurfa því á stórkostlegri endurkomu að halda ætli þær sér áfram í keppninni.
Leikurinn hefst á slaginu 17:00 á íslenskum tíma!

Blikar eru þar með úr leik í þessu Evrópuævintýri og geta snúið sér alfarið að baráttunni um íslandsmeistaratitilinn þar sem þær hafa þriggja stiga forskot á FH
Takk annars fyrir samfylgdina í kvöld!
Skýrsla kemur inn eftir augnablik