Fotbolti.net
26.09.26 - 22:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ian Jeffs: Svöruðu fyrir fyrri hálfleikinn og frammistöðuna í miðvikudaginn

Auglýsing
Ian Jeffs: Svöruðu fyrir fyrri hálfleikinn og frammistöðuna í miðvikudaginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik vann gríðarlega sterkan sigur á ÍBV í dag eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Fótbolti.net ræddi við Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Breiðablik
„Það gerðist lítið í fyrri hálfleik. Nema ein hornspyrna og við höfum átt í erfiðleikum með að verjast föstum leikatriðum. Vorum ekki nógu grimmar inn í teig og ÍBV skorar fyrsta mark leiksins. Ég var ekki ánægður með það en fyrri hálfleikurinn fór eins og hann fór."

Blikar óðu í færum í seinni hálfleik en Guðný Geirsdóttir í marki ÍBV kom í veg fyrir stærra tap.

„Við áttum sex til átta dauðafæri. Þetta er svolítið búið að vera svona í sumar, það eru alltof margir leikir þar sem við þurfum átta dauðafæri til að skora tvö mörk. Ég er virkilega ánægður með karakterinn, það hefði verið hægt að hanga haus, 1-0 undir í hálfleik og nýkomnar úr Evrópuverkefni og einhver þreyta. Leikmenn stíga upp og svara fyrir fyrri hálfleikinn og frammistöðuna í miðvikudaginn," sagði ian Jeffs.

Breiðablik er með þriggja stiga forystu á FH, sem á leik til góða gegn Grindavík/Njarðvík á morgun, í toppbaráttunni. Breiðablik heimsækir Czarni til Póllands í næstu viku í Evrópubikarnum en Blikar töpuðu fyrri leiknum 6-2.

„Þetta voru risa þrjú stig fyrir okkur. Við tökum einn leik í einu. Það er Evrópuverkefni næst, förum út til Póllands á mánudaginn, æfing á morgun og svo ferðalag út. Spilum á miðvikudaginn og heim á fimmtudaginn, svo er leikur á sunnudaginn á móti Þrótti. Tökum þetta skemmtilega ævintýri til Póllands og svo byrjum við að hugsa um deildina eftir það," sagði Ian Jeffs.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.